Verðmæti laxeldis gæti nálgast þorskveiðar
Fyrirtækið Thor Salmon er komið vel á veg í uppbyggingu landeldisstöðvar í Þorlákshöfn. Samkvæmt áætlunum stefnir Thor Salmon á 40 þúsund tonna framleiðslu á laxi á ári. Fyrstu hrognin voru tekin í eldi hjá Thor Salmon árið 2025 og verða fyrstu kerin fyrir áframeldi klár í kringum áramót.
„Árangur í landeldi byggist fyrst og fremst á því að skapa fiskinum kjöraðstæður til að vaxa og dafna,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Thor Salmon, í samtali. „Þetta er vandasöm starfsemi sem krefst mikilla fjárfestinga, reynslumikils starfsfólks, agaðra verkferla og ábyrgðar í fjármálum. Jafnframt þurfum við að vera til fyrirmyndar í öllu sem snýr að sjálfbærni og vera traustur og ábyrgur birgir gagnvart viðskiptavinum okkar.
Ef áform laxeldisfyrirtækjanna ganga eftir gæti laxeldi skapað á næsta áratug verðmæti sem nálgast það sem þorskveiðar skila í dag. Landeldi er ung atvinnugrein og uppbyggingin mun óhjákvæmilega fela í sér áskoranir. Þess vegna er mikilvægt að leikreglur og lagaumhverfi styðji við þróun greinarinnar, án þess að við séum að biðja um neinn afslátt af eðlilegum kröfum,“ segir Steinþór.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar var heildarframleiðsla á óslægðum laxi í eldi á Íslandi árið 2025 tæp 59 þúsund tonn. Stærsti hluti framleiðslunnar á því ári kom frá sjókvíaeldi þar sem landeldisstöðvarnar sem núna eru í uppbyggingu höfðu enn sem komið er litla hlutdeild í heildarmagni. Gangi áform landeldisfyrirtækja eftir verða þau með heildarframleiðslu á slægðum laxi upp á rúmlega 160 þúsund tonn þegar líður á næsta áratug sem bætist við þá framleiðslu sem þegar er í sjóeldi. Eins má gera ráð fyrir aukningu í fiskeldi í sjó á sama tíma.
Til samanburðar má nefna að á undanförnum tíu árum hefur heildarmagn landaðs þorsks verið á bilinu 217 til 277 þúsund tonn. Hafa ber í huga skekkju í þessum samanburði þar sem í tölum Hagstofunnar er talað um óslægðan fisk, en í áætlunum landeldisfyrirtækjanna er talað um slægðan lax. Fullvaxinn sex kílóa lax er um fimm kíló eftir að búið er að fjarlægja innyflin með slægingu.
Vilja læra af hverjum áfanga
„Við hjá Thor Salmon fórum seinna af stað en hin landeldisfyrirtækin og erum því komin skemur í uppbyggingunni en Samherji, First Water og Laxey. Því hefur minna borið á okkur til þessa,“ segir Steinþór. „Þessi fyrirtæki hafa verið ákveðnir ísbrjótar og við höfum notið góðs af þeirri reynslu sem þau hafa aflað sér.
Stofnendur Thor Salmon eru bræðurnir Jónatan Þórðarson og Þórður Þórðarson sem hafa áratuga reynslu af fiskeldi. Fljótlega kom ÍS Haf fjárfestingasjóður inn í verkefnið, en það er sjóður sem leggur áherslu á haftengd verkefni. Sjóðurinn er í stýringu Íslandssjóða og á bak við ÍS Haf eru aðilar eins og Útgerðarfélag Reykjavíkur og lífeyrissjóðir.
