Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreiti við Víðistaðatún til að rækta grænmeti og matjurtir undir handleiðslu garðyrkjufræðings.
GETA eru félagasamtök sem vinna að jákvæðu fjölmenningarlegu samfélagi þar sem boðið er upp á félagsstarf sem miðar að því að styrkja og valdefla flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Markmið verkefnisins er að skapa tækifæri fyrir fólk úr ólíkum hópum samfélagsins til að hittast og vinna saman.
Rækta grænmeti og vináttu
Þetta er þriðja árið sem verkefnið er starfrækt og tóku fimmtán fjölskyldur þátt í sumar. Hópurinn er fjölþjóðlegur en í ár voru þátttakendur frá Úkraínu, Palestínu, Sýrlandi, Venesúela, Tsjetsjeníu, Spáni, Tékklandi, Bretlandi og Íslandi.
Jorika Trundova er verkefnastjóri og leiðbeinandi hjá samtökunum GETA. Hún útskýrir í samtali að markmiðið sé að blanda saman fjölskyldum af ólíkum uppruna sem geta unnið saman að því að rækta grænmeti, vináttu og holla lifnaðarhætti.
„Við erum með tuttugu reiti sem stendur, þrír þeirra eru sameiginlegir garðar og síðan fær hver fjölskylda eigin reit. Í sumar voru fimmtán fjölskyldur sem tóku þátt í verkefninu af fjölbreyttum uppruna. Aðeins fjórar þeirra voru íslenskar og okkur þætti mjög skemmtilegt að fá fleiri íslenskar fjölskyldur með á næsta ári,“ segir Jorika.
Aðstoð garðyrkjufræðings verðmæt
Þátttakendur fá aðstoð garðyrkjufræðings við ræktunina og segir Jorika það hafa skipt sköpum. „Það hefur verið mikilvægt fyrir okkur að fá aðstoð sérfræðings sem getur leiðbeint okkur, hvað er gott að rækta og hvernig. Við erum með fjölskyldur frá til dæmis Úkraínu, Sýrlandi og Palestínu sem áttu garða í heimalandinu og stunduðu ræktun og vita þess vegna heilmikið um garðyrkju, en íslenska umhverfið og veðrið er gjörlólíkt svo það hefur reynst verðmætt að vera með garðyrkjufræðing innan handar. Svo eru auðvitað líka fjölskyldur sem hafa aldrei stundað ræktun og þurfa því að læra þetta frá grunni.“
Geðheilsa og garðyrkja
Uppskera er innblásið af sambærilegum verkefnum erlendis, ekki einungis matjurtagörðum heldur einnig félagslegum verkefnum sem miða að því að láta fólk hittast og stuðla þannig að bættri geðheilsu og inngildingu. Verkefnið er hluti af alþjóðlega verkefninu Resilient cities, healthy people sem er styrkt af Evrópusambandinu og stuðlar að því að deila reynslu og vitneskju milli samfélagsverkefna í Evrópulöndum.
„Verkefnið var sett á fót í Hafnarfirði því við tókum eftir því að flest verkefni sem snéru að fjölskyldum innflytjenda og flóttafólks voru staðsett í Reykjavík. Við vildum hafa eitthvað upp á að bjóða hér í Hafnarfirði og skapa nýjar tengingar og sambönd þvert á hópa í samfélaginu okkar,“ segir Jorika. Verkefnið hefur gengið vel og þætti þeim gaman að rækta samstarfið við Hafnarfjarðarbæ, sjá það styrkjast enn frekar og verða virkara.
„Við erum að rækta upp svæði sem var ekki í notkun svo ég tel þetta vera gott verkefni, ekki bara fyrir þátttakendur heldur fyrir samfélagið í bænum. Svæðið er bæði að líta betur út og svo erum við að nota jarðveginn og gera hann frjóan.“
Radísurnar standa sig vel
„Við ræktum radísur, þær standa sig alltaf vel, sama hvernig sumarið reynist, svo fáum við fræ frá Garðheimum sem hafa styrkt verkefnið. Ár hvert er það aðeins misjafnt hvað við fáum en við höfum til dæmis fengið bæði radísur og gulrætur,“ segir Jorika. Í vor keyptu samtökin einnig kál og brokkolí svo að hver fjölskylda gæti strax sett eitthvað í jörðina. „Fólk er einnig að koma með eigin plöntur eða fræ og er að prófa sig áfram að rækta margt spennandi.“ Í byrjun sumars fær hver fjölskylda gjafaöskju frá Garðheimum til þess að hefja ræktun og sömuleiðis afslátt í versluninni út sumarið.
Í sameiginlegu reitunum eru meðal annars ræktaðar kartöflur, kál og mynta sem þátttakendur geta nýtt. „Okkur langar að byggja þessa reiti upp frekar,“ segir Jorika. „Stefnan er að hafa fleiri sameiginlega reiti og búa til kryddjurtahorn og jafnvel setja niður rifsberjarunna. Rækta upp umhverfið svo það sé bæði nytsamlegt og huggulegt.“
Vikulegir hittingar og fræðsla
Vikulegir hittingar í matjurtagörðunum eru hluti af verkefninu. „Það er skemmtilegt að hitta hópinn og svo bjóðum við reglulega garðyrkjufræðingum að koma og veita ráðgjöf og því er mikilvægt að mæta. Við erum einnig með opna viðburði sem eru eins konar garðpartí,“ segir Jorika. „Þá bjóðum við öllum í hverfinu að koma og skoða svæðið og hitta okkur. Við höfum fengið mat frá handverksbakaríinu Gulla Arnari í Hafnarfirði sem við höfum þá boðið upp á ásamt kaffi. Auk þess vorum við með leiki fyrir börn og einhverja afþreyingu en markmiðið er að skapa stemningu í hverfinu og nágrannakærleik.“
Annar opinn viðburður er á dagskrá en Jorika veit ekki hvenær, það mun fara eftir veðri. „Okkur langar að bjóða fleirum að koma að sjá hvað við höfum verið að gera og bjóða fólkinu í Hafnarfirði að koma og tala um ræktun, til dæmis væri hægt að skiptast á ráðum nú í haust hvernig best sé að undirbúa garðana fyrir veturinn.“
Deila uppskriftum og menningarheimum
Að sögn Joriku hefur það verið unun að sjá þátttakendur læra um mismunandi menningarheima og deila með sér reynslu. Hún segist sjálf hafa lært margt nýtt í verkefninu. „Fólk er að vinna saman og tala saman. Það er að deila menningu sinni með hvert öðru í gegnum mat: til dæmis þegar fólk er að deila uppskriftum eða ráðum hvernig hægt sé að matreiða grænmetið sem verið er að rækta. Ég varð heilluð af sterku svörtu tei með myntu sem sýrlensk fjölskylda, sem er að taka þátt í verkefninu annað árið í röð, hefur verið að rækta og bauð okkur upp á. Síðast þegar við héldum opinn viðburð var bæði úkraínskur matur og palestínskur matur á boðstólum sem þátttakendur elduðu og buðu öllum að smakka.“
Áhugasamir geta haft samband við GETA-samtökin til þess að taka þátt næsta sumar auk þess sem Hafnarfjarðarbær auglýsir alltaf skráningu að vori. Jorika hvetur alla sem hafa áhuga á menningu, ræktun og góðum samverustundum til að hafa samband og taka þátt. Hún segir að samtökin séu einnig tilbúin til að miðla þekkingu sinni og reynslu ef aðrir hafa áhuga á að hefja sambærileg verkefni víðs vegar um landið.
