Lokað er fyrir umferð á Hringveginum á meðan unnið er að viðhaldi á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum.
Lokað er fyrir umferð á Hringveginum á meðan unnið er að viðhaldi á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum.
Mynd / Jürgen Regel
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringveginn. Á virkum dögum er brúin lokuð á meðan starfsfólk er að störfum, en opnað verður fyrir umferð fjórum sinnum á dag.

Brúin er frá 1947 og er ekki hönnuð fyrir það umferðarálag sem er á henni í dag. Því hafa ýmis viðhaldsverkefni verið unnin á síðustu árum og eru fleiri fyrirhuguð. Frá þessu er greint í skriflegu svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn. Þar segir að mikil vætutíð hafi tafið verkið í sumar, en starfsmenn þurfa að mála burðarkaplana með penslum og tryggja að málningin nái í allar glufur.

Í ár er stefnt að því að ljúka við ryðhreinsun og málun allra burðarkapla auk lagfæringu á vegriðum, en töluvert er um bognar vegriðsstoðir og leiðara á brúnni. Á síðustu árum hefur verið skipt um allar legur brúarinnar og árið 2025 voru ásetur burðarkaplanna ryðhreinsuð og máluð. Á næstu árum stendur meðal annars til að ryðhreinsa og mála vegrið og stög sem tengja burðarkaplana við brúna, gera við steypu og mála stöpla, turna og akkerisfestingar, gera við steypuskemmdir á bríkum. Eins er gert ráð fyrir að halda yfirborði akbrautarinnar við með staðbundnum viðgerðum þar til ný brú verður byggð.

Í svari Vegagerðarinnar segir enn fremur að lengi hafi staðið til að byggja nýja brú á þessum stað, en hönnun nýrrar brúar lá fyrir og stefnt var að útboði árið 2014 með verklokum árið 2016. Eftir að eldgosið í Holuhrauni hófst árið 2014 voru forsendur endurskoðaðar þar sem upprunaleg hönnun tók mið af auknu umferðarálagi en ekki þeirri hættu sem getur skapast af mögulegum jökulhlaupum vegna eldsumbrota. Smíði nýrrar brúar er aftarlega í núgildandi samgönguáætlun, en samkvæmt henni gæti hún fyrst orðið að veruleika árið 2036.

Á meðan starfsfólk er að störfum milli 08:00 til 19:00 er opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag. Fyrst milli 09:45 til 10:15, þá milli 12:00 til 13:00, síðan milli 14:45 til 15:15 og að lokum frá 16:45 til 17:45. Umferð er hleypt yfir brúna til skiptis úr hvorri átt og samkvæmt Vegagerðinni hefur tekið tvær til sjö mínútur að hleypa biðröðinni yfir brúna þegar umferðin er sem mest.

Skylt efni: jökulsá á Fjöllum

Lokanir vegna viðhaldsvinnu
Fréttir 26. ágúst 2026

Lokanir vegna viðhaldsvinnu

Núna er unnið að viðgerðum á brúni sem liggur yfir Jökulsá á Fjöllum við Hringve...

Íslenskt handverk í hávegum
Fréttir 22. ágúst 2026

Íslenskt handverk í hávegum

Safnasafnið, ein af perlum Eyjafjarðar, var stofnað þann 17. febrúar 1995 af hjó...

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar
Fréttir 21. ágúst 2026

Svigrúm til breytinga á stuðningskerfi landbúnaðar

Atvinnuvegaráðuneytið hefur birt áfangaskýrsluna Greining vegna endurskoðunar st...

Beint frá býli dagurinn um helgina
Fréttir 20. ágúst 2026

Beint frá býli dagurinn um helgina

Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn 23. ágúst. Þetta er fjórða ár...

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Fréttir 20. ágúst 2026

Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis h...

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg
Fréttir 20. ágúst 2026

Ný útgáfa af Brennu-Njálssögu væntanleg

Njálufélagið undirbýr nýja og glæsilega útgáfu Njálu með haustinu en fyrirhugaðu...

Dagskrá Ullarvikunnar gleður
Fréttir 18. ágúst 2026

Dagskrá Ullarvikunnar gleður

Ullarvika verður haldin á Suðurlandi dagana 27. september til 3. október í haust...

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar
Fréttir 17. ágúst 2026

Rannsókn á jarðhitakerfi Fáskrúðsfjarðar

Fjarðabyggð undirbýr nú næsta áfanga jarðhita- leitar á Fáskrúðsfirði, en áforma...