Liðsmenn sveitarinnar Mötley Crüe  voru á meðal þeirra sem notuðu ótæpilega af hárspreyi – og hvöttu auglýsendur almenning til að láta nú ekki standa á sér í þeim efnum ...
Liðsmenn sveitarinnar Mötley Crüe voru á meðal þeirra sem notuðu ótæpilega af hárspreyi – og hvöttu auglýsendur almenning til að láta nú ekki standa á sér í þeim efnum ...
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og einhverjir bara alls ekki. Fagurlega snyrt hár vekur alltaf eftirtekt og með það í huga mætti leitast við að reyna að bursta gegnum flókann daglega. Svo er nú það að hann haldist á réttum stað.

Löngu fyrir daginn í dag og löngu fyrir eina af þeim uppfinningum sem skóku 20. öldina, í þessu tilfelli hárspreyið góða, notuðu konur Viktoríutímans vökva sem gerður var úr ávextinum quince (blöndu peru og eplis) til þess að halda í skefjum íburðarmiklum og oft flóknum hárgreiðslum sínum. Fræ ávaxtarins voru soðin þar til myndaðist þykkur og klístur- eða slímkenndur lögur sem gjarnan var blandaður áfengi eða einhvers konar jurtagúmmí til þess að þykkja blönduna. Til viðbótar, vegna þess hve hráefnin gátu skemmst auðveldlega, þótti gott að bæta í þetta ilmolíum, rósavatni eða hreinlega ilmvatni.

Tekið hefur verið fram í ýmsum ritum frá þessum tíma að heimatilbúin blanda sé allra best, því þær sem seldar voru í verslunum voru oftar en ekki blandaðar einhvers konar eitur- eða óhreinum efnum sem gátu verið skaðleg bæði húð og hári.

Í bók eftir fagurkerann J.R.Stitson, „The Human Hair, Its Care and Preservation“, frá árinu 1900 segir að „Tilbúnar lausnir sem seldar eru undir mismunandi nöfnum, til að stífa hárið og láta það halda lögun sinni í tiltekinni stöðu, sem og til að láta það virðast þykkara, eru stundum skaðlegar vegna þess að óhrein efni hafa verið notuð; þekkt eru dæmi þar sem hárið hefur af slíkum orsökum orðið ryðgrátt. Einnig, vegna þess að hárið er þakið þunnu lagi af lausninni leiðir það af sér að hárið fær ekki næga loftræstingu um tíma og nýtur því ekki sérstaks ávinnings af slíkri notkun.“

Í bók eftir J.R.Stitson var ýtt undir að nota fremur lífrænar lausnir á borð við fræblöndu úr ávextinum quince þegar kom að því að halda hárinu í skefjum

Taka skal fram að lítið finnst um J.R.Stitson, en honum er lýst sem frumkvöðli síns tíma, gefandi út áðurnefnda bók þar sem hann fjallaði um hreinlæti og hársnyrtingu bæði kvenna og karla. Þetta þótti á þeim tíma allsérstakt, enda snyrting karlmanna oft á undanhaldi. Hins vegar bjó Stitson – sem skrifaði einungis þessa einu bók – yfir nægri þekkingu til að skrifa kafla um lífeðlisfræði hárróta, en deildi jafnframt hagnýtum uppskriftum að hárlitun, aflitunarefnum og meðferðum til að fjarlægja óæskilegan hárvöxt.

Segir sagan hérlendis að þegar kom að því að halda lokkunum í skefjum hafi íslenskar konur helst notað sykurvatn til að stífa hárið og sykurmolar fastur liður í snyrtitöskunni á árum áður. Molarnir voru þá leystir upp í volgu vatni og greiðu dýft í sykurlausnina, en þegar vatnið gufaði upp hertist sykurinn svo greiðslan haggaðist ekki heilu böllin. Þetta þótti með eindæmum ágætt, hárið hélst fullkomlega, allt þar til fór að rigna en þá fór allt í klessu. Svona í stuttu máli.

Heimatilbúinn hárlögur virðist hafa haldið velli um nokkurt skeið, en það var svo í kringum fimmta áratug síðustu aldar sem farið var að nota úðabrúsa. Það vildi nefnilega svo skemmtilega til að brúsarnir komu á markaðinn í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar, en þá hannaði bandaríski herinn þrýstibrúsa til að úða skordýraeitri.

