Rekstrargrundvöllur Fjallalambs tryggður
Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, og breski fjárfestirinn Jim Ratcliffe hafa nú fjárfest í Fjallalambi á Kópaskeri og tryggt rekstrargrundvöll þess, en þeir eiga báðir jarðir á Norðausturlandi.
Sala á vörum undir merkjum Fjallalambs sem rekur sláturhús og kjötvinnslu hefst brátt aftur. Fyrirtækið stóð í rekstrarörðugleikum og fyrir lá að Byggðastofnun ætlaði ekki að afskrifa hluta af skuldum fyrirtækisins við stofnunina. „Við höldum félaginu gangandi og rúmlega það,“ segir Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs.
Tveir fimmtungs hluthafar
„Við töluðum við Guðmund því við þekktum hann og hann hefur tengingu við svæðið og vill styðja við það. Þó fyrirtækið hafi skilað hagnaði í fyrra þá er þetta þungur rekstur og skiptir verulegu máli að vera með sterka bakhjarla.“
Víkingur segir hvorn fjárfesti um sig eiga fimmtungs hlut í fyrirtækinu. „Þeir eru ekki með ráðandi hlut, þeir vilja að við stýrum þessu. Við höfum gert það síðan 1990.“
Fjallalamb hefur séð um slátrun á undanförnum árum, en Norðlenska hefur keypt af Fjallalambi allt kjöt og selt undir sínum merkjum. Fjallalamb slátrar um 23 þúsund fjár á hverju hausti. „Við erum á fullu í undirbúningi fyrir sláturtíð og dembum okkur í það,“ sagði Víkingur kampakátur í samtali við blaðamann.
Framtíðarstefna mörkuð
„Nú getum við farið að marka framtíðarstefnu félagsins,“ segir Víkingur en Fjallalamb sérhæfir sig í lambakjöti. Hann segir áhyggjuefni hvað sauðfjárbændum fer fækkandi, „ekki síst hvað varðar fæðuöryggi“.
Víkingur segir gríðarlega uppbyggingu vera á Kópaskeri. „Þetta skiptir svakalegu máli fyrir svæðið í heild sinni. Ef við berjumst ekki fyrir því sem við höfum, heilsugæslu, verslun, læknisþjónustu, störfum og fleiru, þá er enginn sem gerir það fyrir mann. Samfélagið verður aldrei betra en fólkið sem í því býr.“
