Rúnar Örn
Nafn: Rúnar Örn Andrason.
Aldur: 10 ára síðan 18. apríl sl.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Við búum í Flögu í Skriðdal.
Skemmtilegast í skólanum: Útinám, íþróttir og frjáls leikur.
Áhugamál: Öll sveitastörf og tæki sem tengjast landbúnaði.
Uppáhaldsdýrið: Kindur og hundar.
Uppáhaldslitur: Dökkblár.
Uppáhaldsmatur: Folaldakjöt.
Uppáhaldslag: Sumarið.
Uppáhaldsmynd: Þrjótarnir 2.
Fyrsta minningin: Þegar ég var þriggja ára og fór með afa mínum í útiverkin og ég krækti aftur hurðinni að utanverðu, svo aumingja afi var læstur inni í kofanum.
Hvað ertu ánægður með í fari þínu: Hvað ég er vinnusamur og samviskusamur.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Ferðalagið til Noregs síðasta sumar.
Hver er fyndnastur sem þú þekkir: Pabbi minn.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Bóndi í Flögu með kindur, hunda, kanínur, kött og nautgripi.
Áttu þér einhverja fyrirmynd? Já, pabba minn.
Viltu taka þátt?
Hafðu samband. sigrunpeturs[hjá]bondi.is
