Einu sinni héldum við að Jörðin væri flöt, og sumir halda það jafnvel enn
Mynd / Luke Stackpool, unsplash
Skoðun 24. nóvember 2026

Einu sinni héldum við að Jörðin væri flöt, og sumir halda það jafnvel enn

Höfundur: Stefán Tryggva- og Sigríðarson.
Stefán Tryggva- og Sigríðarson.

Það er erfitt fyrir okkur nútímafólk, sem teljum okkur vel upplýst og skynsöm, að setja okkur í spor almennings á öldum áður þegar fáfræði, fals og hindurvitni einkenndi daglegt líf fólks. Veraldlegir og trúarlegir leiðtogar lögðu almúganum línur og sjálfstæð hugsun átti ekki upp á pallborðið. Því betur hafa tímarnir breyst og flestir aðhyllast nú viðurkennda vitneskju sem byggir á upplýstri umræðu ekki síst varðandi mannréttindi og önnur stjórnarskrárbundin réttindi. Þó er það svo að enn finnast dæmi um viðhorf sem minna helst á hinar myrku miðaldir.

Sagan

Sennilega hafa allir núlifandi Íslendingar vanist því að sjá sauðfé ganga laust um fjöll og firnindi yfir hásumarið en einnig á vegsvæðum og á láglendi í byggð. Þó íslensk lög styðji með engum hætti þessa skipan mála þá hefur sauðfjárbændum, forsvarsmönnum þeirra, einstökum sveitarstjórnum og jafnvel afurðasölufélögum bænda tekist að halda því að þjóðinni að svona hafi þetta alltaf verið og því verði ekki breytt. Roaming Free Since 874!!!

Það má hafa skilning á hvernig mál þróuðust með þessum hætti. Á fyrri hluta síðustu aldar lögðust fráfærur af, gaddavírinn og síðan girðingarnet komu til sögunnar og síðast en ekki síst var fé á nær hverjum bæ fram eftir öldinni. Augljóst hagræði var af því að girða úthaga jarðanna af með samgirðingu og smala síðan sameiginlega og draga í sundur að hausti. Um og upp úr miðri öldinni fór Alþingi að setja lög um búfjárhald, fjallskil og girðingar, sem byggðu á þessari skipan mála og virðist þá í engu hugað að eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar né annarri lagasetningu sem heimilaði framsal eignarréttinda. Reglugerðir byggðu iðulega á veikum lagagrunni og sveitarstjórnum og sýslunefndum voru veittar heimildir sem enga lagastoð áttu og fjallskilasamþykktir geyma trúlega bestu dæmin um hvernig hagsmunaaðilum einnar búgreinar tókst að festa í sessi skipan mála sem brýtur á öðrum þegnum þessa lands og virðir rétt þeirra að vettugi.

En það eru breyttir tímar. Sauðfjárhald á bújörðum hefur dregist verulega saman og fjárjörðum fækkað. Að sama skapi hefur fjölbreyttari landnotkun annarra landeigenda færst í aukana og síðast en ekki síst hefur ræktun á láglendi stóraukist og er reyndar orðin mun meiri en núverandi þörf er á. Því skyldi maður ætla að allar forsendur væru til breyttra búskaparhátta sauðfjárbænda í átt til aukinnar láglendisbeitar á eigin landi. En það er öðru nær. „Meðan ég kemst upp með að beita á aðra, held ég því áfram ævina út,“ virðist vera mottó hins lánlausa íslenska sauðfjárbónda sem tapar með hverju árinu, ekki bara peningum (að eigin sögn) heldur tiltrú og virðingu þjóðarinnar.

Lögin

Eftir stendur að hvergi í íslenskum lögum er heimild til að beita búfé á annarra land. Þó slíkt hafi viðgengist árum og áratugum saman er um venju að ræða en ekki lög. Telji einhverjir að hefð sé komin á slíka landnotkun er það búfjáreigenda að fá slíka hefð viðurkennda fyrir dómstólum, það gerist ekki sjálfkrafa. 

Í 72. gr. stjórnarskrárinnar segir að eignarrétturinn sé friðhelgur og að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji og að skýr lagafyrirmæli þurfi til. Löggjafinn hefur í ýmsum lögum veitt heimild til að beita þessum undanþágum. Nægir að nefna skipulagslög, þegar sveitarfélög telja sig þurfa aukið land undir þéttbýli, vegalög sem heimila eignarnám vegna vegaframkvæmda og orkulög sem með sama hætti getur þurft að beita til að línur og lagnir í almannaþágu megi leggja um eignarlönd.

