Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áformað er að dýpka rannsóknarholu með nafninu FF-24 niður á allt að 400 metra til að kanna hvort unnt sé að skera jarðhitasprungu eða finna hærri hita en fyrri rannsóknir hafa sýnt.
Kostnaður við dýpkun holunnar er áætlaður 10–15 milljónir króna. Fjarðabyggð hefur jafnframt fengið 40 milljóna króna styrk frá Orkusjóði, sem getur numið allt að helmingi útlagðs kostnaðar við verkefnið.
„Við erum þessa dagana að ganga frá samningum við borverktaka en erum á sama tíma hóflega bjartsýn með verkefnið. Fyrri rannsóknir sýna að þetta er áhugavert svæði. Í grunnum rannsóknarholum við Gilsá mældist hitastigull allt að 160 gráður á kílómetra, sem er mjög góður hitastigull á Austurlandi. Þess vegna teljum við fulla ástæðu til að kanna svæðið betur,“ segir Svanur Freyr Arnarsson, sviðsstjóri á skipulags- og framkvæmdasviði sveitarfélagsins.
Jarðhitaleit hefur áður skilað góðum árangri á Eskifirði, þar sem 81 °C heitt vatn fannst á um 850 metra dýpi. Niðurstöður eldri rannsókna á Fáskrúðsfirði eru einnig taldar lofa góðu. Gangi rannsóknirnar vel er stefnt að borun tilraunavinnsluholu, sambærilegri við niðurdælingarholuna á Eskifirði. „Það er ekki hitaveita á Fáskrúðsfirði í dag. Möguleg hitaveita gæti veitt íbúum aðgang að staðbundinni og endurnýjanlegri orku til húshitunar. En umfang ávinningsins verður ekki metið fyrr en við vitum hversu öflugt jarðhitakerfið er. Við erum spennt að byrja og sjá hvaða niðurstöðu við fáum út úr þessum borunum,“ segir Svanur Freyr.
