Lögmál náttúrunnar umlykja skólastarfið
Alþjóðlegt menntaverkefni, The Harmony Project, hefur að markmiði að tengja nemendur betur við umhverfi sitt og læra af náttúrulegum ferlum. Liður í því er samstarf skóla við bændur þar sem börnin kynnast matvælaframleiðslu með heimsóknum á bóndabýli. Harmony verkefnið byggir á hugmyndinni um að með því að læra af lögmálum náttúrunnar færumst við nær heilbrigðara og sjálfbærara lífi.
Verkefnið hefur þegar reynst vel í yfir 50 breskum skólum, skotið rótum vestan hafs, á Indlandi, í Afríku, Úkraínu og teygir nú anga sína til Íslands. Blaðamaður hitti Richard Dunne, fyrrverandi skólastjóra, stofnanda og framkvæmdastjóra verkefnisins og Svandísi Egilsdóttur, tengilið verkefnisins á Íslandi. Saman funduðu þau með ýmsum aðilum, meðal annars fræðslustjórum landsins, til að kynna hugmyndafræði verkefnisins, bjóða upp á samstarf og leggja drög að fyrstu skrefum þess á Íslandi.
Tuttugu bóndabýli lýsa leiðina
Mikilvægur hluti verkefnisins er samstarf skóla við bændur. Nemendahópar heimsækja býli sem taka þátt í verkefninu með kennurum sínum. Bændur sem taka á móti þeim fá þjálfun í móttöku hópa og þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að bærinn geti tekið þátt og verið formlegur vettvangur náms.
„Þetta er samspil margra þátta sem snúa bæði að menntun, matvæla- og landbúnaðarmálum. Maður verður að upplifa verkefnið til að trúa hvernig það virkar.“
Verkefni eru útbúin fyrir hvert býli og nemendahóp sem fær hefti með verkefnum til að leysa á staðnum og taka með sér aftur í skólann og heim. Þau fá til dæmis að gera jarðvegsprófanir, hitta dýrin á bænum og skoða ræktun og búskaparhætti.
Annar hluti verkefnisins er að taka á móti kennarahópum og skólastjórnendum á bæina.
Fimm býli eru nú að bætast í hóp þeirra tuttugu sem þegar starfa með þessum hætti á Bretlandi og lýsa leið þeirra sem á eftir koma.
Lögmál náttúrunnar leiðarljós
„Þetta snýst um að skoða aftur og nýta náttúruleg kerfi sem við höfum þekkt lengi og endurhugsa hvernig við getum lært af þeim með tilliti til menntunar framtíðarinnar,“ segir Richard. Verkefnið byggir á hugmyndinni um að unga fólkið eigi að geta lifað góðu lífi, en til þess þurfi jörðinni líka að líða vel, menntun sé þar í lykilhlutverki.
Richard rifjar upp hvað hann eyddi miklum tíma í nærliggjandi skógi í frítíma sínum sem krakki. Hann var í hefðbundnum breskum bóknámsskóla og þegar hann fullorðnaðist fékk hann áhuga á hvernig mætti samþætta þessar tvær ólíku leiðir til náms.
Leiðangrar á Suðurskautslandið veittu innblástur
Richard kynntist og varð stjórnarmaður í stofnun Jane Goodall, sem hann segir mikinn áhrifavald í lífi sínu (þið munið eftir myndskeiðinu þegar simpansinn á leið sinni aftur út í skóg sneri við og faðmaði hana). Þar hitti hann heimskautafarann Robert Swan sem bauð honum með í alþjóðlega leiðangra á Suðurskautslandið. Ferðirnar eru hannaðar til að hvetja kennara og stjórnendur til að vinna að loftslagsaðgerðum heima fyrir.
Tveir vel heppnaðir leiðangrar urðu innblástur að því að skoða matvælakerfi heimsins. Richard, sem var skólastjóri í 18 ár, ákvað að leggja áherslu á að bjóða nemendum upp á lífrænan mat. Hann segir fjármagn hafa verið lítið, nemendur um 500, og skapandi lausna því þörf, til að geta fylgt hugmyndinni eftir. Tækifæri gafst á ræktun við skólann og hann ákvað að leggja áherslu á hvaðan maturinn kemur, sem hægt væri að tengja við ýmsar námsgreinar.
Hver árgangur með sitt hlutverk
Hugmyndir um heilbrigði og sjálfbærni tvinnuðust inn í allt starf skólans. Sjötti bekkur lærði til dæmis um og fylgdist með orkunotkun skólans, fjórðu bekkingar fylgdust með matarsóun, unnu með starfsfólkinu í mötuneytinu, skrásettu, settu reglur, markmið og urðu eins konar „matarlöggur“,“ segir Richard hlæjandi, þau hafi verið ótrúlega flink. Mörkin á milli þess sem krakkarnir lærðu í skólastofunni og utan hennar máðust út. Sjálfbærnimarkmið tengd samfélagi og umhverfi voru sett í sérhverju verkefni skólans.
Prins, skólastjóri og bóndi tengjast
Það kom svo að því að Richard las bókina, Harmony: A new way of looking at our world, þar sem fjallað er um umhverfisvanda heimsins sem skynjunarvanda, aftengingu mannsins frá náttúrulegum hringrásum. Í lestrinum fann hann algeran samhljóm með eigin hugmyndum og ákvað að nota bókina til að skerpa fókusinn í skólastarfinu.
