Myndefni frá svínabúi til rannsóknar
Í kjölfar opinberrar birtingar myndefnis úr svínabúi Stjörnugríss á Kjalarnesi, sem tekið var við innbrot í búið og sýnir meðal annars dauða grísi og særð svín, hafa vaknað spurningar um hvernig Matvælastofnun sinnir eftirliti með dýravelferð og aðbúnaði dýra á slíkum búum.
Á svínabúum er miðað við reglubundið eftirlit Matvælastofnunar að minnsta kosti einu sinni á ári, sem þýðir að svínarækt sætir tíðara eftirliti en aðrar búgreinar þar sem stundað er búfjárhald.
Oftar eftirlit þar sem áhætta er meiri
Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir Matvælastofnunar, útskýrir fyrirkomulagið svo að eftirlitsþörfin sé metin eftir áhættu- og frammistöðuflokkun. Þannig að þar sem áhætta sé talin meiri eða sýnileiki minni, þar sé oftar farið í eftirlit.
„Eftirlit getur hins vegar aldrei verið viðstöðulaust alltaf allan sólarhringinn, heldur verða yfirvöld að treysta því að það sé farið eftir regluverkinu og kröfum um úrbætur þegar þær eru settar. Ný eftirlitsheimsókn er svo til að sannreyna það en eftirlit getur aldrei að öllu leyti hindrað að í einhverjum tilfellum á einhverjum tímapunkti sé umönnun og aðbúnaði ábótavant. Ef svo er, þá er það auðvitað umráðamaður dýrs sem ber ábyrgð en ekki eftirlitið. Ekki frekar en að umferðareftirlit lögreglu geti hindrað að öllu leyti alls staðar að enginn aki of hratt.“ Þegar Þóra er spurð hvort Matvælastofnun geti ákveðið að herða eftirlit og auka tíðni eftirlitsheimsókna – til dæmis í kjölfar þessa tiltekna máls – segir hún að svo sé. „Ef eftirfylgni er þörf eða áhætta metin sem aukin þá er eftirlitstíðni aukin. Eftirlitsheimsóknir á svínabú voru til dæmis 35 árið 2025 en svínabúin voru 19 talsins. Sem sagt nær tvöfalt fleiri heimsóknir en starfsstöðvar, sem þýðir að hver starfsstöð fékk tæpar tvær heimsóknir að meðaltali í stað einnar þó markmiðið hafi verið sett á að lágmarki 19 eftirlitsheimsóknir. En vissulega getur dreifingin verið öðruvísi en að þessum eftirlitsheimsóknum sé jafnt dreift yfir.“
Hvað varðar aðstæðurnar og aðbúnaðinn sem birtist í því myndefni sem fór í opinbera dreifingu og mögulegar aðgerðir Matvælastofnunar, segir Þóra að stofnunin sé með þau gögn til skoðunar. „En stofnunin hefur ekki, svo mér sé kunnugt um, fengið senda neina ábendingu né myndefni frá þeim aðila sem braust inn. Það er því ekki hægt að rannsaka málið með öðrum hætti en að skoða það sem birt er á netinu og í fjölmiðlum.“
Óboðað eftirlit
Í þjóðfélagsumræðu sem fylgdi í kjölfar þessa máls, bar talsvert á að því væri haldið fram að eftirlitsheimsóknirnar á svínabúin væru boðaðar heimsóknir – og því marklausar. Þóra segir hins vegar að almennt sé allt slíkt eftirlit óboðað, eins og mælt sé fyrir um í Evrópureglugerð sem Ísland hafi innleitt. „Hins vegar kemur fyrir að eftirlitsfólk hafi samband stuttu áður en það leggur af stað til að tryggja að rekstraraðili sé við og ekki sé verið að keyra langa vegu í erindisleysu.
Sá stutti frestur sem fólk getur fengið með því, gerir því ekki kleift að breyta eða bæta að neinu ráði. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur ekki gert athugasemdir við þetta fyrirkomulag og telur þetta falla undir óboðað eftirlit ef um er að ræða bara rúmlega aksturstímann til að hægt sé að viðhafa einhverja skilvirkni í eftirliti.
