Rannsóknasetur íslenska hestsins
Nú er unnið að því að koma upp rannsóknasetri íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð á Landsmóti hestamanna í sumar.
Rannsóknasetrið verður hluti af stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands (HÍ), sem samkvæmt stofnsamningi nýrrar háskólasamstæðu Háskóla Íslands mun flytjast til HÍ á Hólum.
„Rannsóknasetrið verður mikil lyftistöng fyrir Háskóla Íslands á Hólum innan háskólasamstæðunnar og skapar öflugan vettvang fyrir rannsóknir, fræðslu og miðlun. Jafnframt styrkir það vísindalega þekkingu á íslenska hestinum, einni dýrmætustu þjóðargersemi okkar, og skapar ný tækifæri til samstarfs og þekkingarsköpunar sem nýtast bæði íslensku samfélagi og alþjóðlegu fræðasamfélagi,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Vandaðar rannsóknir
Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra var einn af þeim sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna. „Íslenski hesturinn er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, atvinnulífi, ferða- þjónustu, íþróttum, sögu og menningu. Hann er líka viðfangsefni sem kallar á vandaðar rannsóknir, þverfaglega nálgun og öfluga miðlun þekkingar,“ segir Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við undirritun yfirlýsingarinnar. „Það er vel við hæfi að Háskóli Íslands stofni rannsóknasetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal í góðu samstarfi við ríki og sveitarfélag. Þannig verður sérstaða svæðisins að uppsprettu nýrrar þekkingar fyrir samfélagið allt og út í heim,“ bætti ráðherra við.
Vagga menntunar
Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum, segir að rannsóknasetrið verði ekki aðeins það fyrsta hjá Háskóla Íslands sem tengist íslenska hestinum heldur jafnframt það fyrsta sem hafi bein tengsl við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans.
„Það er afar mikilvægt að við Íslendingar höldum áfram að sinna því forystuhlutverki sem við höfum haft í rannsóknum og menntun um íslenska hestinn og byggjum undir þessa starfsemi með rannsóknum og öflugu fólki, íslenska hestinum til heilla. Mér finnst sérlega ánægjulegt að það verði gert undir hatti Stofnunar rannsóknasetra HÍ hér á Hólum þar sem vagga menntunar og rannsókna íslenska hestsins er,“ segir Hólmfríður.
