Eintak af nýrri útgáfu Brennu-Njálssögu sem kemur út 20. nóvember næstkomandi.
Eintak af nýrri útgáfu Brennu-Njálssögu sem kemur út 20. nóvember næstkomandi.
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

– „Tökum þetta veigamikla verkefni mjög alvarlega,“ segir Guðni Ágústsson

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaður útgáfudagur er 20. nóvember. Um er að ræða þá annáluðu framsetningu sem Jón Böðvarsson útbjó með vönduðum orðskýringum sínum fyrir um hálfri öld síðan en að þessu sinni með ríflega 50 litríkum myndum Þórhildar Jónsdóttur frá Lambey í Fljótshlíð.

Njálufélagið var stofnað 2025 að frumkvæði Guðna Ágústssonar, fyrrverandi alþingismanns og landbúnaðarráðherra. Mynd / mhh.

Guðni Ágústsson er formaður Njálufélagsins en tilgangur þess er að hefja Brennu-Njáls sögu til þeirrar virðingar sem henni ber í íslenskum bókmenntum og stuðla með því að varðveislu íslenskrar tungu og menningararfs þjóðarinnar. „Við tökum þetta veigamikla verkefni mjög alvarlega og leyfum okkur að hugsa stórt um mörg metnaðarfull viðfangsefni,“ segir Guðni.

Verður í hnakk 22. ágúst

Næsta stóra verkefni félagsins er Njálureið 22. ágúst þar sem Hermann Árnason verður leiðangursstjóri. „Við erum á vissan hátt að endurtaka brennureið Njáluvökunnar á síðasta ári. Þá riðu 99 skikkjuklæddir knapar í slóð Flosa Þórðarsonar þegar hann safnaði liði og bar eld að Bergþórshvoli. Í þetta sinn verður lagt upp frá Fljótshlíðarrétt og riðið í Káragerði. Hermann Árnason, sá mikli garpur, leiðir reiðina og þeir Friðbjörn Garðarsson og Lárus Ágúst Bragason segja frá atburðum, Flosa og hans mönnum og lýsa viðbrögðum Njálssona og brennunni og afleiðingum hennar. Reiðin tekur um fjórar klukkustundir og í lok hennar er sest að snæðingi og góðri skemmtan sem Hlynur Snær Theódórsson mun leggja grunn að með söng sínum og gítarleik. Fólk getur skráð sig í reiðina á vef okkar, njalufelagid.is, og jafnframt keypt sér þar Njáluskikkju gegn vægu verði,“ segir Guðni aðspurður um reiðina en sjálfur segist hann ætla að vera í hnakk og taka þannig þátt í reiðinni.

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu

Eitt af stóru verkefnum Njálufélagsins er að gefa út nýja útgáfu af Brennu-Njálssögu en þetta verður viðhafnarútgáfa af bókinni í gamalli og vandaðri gerð Jóns Böðvarssonar. „Við erum um þessar mundir að bjóða hana í forsölu á sérstökum vildarkjörum. Þeir sem styrkja okkur með slíkum kaupum fá nafn sitt skráð á heillaóskalista í bókinni, Tabula Gratulatoria, og við erum einnig að vonast til þess að sem flestir þeirra gerist félagar í Njálufélaginu.

„Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, sagði Kári Sölmundarson og Njálufélagið er þar engin undantekning. Takist okkur að safna góðum fjölda félagsmanna eykst þróttur raddar okkar og sömuleiðis fjárhagslegur styrkur,“ segir Guðni.

Málþing í haust

Þegar Guðni er spurður út í næstu verkefni félagsins er hann fljótur til svars. „Já, við höfum sett stefnuna á myndarlegt málþing í haust um Brennu-Njálssögu og hyggjumst líka hefja undirbúning að frekari bókaútgáfu sem tengist Njálu og gæti t.d. nýst vel fyrir íslenskukennslu framhaldsskólanna. Við megum ekki til þess hugsa að Njála hverfi með öllu út úr framhaldsskólastiginu og höfum ákveðnar hugmyndir í þeim efnum sem of snemmt er samt að ræða enn þá. Svo látum við okkur m.a. dreyma stóra drauma um alls kyns merkingar og fleira á Njáluslóðum og hyggjumst fjárfesta í nauðsynlegri hugmyndavinnu og stefnumörkun sem því tengist. Það skortir sem sagt ekki hugmyndirnar og um þessar mundir erum við líka að safna liði nokkurra bakvarða í atvinnulífinu til þess að styðja okkur til góðra verka,“ segir Guðni.