Ef annað fyrirkomulag er viðhaft er það annað hvort úttekt að beiðni eftirlitsþega af ólíkum ástæðum eða eftirfylgni, þegar gefinn er upp ákveðinn fjöldi daga til að verða við úrbótum eftir reglubundið eftirlit, eða álíka,“ segir hún.
Dauð svín tafarlaust fjarlægð
Í reglugerð um velferð svína er kveðið á um að umráðamenn svínabúa skuli hafa eftirlit með dýrunum að lágmarki einu sinni á sólarhring og bæta svo fljótt sem auðið er úr því sem er ábótavant. Aukið eftirlit skuli haft með nýfæddum, sjúkum og slösuðum svínum og gyltum nálægt goti.
Sjúk og slösuð svín eiga að fá viðeigandi meðferð og vera færð eins fljótt og auðið er í sérstakar sjúkrastíur með þurru, hreinu og mjúku undirlagi. Þá er kveðið á um að holdafar, undirburður og undirlag skuli vera með þeim hætti að komið sé í veg fyrir sár, svo sem legu- og bógsár. Komi engu að síður sár skulu þau meðhöndluð í samráði við dýralækni.
Jafnframt segir í reglugerðinni að dauð svín skuli tafarlaust fjarlægð úr umhverfi lifandi svína og hræjum fargað á viðurkenndan hátt.
Engin alvarleg frávik úr nýlegu eftirliti
Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, hefur sagt í viðtölum við fjölmiðla að myndefnið úr svínabúinu sýni ljóta mynd og að mistök og frávik hafi orðið við umönnun dýranna, sem fyrirtækið taki ábyrgð á. Hann hefur þó hafnað því að myndbandið gefi rétta heildarmynd af starfseminni.
Þóra segir að myndefnisins hafi, samkvæmt því sem myndatökuaðili hefur tjáð sig um, verið aflað í vor og snemma í haust. Matvælastofnun hafi farið í eftirlitsheimsókn á þetta tiltekna bú eftir þann tíma. „Það er því frekar nýlega búið að fara í eftirlit á búið sem ekki leiddi í ljós á þeim tímapunkti alvarleg frávik, svo sem dýr með sár sem ekki væri sinnt. Því teljum við ekki að það sé ástæða til að ætla að það sé þarna ástand sem krefjist allra hæsta forgangs í augnablikinu. En auðvitað eru mál er varða dýravelferð ávallt unnin eins hratt og kostur er á, eftir auðvitað forgangsröðun á þeim málum sem liggja fyrir hverju sinni. Eftir birtingu myndbandanna var strax hafin rannsókn á þeim upplýsingum sem þar komu fram.“
Í eftirlitsskýrslu úr heimsókninni sem Þóra vísar til eru frávik tilgreind á búinu, varðandi stærð rýmis en í skýrslunni segir að svínabúið uppfylli ekki skilyrði um velferð svína hvað varðar húsakost. Stjörnugrís hefur sótt um undanþágu sem veitt var heimild fyrir árið 2024, með breytingu á reglugerð um velferð dýra og gildir til 1. janúar 2028. Þar segir að veiting á fresti sé háð því að framleiðandi leggi fram gögn sem sýni fram á að hann hafi sannanlega gripið til ráðstafana til að uppfylla kröfur ákvæðanna en ekki orðið ágengt af ástæðum sem eru ekki á ábyrgð framleiðanda sjálfs.
Þóra segir að hún viti til þess að rannsókn á þeim atriðum sem talið var að þyrfti að skoða sérstaklega í myndbandinu sé í ferli. „Úrræði Matvælastofnunar ef í ljós kæmi að brotið væri gegn ákvæðum reglugerðarinnar – og laga um velferð dýra – þá er krafist úrbóta innan ákveðins frests, nema ef úrbætur þola ekki bið. Lengd frests sem gefinn er til úrbóta fer eftir alvarleika og ætluðum áhrifum á dýrin. Ef ekki er orðið við kröfum um úrbætur þá er hægt að beita þvingunarúrræðum sem fram koma í lögum um velferð dýra, svo sem að beita dagsektum, láta framkvæma úrbætur á kostnað umráðamanns, takmarka eða stöðva starfsemi og í allra alvarlegustu tilfellunum fjarlægja dýr,“ útskýrir hún.
