Ef við værum Kjarval, væri þá hlustað?
Jóhannes S. Kjarval hafði vinnustofur á ólíkum stöðum á sínum langa myndlistarferli. Meðal annars starfaði hann í Austurstræti 12 og Sigtúni 7 og hafði vinnuaðstöðu í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar yfir sumartímann í um tvo áratugi. Hann nýtti sér líka íslenska náttúru sem vinnustofu og málaði víða um land. Við njótum enn í dag ómetanlegrar arfleifðar hans, en að baki verkunum lágu áratuga vinna og tími til að skapa.
Vinnustofan er mikilvægt rými fyrir listamanninn. Þar gefst svigrúm til að vinna með hugmyndir, gera tilraunir, leyfa þeim að þróast og jafnvel gefa sér tíma til að leiðast, sem getur verið mikilvæg forsenda skapandi hugsunar. Starfið fylgir þó ekki alltaf hefðbundnum vinnutíma. Margir myndlistarmenn sinna annarri vinnu meðfram listsköpuninni og vinna því á kvöldin, um helgar eða í skorpum þegar tími og aðstæður leyfa. Það sem skiptir mestu máli er að hafa fastan samastað, geta komið og farið eftir aðstæðum og haldið áfram vinnunni þar sem frá var horfið.
Vinnustofan er jafnframt rými fyrir efnivið, verkfæri og listaverk sem safnast upp á löngum myndlistarferli. Ekki seljast öll listaverk, en það þýðir ekki að þau séu ekki mikilvæg. Sum marka tímamót á ferlinum, önnur fá nýtt hlutverk með tímanum og enn önnur eru hluti af vinnuferli sem ekki er lokið. Myndlistarfólk þarf því ekki aðeins vinnurými heldur einnig geymslu. Hvort tveggja eru grundvallarforsendur listsköpunar.
Leigukostnaður við vinnustofur og geymslur getur verið mjög kostnaðarsamur fyrir myndlistarfólk, enda eru tekjur þess almennt lágar á sama tíma og húsnæðis- og annar rekstrarkostnaður hefur hækkað verulega. Margir hafa einfaldlega ekki efni á vinnustofu á almennum leigumarkaði. Leigusamningar eru oft ótryggir, til skamms tíma eða háðir óvissu um endurnýjun. Listafólk hefur því litla tryggingu fyrir áframhaldandi aðgangi að húsnæðinu, sem gerir því erfitt að byggja upp starfsemi og tryggja sér stöðugt vinnurými.
Það er jafnframt þekkt að fasteignaeigendur nýti sér starfsemi listafólks til að halda húsnæði í notkun á meðan það bíður sölu eða annarrar uppbyggingar. Listafólk neyðist oft til að gera skammtímaleigusamninga án tryggingar fyrir áframhaldandi afnotum, þótt starfsemin geti nýst eigendum og jafnvel aukið verðmæti eignanna. Það er óeðlilegt að listafólk beri sjálft kostnaðinn og áhættuna af þessari óvissu. Tryggja þarf aðgang að heilnæmu, öruggu og viðráðanlegu vinnustofuhúsnæði með langtímasamningum.
Skipholt 37 – varanlegt rými fyrir listafólk
Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) hefur um árabil kallað eftir samstarfi við ríkið um að tryggja myndlistarfólki vinnustofur með langtímaleigusamningum. Það var því mikið fagnaðarefni þegar samningur náðist um uppbyggingu og rekstur vinnustofuhúsnæðis í Skipholti 37. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið veitti SÍM rekstrarstyrk og styrk til stofnkostnaðar til þriggja ára, samtals 97,5 milljónir króna. Samningurinn gaf myndlistarfólki von um öruggari starfsaðstöðu og uppbyggingu til framtíðar.
Listamenn fengu fyrst aðsetur og afhendingu á húsnæðinu í nóvember 2025, eftir að SÍM hafði kynnt húsið um haustið og lokið umsóknarferli fyrir félagsmenn.
Margir þeirra sem fluttu inn höfðu lengi búið við óviðunandi húsnæðisaðstæður og vonuðust eftir heilnæmari og öruggari vinnustofum. Fyrstu mánuðirnir í Skipholti einkenndust þó af framkvæmdum, röskun og tímabundnum lokunum vegna athugasemda eldvarnar- eftirlitsins. Sumir listamenn komust ekki inn í vinnustofur sínar mánuðum saman.
Þegar starfsemin virtist loks vera að komast í eðlilegt horf kom tilkynning um að húsið hefði verið sett á sölu og leigusamningum sagt upp með tveggja mánaða fyrirvara. Um 44 myndlistarmenn höfðu komið sér upp vinnustofum í húsinu og þurfa nú að finna sér nýja starfsaðstöðu. Þetta er mikið áfall, bæði vegna kostnaðar og fyrirhafnar við flutninga og þeirrar óvissu sem fylgir því að vita ekki hvar hægt verður að starfa næstu misseri.
