Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson og Hlynur Steinsson. Er þetta í fyrsta skipti sem keppnin er haldin en um er að ræða árlegan viðburð.
Þemað í ár var Líf í mýri og var áhugaljósmyndurum, sem og fagfólki, boðið að taka þátt í myndasamkeppni sem endurspeglaði einstakt lífríki votlendis á Íslandi sem gegnir lykilhlutverki í að varðveita líffræðilega fjölbreytni, binda kolefni og skapa búsvæði fyrir fjölmargar fugla- og dýrategundir. Mýralíf leitaði að myndum og myndböndum af fuglum, plöntum og landslagi – sem og dýrum og fólki í þessu mikilvæga og stórbrotna vistkerfi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fuglavernd.
Vilhjálmur Svanberg Arngrímsson þótti eiga bestu myndina en titill hennar er „Tilbúinn til flugs“. „Myndin sýnir jaðrakan að hefja sig til flugs í mýri, rétt við Tungurif í Patreksfirði. Viðfangsefnið á einstaklega vel við þar sem jaðrakan er einkennisfugl mýralífs og votlendis á Íslandi“, segir í fréttatilkynningunni. Aukaverðlaun hlaut Hlynur Steinsson fyrir myndina „Fuglaþúfa“ sem tekin var við Fellsenda á Mosfellsheiði. „Myndin þótti fanga einstaklega vel þá stemningu sem fylgir mýri og votlendi. Myndin er grípandi og dáleiðandi í senn.“
Piia Tomingas hlaut einnig verðlaun fyrir myndband með titlinum „Tveir tjarnartígrar – starbyttur (Agrypnia picta)“ sem tekið var upp á Mýrum. „Myndbandið er af starbyttum, rándýrum mýrartjarnarinnar, í leit að næstu máltíð. Það sýnir glögglega að ekki er allt sem sýnist í votlendi og að finna megi þar fjölbreytt líf. Hægt er að skoða það á YouTube-rás Mýralífs.“
Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi.
