Tilfelli hafa komið upp í dýrum í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Austurríki og Liechtenstein frá því í júlí.
Tilfelli hafa komið upp í dýrum í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Austurríki og Liechtenstein frá því í júlí.
Mynd / Unsplash
Utan úr heimi 2. október 2026

Ný Shamonda-veira herjar á kýr

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Shamonda-veira greindist í fyrsta sinn á meginlandi Evrópu í sumar. Veiran berst með skordýrabitum og dreifist því hratt. Ekkert bóluefni er til við veirunni og engin meðhöndlun sem stendur.

Veirusjúkdómurinn leggst á búfénað og þó hann sé ekki banvænn geta dýrin veikst í allt að þrjár vikur í senn. Mörg tilfelli hafa komið upp í mjólkurkúm á meginlandi Evrópu í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem veiran finnst í Evrópu en hefur þekkst í búfénaði í Nígeríu frá árinu 1965 auk þess sem hún hefur komið upp í Vestur-, Austur- og Suður-Afríku og Japan.

Alvarleg áhrif á fóstur

Shamonda-veiran er af ættkvísl Orthobunyaveira og smitast með flugna- og skordýrabitum. Sýkt dýr fá hita, lystarleysi og niðurgang, auk þess sem mjólkurframleiðsla skerðist. Veirusjúkdómurinn er ekki banvænn en áhrif hans eru hvað alvarlegust á fóstur. Kvígur sem eru með kálfi og sýkjast geta orðið fyrir fósturláti, fóstur þeirra geta skaddast og kálfarnir eiga hættu á að fæðast andvana. Dæmi eru um sýkta kálfa sem hafa fæðst með skaddað miðtaugakerfi og vanþróað stoðkerfi. Áhrif á frjósemi dýra sem sýkjast eru óþekkt.

Engin þekkt smit eru á milli dýra, nema frá móður til fósturs og engar vísbendingar eru um að veiran geti borist úr mjólk og kjöti í menn. Þar sem ekki er enn til bóluefni við veirunni er eina leiðin til að koma í veg fyrir smit að reyna að vernda hjarðir frá smitberandi skordýrum. Veiran leggst fyrst og fremst á jórturdýr en nokkur tilfelli hafa komið upp í hestum í sumar og er það einnig í fyrsta sinn í Evrópu.

Engin heildarskrá yfir tilfelli

Tilfelli hafa komið upp í dýrum í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Austurríki og Liechtenstein frá því í júlí. Í Frakklandi urðu sumar mjólkurkýr svo slappar að þær framleiddu aðeins 4 lítra af mjólk á dag.

Þýska stofnunin Friedrich-Loeffler Institut (FLI), sem sérhæfir sig í smitsjúkdómum dýra, staðfestu komu veirunnar til Þýskalands í sumar. Samkvæmt upplýsingum á vef FLI hafa tvö afbrigði veirunnar greinst í Þýskalandi en erfitt reynist að hafa yfirsýn yfir útbreiðslu sjúkdómsins þar sem ekki er skylda að tilkynna tilfelli veirunnar í Þýskalandi. Það sama á við önnur lönd í Evrópu og eru því ekki til upplýsingar um heildarfjölda smita.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...

Stjörnuspá vikunnar
8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra

Ungir vinna Haustmótið
7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Skjóllundir – fyrir hvað?
7. október 2026

Skjóllundir – fyrir hvað?

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f