Almennt má ætla að löggjafinn hafi sömu sjónarmið í huga þegar um nýtingu hvers konar er að ræða en ekki beint eignar- eða leigunám. Í náttúruverndarlögum eru t.a.m. skýr ákvæði um almannarétt og þær skorður sem honum eru settar, þ.m.t. til að fara um lönd einkaaðila og ítarlega útlistað hvort megi tjalda, tína ber o.s.frv. Í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum er öllum íslenskum ríkisborgurum og ríkisborgurum erlendra ríkja með lögheimili hér á landi, einungis heimilar dýraveiðar í almenningum og á afréttum utan landareigna lögbýla, enda geti enginn sannað eignarrétt sinn til þeirra. Einungis landeigendum eru heimilar veiðar á eigin landi.

Þurfum við frekari vitna við? Auðvitað hefur löggjafinn engar forsendur til að fara öðruvísi með beitarréttindi. Það verður að virða eignarréttinn og þó mýtan um að sauðféð hafi haldið þjóðinni á lífi í ellefu hundruð ár sé lífseig (en röng) þá dugir það ekki til að gera sauðfjárbeit undanþegna lögum.

Vissir þú

  • að það er ekkert í íslenskum lögum sem heimilar bændum að beita land annarra án samninga
  • að ekki er hægt að leyfa lausagöngu því lausaganga er þegar búfé getur gengið í annars manns land í óleyfi samkvæmt skilgreiningu laga
  • lausaganga er því í eðli sínu óleyfisaðgerð, líkt og þjófnaður, sem hvorki er hægt að leyfa né banna
  • að í lögum er kveðið skýrt á um umferðarrétt almennings um eignarlönd, heimildir til að tjalda og tína ber svo dæmi séu tekin
  • að til að víkja frá stjórnarskrárvarinni friðhelgi eignarréttarins þarf sérlög, fullar bætur og aðgerðin þarf að vera í almannaþágu
  • ellefta boðorðið um hina heilögu sauðkind komst aldrei á leirtöfluna hjá Móses, hvort sem um var að kenna plássleysi eða ritskoðun, það er ekki vitað.

Höfundur er aðallega aðgerðalaus aðgerðasinni.

Einu sinni héldum við að Jörðin væri flöt, og sumir halda það jafnvel enn
Skoðun 24. nóvember 2026

Einu sinni héldum við að Jörðin væri flöt, og sumir halda það jafnvel enn

Það er erfitt fyrir okkur nútímafólk, sem teljum okkur vel upplýst og skynsöm, a...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 20. nóvember 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Fyrir ári síðan eða svo var hér baulað nokkuð á áherslu ríkisstjórnarinnar á upp...

Stjórnvöld í lið með Riddurum rauða drekans!
Skoðun 20. nóvember 2026

Stjórnvöld í lið með Riddurum rauða drekans!

Ein spurning fylgdi okkur á alla fundi í hringferð Bændasamtakanna nú í nóvember...

Staðreyndir um dýraveferð
Skoðun 20. nóvember 2026

Staðreyndir um dýraveferð

Enn og aftur urðu innbrot í bú íslenskra bænda tilefni til almennrar umræðu og f...

Ræða við opnun Landbúnaðarsýningarinnar
Skoðun 17. nóvember 2026

Ræða við opnun Landbúnaðarsýningarinnar

Herhvöt Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands, í ljóði sínu Aldamótin er en...

Ef við værum Kjarval, væri þá hlustað?
Skoðun 16. nóvember 2026

Ef við værum Kjarval, væri þá hlustað?

Jóhannes S. Kjarval hafði vinnustofur á ólíkum stöðum á sínum langa myndlistarfe...

Fæðuöryggi byrjar í moldinni
Skoðun 13. nóvember 2026

Fæðuöryggi byrjar í moldinni

Á loftslagsdeginum í Hörpu tók ég þátt í málstofu um fæðuöryggi þar sem ég fjall...

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?
Skoðun 13. nóvember 2026

Hvað þarf Ísland mörg gagnaver?

Fréttir af veldisvexti gagnavera og vaxandi ásókn í náttúru nágrannalanda fyrir ...