Athugulir framúrstefnumenn sáu að brúsann mætti nota á aðra vegu og árið 1948 hóf bandaríska fyrirtækið Chase Products að setja hársprey í úðabrúsa – og svo beint á markaðinn undir nafninu Spray Net. Tilvist þessarar gleði var ekki sein að vinda upp á sig, fleiri tegundir fóru í umferð á borð við hinar velþekktu Elnett og Aqua Net, og árið 1964 hafði hársprey skákað varalitnum sem söluhæstu snyrtivöru heims.

Það stóð þó ekki mjög lengi því árið 1968 setti strik í reikninginn. Þarna höfðu hippaárin svokölluðu hafið göngu sína og strangtrúaðir hippar voru alls ekki til í að úða eiturefnum á víð og dreif, sérstaklega ekki á sig sjálfa. Einnig fór mikið fyrir femínistum á sama tíma og tók nú önnur hver kona að losa sig við allt sem hægt var að tákna sem kúgun kvenna, þ.m.t. brjóstahaldara, gerviaugnhár, tímaritið Cosmopolitan og auðvitað hársprey. Almannarómur vildi meina að brjóstahöld hefðu verið brennd, en við nánari grennslan lítur nú út fyrir að það sé mýta ...

En spólum nú aðeins áfram. Á níunda áratugnum náði hársprey nýjum hæðum, þá í dægurmenningunni, nánar tiltekið í tónlistarstefnu sem varð óaðskiljanleg frá úðabrúsanum – svokölluðu glamúrrokki. Á þessum tíma breyttist hársprey úr því að vera snyrtivara fyrir húsmæður í að verða líflína harðsvíraðra rokkstjarna og tákn um uppreisn, óhóf og fullkomna ásýnd hins kynþokkafulla manns. Karlmenn í hljómsveitum eins og Mötley Crüe, Poison, Cinderella, Ratt og Bon Jovi mættu með vel túberað hár sem þurfti að geta staðið af sér heilu tónleikana undir heitum kastljósum ... og þá með gríðarlegu magni af spreyi.

Ef eitt vörumerki skilgreindi þetta tímabil þá var það Aqua Net. Sagt var að hljómsveitirnar hefðu keypt spreyið í kassa- eða brettavís fyrir túra og vildu menn meina að spreylyktin fylgdi hvar sem glamúrböndin voru á ferð. Það þótti kaldhæðnislegt að hárspreyið á þessum tíma var gríðarlega eldfimt, en það að mæta með hálfan brúsa af spreyi í hárinu nálægt opnum eldi var hluti af hinu hættulega rokklífi.

(Aðrir sem vildu tolla í tískunni á þessum tíma spreyjuðu auðvitað að sama skapi hár sitt af miklum móð!)

Endalok hárspreysnotkunar rokkara hélst í hendur við næsta tónleikatímabil, grunge-stefnuna sem kynnti til leiks sveitir á borð við Nirvana, Pearl Jam og þess háttar.

Í dag hefur hárspreyið fallið niður úr verðlaunasæti snyrtivaraheimsins, en er þó enn ofarlega í grein hárvara sem slíkra. Með umhverfisáhrif spreybrúsans í huga er málið að við gætum okkur bara að velja eitthvað sem fer ofsalega vel með jörðina ...kannski spurning um að fara að taka upp klístursgerð Viktoríutímans, setja fræ í bleyti og blanda olíu?

Skylt efni: tíska

Er hár yðar óstýrilátt?
Líf og starf 13. nóvember 2026

Er hár yðar óstýrilátt?

Margir þekkja þá raun að eiga við hárið á sér, sumir fremur öðrum auðvitað og ei...

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Tilmæli um ábyrga notkun gervigreindar

Bandalag íslenskra listamanna (BÍL) hefur ákveðið að hrinda af stað átaki þar se...

Aldarafmæli Láru Brynhildar
Líf og starf 12. nóvember 2026

Aldarafmæli Láru Brynhildar

Lára Brynhildur Eiríksdóttir, sem býr á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akurey...

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði
Líf og starf 10. nóvember 2026

Lausn á vísnagátunni úr 20 tölublaði

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtist í 20. tölublaði Bændablaðsins. 

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 9. nóvember 2026

Svar við loftmyndagetraun

Í loftmyndagetrauninni að þessu sinni voru lesendur beðnir um að bera kennsl á l...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 5. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Sporðdrekinn hefur beðið spenntur eftir einhverju sem hann taldi dramatískt, en ...

TR trónir á toppnum
Líf og starf 4. nóvember 2026

TR trónir á toppnum

Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helga...

Rosaleg blöð að norðan
Líf og starf 4. nóvember 2026

Rosaleg blöð að norðan

„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“ Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspi...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f