Handtökur vegna innbrots
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fólk sem grunað er um að tengist innbroti á minkabú í Mosfellsdal í sumar. Fólkið hefur verið yfirheyrt. Unnið er að því að yfirfara síma- og tölvugögn, en enginn hefur verið vistaður í gæsluvarðhald. Vísir greindi fyrst frá.
Ekki fengust nánar upplýsingar um málið hjá lögreglunni þegar eftir því var leitast. Í samtali segist Ásgeir Pétursson, minkabóndi í Helgadal í Mosfellsdal, ekki hafa heyrt neitt um gang málsins umfram það sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum.
Á búinu í Helgadal voru um 12.000 minkar í 6.000 minkabúrum. Ásgeir segir að innbrotsþjófarnir hafi opnað meira en 5.000 búr og sleppt út 10.000 dýrum. Þeir minkar sem ekki drápust voru settir aftur í búr, en bóndinn bendir á að núna séu á bilinu 8 til 9 þúsund ókunnug dýr saman í búrum sem getur leitt af sér áflog. „Við reynum að stilla til friðar, en náum því ekki því að átökin eru stundum á nóttunni þegar við erum ekki á staðnum. Á morgnana komum við því að dýrunum löskuðum og sum deyja í áflogunum. Þau dýr sem slasast illa og við getum ekki bjargað verða bara að fara,“ segir Ásgeir.
„Ég ætla ekki að láta glæpamenn stoppa mig af,“ svarar bóndinn aðspurður um hvort til standi að byggja búskapinn upp að nýju. „Ég vona að eitthvað af þessu fólki finnist og það upplýsi hvað það hugsaði sér, því að það voru engin dýraverndunarsjónarmið í þessu.
Dýrin hafa það djöfullegt, en á milli 500 og 600 dýr hafa dáið í öllum þessum óskapnaði. Þetta er að mínu mati glæpaverk gagnvart dýrunum og hefur valdið okkur bændunum tilfinningalegu tjóni. Mestu dýraverndunar- og umhverfisverndarsinnar sem ég veit um eru bændur því að þeir verða að lifa af því að dýrunum líði vel og náttúran í kringum þá verður að vera í lagi. Ef þeir koma ekki vel fram við dýrin og umhverfið fá þeir engar afurðir. Ef dýrunum líður illa þá líður bændunum illa,“ segir Ásgeir.