Höfundur bókarinnar var prins, nú hans hátign Karl III Bretakonungur. Richard ákvað að skrifa honum og bjóða honum í heimsókn í skólann. „Hann kom og elskaði það sem hann sá.“ Bretakonungur hefur síðan stutt við verkefnið.
Leiðir Richards lágu því næst saman við lífrænan kúabónda í Wales, Patrick Holden, sem nú stýrir The Sustainable Food Trust í Bretlandi. Gagnkvæmur áhugi þeirra á starfssviði hins og mikill samhljómur, leiddi til samtals um bújarðir sem vettvang náms, sem átti eftir að móta sér gjöfulan farveg.
Sá hluti Harmony-verkefnisins sem snýr að heimsóknum nemenda til bænda varð hluti af The Sustainable Food Trust, þar til fyrir tveimur árum þegar það flaug úr hreiðrinu og varð að sjálfstæðri góðgerðarstarfsemi.
Vöxtur í menntakerfinu
„Við Richard hittum fólk úr skólakerfinu, en einnig aðila úr öðrum geirum sem vinna með náttúruna, menntun, sköpun, sjálfbærni og samfélagsþróun,“ segir Svandís. „Markmiðið var að byrja að mynda tengslanet og leita að samstarfsaðilum sem vilja taka þátt í að þróa verkefnið á Íslandi með okkur.“
Svandís segir aðferðafræðina henta vel hér á landi og þegar séu vísar að henni notaðir í sumum skólum, svo sem þegar nemendur heimsækja bæi í sauðburði, kleki út egg á páskum eða rækti grænmeti á skólalóðinni. Hún segir rökrétt að byrja að hugsa markvissara í þessa átt, sér í lagi í dreifðum byggðum. „Við búum að venjum sem við getum byggt á. Á Íslandi er náttúran stór hluti af lífi okkar. Við getum nýtt hana til vaxtar í menntakerfinu.“
Aðspurður um áskoranir segir Richard þær að miklu leyti hafa með sjálfstraust kennara að gera. Hann segir góðan stuðning við kennara og það að hafa trú á þeim gera mikið. Stuðningurinn getur falist í verkfærum til kennslu og hugmyndafræðinni sjálfri, sem er styrkurinn í verkefninu að mati Svandísar.
Aðalnámskrá góður grunnur
„Aðalnámskrá íslenskra skóla er að mörgu leyti mjög góður jarðvegur fyrir slíka þróun innan skólakerfisins, enda er þar lögð áhersla á meðal annars heilbrigði, sköpun, sjálfbærni, lýðræði og tengsl náms við samfélag og umhverfi,“ Svandís þekkir aðalnámskrána og aðstæður íslenskra skóla vel, starfaði enda undanfarin ár á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og var áður skólastjóri í leik-, grunn- og tónlistarskólanum á Seyðisfirði og á Borgarfirði eystra.
Skólinn sem Richard stýrði í 18 ár var fyrir hefðbundinn skóli og umbreytingin róttæk. Niðurstaða hvers verkefnis snérist ekki bara um námsmat, heldur nýja sýn á heiminn, hvað nemendur vildu sjá í honum og hvað þau gætu lagt til. Fólk fór að flytja í hverfið svo börnin þeirra gætu orðið þátttakendur í þessu ferðalagi, meðal annars vegna námsárangurs og vellíðunar nemenda.
Eftirsótt að taka þátt
Richard segir það orðið eftirsótt að taka þátt í verkefninu og þeirri hreyfingu sem það er orðið að. Áhugi bænda snúi í sumum tilfellum að kynslóðaskiptum og þátttaka nýtist til að leggja enn meiri áherslu á heilnæma búskaparhætti.
Hann bendir einnig á að verkefnið geti hentað vel þar sem fólk glímir við mikla erfiðleika, svo sem í fangelsum og meðferðum við flóknum geðrænum áskorunum þar sem sterk tenging við náttúruna getur hjálpað. Hann segir þau vera að vinna verkefni núna á Broadmoor-geðsjúkrahúsinu suðvestur af London sem nýverið var endurgert. Þar sé verið að skoða leiðir til aukins bata með upplifunum í umhverfi spítalans.
Áhugasamir velkomnir í samtalið
Richard segir gleðilegt að segja frá því að háskólinn í Cambridge muni rannsaka og fylgjast með hvernig skólunum gengur.
„Við erum að þreifa fyrir okkur núna. Ég myndi ganga svo langt að segja að það sé þegar ákveðin skuldbinding til staðar.“ Svandís segir drauminn vera að fá fleiri áhugasama inn í samtalið nú á fyrstu misserum og byggja saman upp tengsl og miðstöð fyrir verkefnið á Íslandi. Þrír skólar eru þegar þátttakendur í tilraunafasa. „Við viljum opna samtalið og bjóða þeim sem hafa áhuga, hvort sem það eru bændur, kennarar, skólastjórnendur eða aðrir, að taka þátt í að móta hvernig Harmony-hugmyndafræðin getur nýst í íslensku samfélagi.“
