Framlag stjórnvalda vegna stuðningsátaks til eflingar kornræktar hækkar um 82,6 milljónir á næsta ári, en er þó 17,4 milljónum lægra en áður hafði verið gert ráð fyrir
Framlag stjórnvalda vegna stuðningsátaks til eflingar kornræktar hækkar um 82,6 milljónir á næsta ári, en er þó 17,4 milljónum lægra en áður hafði verið gert ráð fyrir
Mynd / smh
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðningsátaks í kornrækt 17,4 milljónum króna lægra en áður hafði verið gert ráð fyrir.

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 er gert ráð fyrir 460,6 milljóna króna framlagi til verkefnisins. Það er 82,6 milljónum meira en í fjárlögum 2026, en í greinargerð um landbúnaðarhluta frumvarpsins kemur fram að fjárhæðin sé að teknu tilliti til 17,4 milljóna króna aðhaldsráðstöfunar.

Stuðningurinn er liður í átaki stjórnvalda til eflingar íslenskri kornrækt og byggir á skýrslunni Bleikir akrar, aðgerðaáætlun um aukna kornrækt. Landbúnaðarháskóli Íslands gaf út árið 2023 og var unnin að beiðni þáverandi matvælaráðherra.

Áætlunin hefur meðal annars það markmið að auka innlenda framleiðslu á korni til fóðurs og manneldis og styrkja þannig fæðuöryggi landsins.

Þegar stjórnvöld kynntu fjármögnun átaksins árið 2023 var gert ráð fyrir að um tveimur milljörðum króna yrði varið til þess á fimm árum, frá 2024 til 2028. Fjármagnið átti að fara stighækkandi eftir því sem átakið þróaðist.

Fjárfestingarstuðningur var veittur í fyrsta sinn árið 2024 og náði þá meðal annars til kornþurrkunarstöðva, geymslna og sérhæfðs búnaðar.

Á síðasta ári bættist framleiðslutengdur stuðningur síðan við. Hann er greiddur fyrir þurrkað bygg, hveiti og hafra sem uppfylla skilgreindar gæðakröfur.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...