Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust en þá verður lögð áhersla á íslensku ullina, handverk og sauðkindina með fjölbreyttum viðburðum allt frá Selfossi að Kirkjubæjarklaustri.
Flestir eru þó viðburðirnir í ullarvinnslunni á Selfossi, í Uppspuna í Ásahreppi, í Skinnhúfu í Rangárþingi ytra og í Þingborg í Flóahreppi. „Þetta er fjórða ullarvikan sem við höldum hér á Suðurlandi, Spunasystur og Þingborgarkonur fyrst og fremst, en fleiri aðilar koma að verkefninu. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt og ákveðin stígandi í bæði aðsókn og því sem boðið er upp á. Fólk kemur líka víða að til að vera með okkur og nokkrir hópar sem eru að koma erlendis frá,“ segir Hulda Brynjólfsdóttir í Uppspuna.
Hulda segir að dagskráin byggist á viðburðum sem tengjast sauðfé og ull af íslensku fé. Hægt er að sjá dagskrána á www.ullarvikan. is, „Ég vil þó nefna fjárlitasýningu í Árbæjarhjáleigu sérstaklega, sem er alltaf svo skemmtileg. Svo verða fjölbreytt námskeið og fyrirlestrar, rúningur og opið fjárhús og svo myndi ég segja að hápunkturinn sé markaðurinn sem er í félagsheimilinu í Þingborg 3. október en vikan endar með honum,“ segir Hulda og bætir við: „Markhópur ullarvikunnar er einfaldlega allir. Okkur langar að ná til bænda, prjónafólks, hönnuða, unga fólksins, þeirra sem eru miðaldra og þeirra sem hafa reynslu og þekkingu til að miðla og sjá hvað við erum að gera. Fólks sem langar að fræðast og fræða, það er fólkið sem okkur langar að fá til okkar.“