4.500 króna árgjald

Guðni hvetur fólk til að skrá sig í Njálufélagið. „Já, já, við fögnum hverju einasta nafni sem skráir sig í félagið og besta leiðin til þess er að fara inn á vefinn okkar, njalufelagid. is. Árgjaldið er 4.500 krónur og það er gaman að segja frá því að í kjölfar Njáluvökunnar skráðu yfir hundrað manns sig í félagið án þess að við auglýstum með nokkrum hætti eftir félögum. Það sýnir enn og aftur hvað fólki þykir vænt um þessa merku bók,“ segir Guðni.

Trúir Njálu frekar en að tortryggja

Guðni er að lokum spurður hvort hann vilji koma einhverju sérstöku á framfæri? „Já, ég nefni það í formála mínum í þessari nýju bók að hróður Njálu nái til allra heimshorna. Stærsta rósin í hnappagat þessa einstaka bókmenntaverks er e.t.v. frá árinu 2002 þegar hinn rótgróni Norski bókaklúbbur bað hundrað þekkta rithöfunda í 54 löndum að nefna merkustu bækur sem skrifaðar hefðu verið frá upphafi ritlistar. Afraksturinn varð listi yfir 100 merkustu bækur allra tíma um allan heim. Ísland átti tvær bækur á listanum: Sjálfstætt fólk Laxness og Brennu-Njálssögu, sem þar settist á bekk með Ódysseifskviðum og Hamlet, hugvitssama riddaranum Don Kíkóta og rithöfundum á borð við Dostojevskíj, Franz Kafka og Leo Tolstoy,“ segir Guðni og bætir strax við: „Höfundur Njálu komst hins vegar sjálfur ekki á blað enda óþekktur og enn þá tilefni til alls kyns getgánta og vangaveltna um hvort hann var einn að verki eða fleiri, rétt eins og menn deila um hvernig blanda Njála sé af skáldskap og raunveruleika. Sjálfur hef ég alltaf notið þess að trúa Njálu frekar en að tortryggja. Ég er líka sannfærður um að í því þrekvirki sem unnið var við ritun sögunnar hafi nærvera og leiðsögn sagnaritarans Snorra Sturlusonar, fyrst í menntasetrinu í Odda og síðan í Reykholti, skipt miklu máli. Það er gaman að lesa Njálu og enn þá skemmtilegra ef maður trúir hverju einasta orði sem í henni stendur.“

Skylt efni: fornbokmenntir

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...

Rannsóknasetur íslenska hestsins
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsóknasetur íslenska hestsins

Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjalta...

Rekstrargrundvöllur Fjallalambs tryggður
Fréttir 17. ágúst 2026

Rekstrargrundvöllur Fjallalambs tryggður

Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, og breski fjárfestirinn Jim Ratcliffe ...

Margfalt dýrari fyrir landsbyggðarfólk
Fréttir 17. ágúst 2026

Margfalt dýrari fyrir landsbyggðarfólk

Íbúar höfuðborgarsvæðisins taka því líklega sem sjálfsögðum hlut að þurfa ekki a...

Úrslit Landsmóts 2026
Fréttir 17. ágúst 2026

Úrslit Landsmóts 2026

Landsmót hestamanna fór fram dagana 5.–11. júlí sl. en sigur- vegarar mótsins vo...

Fundaröð Bændasamtakanna um ESB hefst í dag
Fréttir 16. ágúst 2026

Fundaröð Bændasamtakanna um ESB hefst í dag

Bændasamtök Íslands standa fyrir opnum fundum dagana 16. - 18. ágúst þar sem kyn...