Í upphafi tók fyrirtækið 25 hektara lóð á leigu og fékk leyfi fyrir árlegri framleiðslu á 20 þúsund tonnum af laxi,“ segir Steinþór. „Á þessum reit var laxeldisstöð sem lokaði fyrir um 40 árum síðan. Stofnendur Thor Salmon þekktu til staðarins og vissu af þeim möguleikum sem voru fyrir hendi. Við höfum nú stækkað lóðina í 66 hektara og erum að sækja um leyfi fyrir 40 þúsund tonna ársframleiðslu.
Fyrsta skóflustungan að seiðastöðinni var tekin árið 2024, hún tekin í notkun um mitt ár 2025 og framkvæmdum lauk um síðustu áramót. Á þessu ári höfum við afhent 1,5 milljón seiða, en afkastageta stöðvarinnar er um fjórar milljónir seiða á ári sem dugar fyrir 20.000 tonna áframeldi. Okkur tókst að byggja stöðina á skömmum tíma og á hagstæðu verði. Reksturinn hefur gengið vel og við höfum fengið mikilvæga reynslu sem nýtist okkur í áframhaldandi uppbyggingu.“
Tankar fyrir stórseiði klárir um áramót
Núna stendur yfir uppbygging á fyrsta áfanganum á aðstöðu fyrir áframeldi. Hver áfangi getur afkastað 5.000 tonna ársframleiðslu og verður sá fyrsti tilbúinn um mitt næsta ár. Fyrstu tankarnir verða tilbúnir í kringum áramótin, en þeir eru ætlaðir fyrir stórseiði. Þaðan verður fiskurinn færður í stærri tanka sem verða klárir með vorinu. „Við gerum ráð fyrir að hefja slátrun á fullvöxnum laxi um áramótin 2027, 2028. Samkvæmt áætlunum stefnum við á að ná 20 þúsund tonna framleiðslugetu á næstu fjórum til fimm árum,“ segir Steinþór. „Með því að byggja stöðina upp í 5.000 tonna áföngum getum við lært af hverjum áfanga og nýtt þá reynslu við þróun þess næsta. Jafnframt dreifist fjárfestingin yfir lengra tímabil og áhætta í uppbyggingunni minnkar.“
Fyrsti áfanginn sé að fullu fjármagnaður en áður en ráðist verði í þann næsta verði að tryggja nýtt fjármagn til framkvæmda. Með vaxandi ársframleiðslu fari starfsemin fljótt að skila fjárhagslegum ávinningi og gert er ráð fyrir að fyrirtækið skili hagnaði innan fárra ára. „Horfur fyrir laxeldi eru góðar, en við erum að framleiða hágæða prótein og á heimsvísu er gert ráð fyrir að eftirspurn vaxi hraðar en framboð á næstu árum.
Í dag gengur viðskiptamódelið út á að selja öðrum eldisfyrirtækjum seiði samhliða því að framleiða fyrir eigin starfsemi. Þeir sem kaupa af okkur eru fyrirtæki bæði í landeldi og sjókvíaeldi, eins og Kaldvík, Háafell og First Water. Við höfum einnig ræktað seiði fyrir Hábrún og ÍS47 sem eru með regnbogasilung á Vestfjörðum.
Eftir því sem okkar eigin starfsemi í áframeldi vex mun hins vegar draga úr sölu seiða til annarra fyrirtækja. Þegar starfsemin verður komin í fullan gang verður aðalsöluvaran okkar slægður lax með haus, eða svokallaður „Head on Gutted“, líkt og tíðkast hjá öðrum íslenskum laxeldisfyrirtækjum.“
Ísland heppileg staðsetning
„Ísland hefur sérstöðu þegar kemur að landeldi. Þar má nefna jarðlög sem gera það að verkum að í gegnum hraun síast vatn og sjór,“ segir Steinþór. „Á þessum stað getum við dælt bæði sjó og ferskvatni upp úr borholum. Hérlendis er jafnframt aðgengi að hreinni endurnýjanlegri orku, bæði rafmagni og hita, á samkeppnishæfu verði. Vegna staðsetningar Íslands er hægt að sigla með fiskinn til Norður-Ameríku á fáeinum dögum, en suðvesturhornið er með góða innviði með aðgengi að höfnum og alþjóðaflugvelli. Íslendingar búa yfir mikilli þekkingu á sjávarútvegi og tengdri starfsemi. kortið á alþjóðlegum mörkuðum, Enn fremur höfum við ákveðið samkeppnisforskot hvað varðar tollaaðgang að stórum mörkuðum á borð við Bandaríkin og Kína.