Ábyrgð ríkisins á menningarlegum innviðum
Eflaust spyrja margir sig hvers vegna ríkið eigi að koma að uppbyggingu og tryggingu vinnustofuhúsnæðis fyrir myndlistarfólk. Svarið er einfalt: Vinnustofur eru grundvallarinnviðir myndlistar, rétt eins og listasöfn, sýningarrými og aðrar menningarstofnanir. Án viðeigandi aðstöðu verður myndlistin fátækari, bæði að umfangi og fjölbreytni. Vinnustofur eru því ekki aðeins mikilvægar fyrir listafólkið sjálft heldur allt samfélagið.
Ábyrgð ríkis og sveitarfélaga á að efla íslenska myndlistarmenningu og styrkja starfsumhverfi myndlistarfólks kemur skýrt fram í samþykktri myndlistarstefnu Alþingis til ársins 2030. Á Norðurlöndunum er jafnframt víða litið á aðgang að vinnustofum sem hluta af opinberri menningarstefnu og ábyrgð hins opinbera á starfsumhverfi listafólks.
Niðurstöður könnunar SÍM meðal fagmenntaðs myndlistarfólks árið 2025 sýna að þrátt fyrir mikið vinnuframlag eru tekjur af myndlist aðeins lítill hluti af heildartekjum þess. Meirihluti myndlistarfólks ver 30 til 50 klukkustundum á viku, eða meira, í listsköpun og tengda umsýslu, en þarf jafnframt að treysta á önnur störf til að ná endum saman. Þar sem möguleikar á styrkjum eru takmarkaðir og leiguverð á almennum atvinnuhúsnæðismarkaði mörgum myndlistarmönnum um megn er mikilvægt að hið opinbera komi að uppbyggingu og tryggingu vinnustofuhúsnæðis á viðráðanlegu verði. Þannig má skapa listafólki raunhæf skilyrði til listsköpunar.
Skipholt 37 er eign ríkisins og þar gefst stjórnvöldum tækifæri til að fylgja eigin stefnu eftir í verki. Í stað þess að selja húsið ætti ríkið að fjárfesta í nauðsynlegum endurbótum og gera langtímasamning við SÍM. Með því væri ekki aðeins verið að tryggja myndlistarfólki starfsaðstöðu heldur einnig að fjárfesta í framtíð íslenskrar myndlistar og menningarlífs.
Þegar rýmin hverfa
Samhliða óvissunni um framtíð Skipholts 37 hefur aðgengi listafólks að húsnæði einnig verið skert hjá Reykjavíkurborg. Borgin hefur sagt upp 15 leigusamningum um rými sem nýtt hafa verið fyrir listafólk, menningarstarfsemi og skapandi greinar. Þegar bæði ríki og sveitarfélög draga úr aðstöðu til listsköpunar þrengist verulega að starfsumhverfi listafólks. Þetta eru ekki ótengd mál heldur hluti af stærri þróun þar sem rými fyrir listsköpun og menningarstarfsemi eru að hverfa.
Þessi þróun er varhugaverð og hefur ekki aðeins áhrif á starfsskilyrði myndlistarfólks heldur allt menningarlífið. Það er skammsýni að líta á fjárfestingu í menningu sem útgjöld sem megi skera niður þegar þrengir að. Verðmæti frumsköpunar verða ekki aðeins mæld í krónum og aurum. Menning og listir stuðla að auknum lífsgæðum, vellíðan og samheldni, efla gagnrýna hugsun og styrkja lýðræðið.
Ein mikilvægasta fjárfesting sem ríkið og sveitarfélög geta ráðist í er að tryggja listafólki rými og tíma til að skapa. Það dugar ekki að tala um mikilvægi lista og menningar, setja sér metnaðarfulla stefnu og fagna árangri íslensks listafólks á alþjóðavettvangi ef fólkið sem skapar listina hefur ekki viðunandi starfsaðstæður.
Við þurfum að hugsa lengra en til næsta fjárhagsárs og líta á vinnustofur og menningarhúsnæði sem mikilvæga innviði til framtíðar. Þegar slík rými hverfa er ekki auðvelt að byggja þau upp aftur. Það tekur tíma að skapa aðstæður, byggja upp samfélag og þróa starfsemi.
Það er ekki sanngjarnt að menningarstarfsemi byggist að stórum hluta á lágum tekjum, ólaunaðri vinnu og persónulegri fjárhagslegri áhættu listafólks. Ef hallalaus fjármál eru forsenda sjálfbærs rekstrar hjá ríkinu ættu sömu sjónarmið ekki síður að gilda um listafólk. Það vill, rétt eins og aðrir, geta staðið undir kostnaði við starfsemi sína, rekið hana hallalaust og séð sér og fjölskyldu sinni farborða. Ríkið hefur safnað upp verulegri innviðaskuld gagnvart listafólki. Nú er kominn tími til að greiða hana niður með markvissri fjárfestingu í starfsumhverfi listafólks.
Þegar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem fer með menningarmálin, og fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með eignir ríkisins, tala ekki saman og samræma ekki stefnu sína og aðgerðir, fer ekki saman hljóð og mynd.
Listafólkið sem leigir vinnustofur í Skipholti 37 skorar því á ríkisstjórnina að samræma stefnu sína, vinna markvisst að lausnum og tryggja að Skipholt 37 verði áfram rými fyrir listsköpun. Með því getið þið tryggt framtíð íslenskrar frumsköpunar og um leið heiðrað arfleifð Kjarvals með því að tryggja listafólki rými og aðstæður til að skapa.
Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna.
