Brotist var inn í alifuglabúið að Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun mánaðar. Meðfylgjandi mynd var tekin á Reykjabúinu síðasta haust.
Brotist var inn í alifuglabúið að Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun mánaðar. Meðfylgjandi mynd var tekin á Reykjabúinu síðasta haust.
Mynd / ál
Fréttir 11. júní 2026

Tjón unnið á kjúklingabúi

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Brotist var inn í alifuglabúið að Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt 1. júní þar sem dyr að húsum voru opnaðar og fuglar bornir út.

Jón Magnús Jónsson, bóndi á Reykjum, segir í samtali að inni í húsunum séu engin verðmæti til að stela og áætlar hann að innbrotsþjófurinn hafi aðeins ætlað að valda tjóni. Jón og hans fólk var komið snemma á vettvang og segir hann aðkomuna ekki hafa verið góða. Hann þakkar fyrir að kerfi gerði honum viðvart þegar hiti lækkaði í húsunum við það að dyrnar voru opnaðar. Jón segir afar mikilvægt að verja fuglana fyrir utanaðkomandi smiti, en með góðum sóttvörnum er heilbrigði fuglanna tryggt ásamt heilnæmi afurðanna. Slátra þurfti þeim fuglum sem höfðu verið bornir út á hlað til þess að verja aðra fugla frá smiti.

Talsverð líkindi eru milli þessa innbrots og þess sem var í svínabúi á Kjalarnesi í maí og má áætla að sömu aðilar séu þar að baki. Jón hefur verið í sambandi við aðra alifuglabændur til þess að hvetja þá til þess að auka árvekni sína, en þeir eru uggandi yfir stöðu mála. Hann hefur sjálfur farið yfir öll kerfi hjá sér til að bæta öryggi og telur hann líklegt að slíkt hið sama verði gert á öðrum kjúklingabúum. Áfallið vegna þessa hafi verið mikið fyrir Jón og hans fjölskyldu og vonast hann til þess að þetta sé ekki veruleiki sem bændur þurfi að búa við. Ekki sé ljóst hver tilgangur verknaðarins hafi verið, en Jón segir að inngrip af þessu tagi hafi ekkert með dýravelferð að gera. Þegar rætt var við Jón í byrjun þessarar viku hafði hann ekki vitneskju um hverjir stóðu að baki innbrotinu.

Í skriflegu svari við fyrirspurn segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands (BÍ), að þegar henni bárust fréttir af innbrotinu í alifuglabúið að Reykjum hafi henni fyrst og fremst verið brugðið. „Innbrot sem þessi raska ró dýranna og öryggiskennd þeirra, og slík röskun veldur streitu, hefur bein áhrif á líðan og getur haft óafturkræfar afleiðingar í för með sér. Þetta eru aðstæður sem enginn á að þurfa að upplifa – hvorki dýr né þeir sem sinna þeim alla daga ársins,“ skrifar Margrét. Hún bætir við að BÍ hafi fordæmt þessa háttsemi og að samtökin muni beita sér gegn henni.

Eins segist hún hafa áhyggjur af því að á undanförnum misserum hafa komið upp nokkur tilfelli þar sem brotist er inn í útihús bænda undir merkjum dýravelferðar. „Það verður alltaf að vera skýr lína milli skoðanaskipta annars vegar og ólögmætra innbrota og skemmdarverka hins vegar. Að stefna dýrum í hættu er fullkomlega óásættanlegt og grefur undan þeirri málefnalegu umræðu sem samfélagið þarf að eiga um dýravelferð,“ skrifar Margrét í þessu samhengi.

Skylt efni: alifuglar | innbrot

Tjón unnið á kjúklingabúi
Fréttir 11. júní 2026

Tjón unnið á kjúklingabúi

Brotist var inn í alifuglabúið að Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt 1. júní þar se...

Búvörusamningar framlengdir til 2027
Fréttir 11. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir til 2027

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...

Opnað fyrir umsóknir
Fréttir 10. júní 2026

Opnað fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslu jarðræktarstyrkja vegna ko...

Varað við kræklingatínslu
Fréttir 9. júní 2026

Varað við kræklingatínslu

Matvælastofnun varar við tínslu og neyslu á krækling sunnan og suðvestanlands. Þ...

Hátíðleg brautskráning hjá Landbúnaðarháskóla Íslands
Fréttir 8. júní 2026

Hátíðleg brautskráning hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Fjöldi nemenda brautskráðist frá Landbúnaðarháskóla Íslands 5. júní síðastliðinn...

Óku á kjörstað á gömlu dráttarvélunum sínum
Fréttir 5. júní 2026

Óku á kjörstað á gömlu dráttarvélunum sínum

Fjölskyldan á Litlu-Grund í Reykhólahreppi reynir alltaf að fara á gömlum drátta...

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 4. júní 2026

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins

Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi sýnir fram á að meirihluti...

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár
Fréttir 4. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...