Landeldi fer fram í lokuðu og stýrðu umhverfi sem er minna háð ytri umhverfissveiflum en sjókvíaeldi. Það skapar möguleika á stöðugum gæðum og fyrirsjáanlegum afhendingum til viðskiptavina. Fiskurinn er síður útsettur fyrir laxalús, hætta á sjúkdómum er minni og strok afar ólíklegt sem þýðir lítil afföll. Þetta eru mikilvægir kostir sem stuðla að rekstraröryggi.
Thor Salmon rekur svokallaða „Hybrid Flow Through“ stöð, eða HFT. Þessi tækni felur í sér að við endurnýtum og hreinsum 70 prósent af vatninu en 30 prósent er nýtt vatn sem er tekið inn í kerin á hverjum tíma. Þetta er tiltölulega ný nálgun sem nýtist vel þar sem aðgengi að vatni er gott. Þar sem aðgengi að vatni er takmarkað er önnur tækni notuð sem nefnist „Recircualting Aquaculuture System“, eða RAS. Þar er allt að 100 prósent vatnsins endurnýtt með flóknum hreinsibúnaði, sem gerir þá lausn jafnframt kostnaðarsamari.“
Steinþór útskýrir að eldi á laxi þurfi hlutfallslega minna landrými en önnur framleiðsla á dýrapróteini þar sem mikill lífmassi komist fyrir á hverjum fermetra í eldiskerjunum sem eru allt upp undir níu metra djúp. „Fóðurstuðullinn er jafnframt afar góður, en það þarf ekki nema rúmlega kíló af fóðri til að framleiða eitt kíló af laxi. Til samanburðar þarf um tvö kíló fóðurs til að framleiða kíló af kjúklingi og mun meira þegar kemur að stærri búfénaði.“
Fjárfestar þurfa fyrirsjáanlegt lagaumhverfi
„Áform landeldisfyrirtækja um uppbyggingu á næstu árum eru umfangsmikil og krefjast mikils fjármagns. Til þess að laða fjárfesta og tryggja framgang verkefnanna þurfi hins vegar að vera til staðar skýrt, skilvirkt og fyrirsjáanlegt laga- og regluverk til framtíðar. Sú er ekki raunin í dag og þess vegna hafa landeldisfyrirtækin kallað eftir sérstakri löggjöf fyrir atvinnugreinina. Því fyrr sem sú vinna klárast því betra.
Hvað markaðsmálin varðar teljum við farsælt ef íslensk fyrirtæki myndu sameinast um að koma íslenskum laxi betur á en atvinnugreinin er að skoða þessi mál núna. Framtíðin á eftir að leiða í ljós hvort það verði hægt að fá hærra verð fyrir fisk úr landeldi samanborið við sjókvíaeldi. Það sem landeldið hefur hins vegar eru áreiðanlegar afhendingar sem getur boðið upp á lengri samninga sem oft og tíðum skila betri kjörum.
Með aukinni framleiðslu í landeldi verður til töluvert magn af fiskimykju sem getur skapað ný tækifæri, en þetta er lífræn hliðarafurð sem við viljum nýta sem best. Við hjá Thor Salmon horfum meðal annars til þróunarverkefnis hjá Laxey í Vestmannaeyjum þar sem settur hefur verið upp þurrkunarbúnaður til vinnslu á mykjunni þannig að hún geti nýst sem áburður í landbúnaði.“
