Allt flaut í mjólk og rjóma á Dröngum
„Hér í Stóru-Ávík hefur frændgarður minn búið í gegnum áratugina. Unnur, föðursystir mín, bjó hér ásamt Jóni, manni sínum, þegar ég var krakki og ég sótti í að vera hjá þeim, enda voru börnin þeirra skemmtileg,“ segir Guðjón Kristinsson, hleðslumeistari og höggmyndalistamaður, sem lætur fara vel um sig í stofunni í bláa hundrað ára húsinu í Stóru-Ávík í Trékyllisvík.
Guðjón er fæddur og uppalinn að Dröngum á Ströndum, en flutti með annan fótinn að Stóru-Ávík fyrir nokkrum árum, hinn fótinn hefur hann í Árbæ í Ölfusi, á sínu gamla heimili til þriggja áratuga.
„Þetta er örsamfélag hér í Árneshreppi, en ég hitti fólk miklu oftar hér en fyrir sunnan í fjölmenninu. Ef það er of mikið kjöt í ofninum hjá einhverjum þá er kallað í nágranna og þeim boðið í mat. Hér býr gott fólk, en Ölfusingar eru líka gott fólk, mér líður vel á báðum stöðum,“ segir Guðjón og bætir við að tilviljanir hafi ráðið því að hann keypti Stóru-Ávík af Benedikt frænda sínum.
„Ég hef alltaf haft sterkar taugar til þessa staðar. Ég fékk ósjaldan að gista hér þegar ég var lítill drengur í skóla á Finnbogastöðum, því það var of langt að fara heim að Dröngum um helgar. Á virku dögunum gistum við á heimavistinni, en við vorum í þrjár til fimm vikur í einu í skólanum og okkur sem áttum heima langt í burtu var dreift niður á bæina um helgar.“ Guðjón segir að það hafi tekið þau Drangakrakkana tvo til þrjá daga að komast í skólann.
„Ef það var ekki fært á báti þá þurftum við að ganga heiman frá okkur, fyrst gengum við í Ófeigsfjörð eða í Seljanes, en seinni daginn í Trékyllisvík, þar sem skólinn var. Við sem yngri vorum gengum í spor eldri krakkanna, þeir tróðu leiðina í snjónum, en stundum fengum við að vera samferða póstinum því hann kom gangandi að Dröngum viku- eða hálfsmánaðarlega.“
Kjötið af kópunum er best
Guðjón ólst upp við aðstæður á Dröngum sem eru harla ólíkar því sem ungt nútímafólk þekkir.
„Til að hita upp húsið var spýtnaketill og í eldhúsinu var Sóló olíueldavél. Seinna var tekin upp spænskættuð spýtnaeldavél sem var tengd við miðstöðvarkerfið. Við vorum með ljósavél, Lister frá 1947, sem gekk fyrir dísilolíu, hún var mjög frumstæð en klikkaði aldrei. Heimilið var fjölmennt, við systkinin erum fjórtán, sammæðra, en við bjuggum aldrei öll á sama tíma á Dröngum, elstu stelpurnar voru þá flognar úr hreiðrinu. Mamma, Anna Jakobína Guðjónsdóttir, var ekkja og átti fimm dætur þegar hún og pabbi tóku saman og þau eignuðust níu börn í viðbót. Drangar eru sannarlega mjög afskekktur bær, þangað var aðeins fært á bát og á hestum. Við áttum trillu með litlum mótor og til matar var nýtt það sem náttúran gaf, fiskur og selur úr sjónum. Farið var á sjó til að veiða fisk fyrir veturinn og við veiddum silung í ánum að hausti, en að vori veiddum við hann í sjónum við sandinn. Við borðuðum nýjan sel þegar það var í boði, en hann var líka saltaður til vetrarins. Við veiddum selinn í net, en drápum aldrei fleiri kópa en við þurftum, slepptum mörgum og líka urtum. Kjötið af kópunum er best, mér finnst það lostæti. Við nýttum allt af selnum, sviðum hreifana og unnum líka skinnið. Við skutum einnig svartfugl og skarfa til matar og lambakjöt var auðvitað á borðum, enda voru foreldrar mínir með sauðfjárbú. Þrjár kýr voru til að sjá heimilinu fyrir mjólk og við vorum vel haldin, það flaut allt í mjólk og rjóma á Dröngum.“
Guðjón segir foreldra sína hafa verið með um þrjú hundruð ær og þriðjungur þeirra hafi verið yfir vetrartímann í tveimur fjárhúsum sem voru heima við bæ, byggð úr torfi og grjóti.
„Restin var í beitarhúsum, eitt var í Fauskavík þar sem gefið var hvern dag og annað í Bjarnarfirði, þar sem aðeins var gefið annan hvern dag. Þar voru um þrjátíu kindur, alveg snarvitlausar, hálfgerðar villikindur sem fóru stundum á flakk, við þurftum oft að leita að þeim. Þær voru ljónstyggar en hópinn leiddi forystukind sem skilaði þeim oftast í beitarhúsið áður en gerði vond veður.“
Ísinn var alveg upp í fjöru
Þegar Guðjón var um tíu ára lagðist hafís upp að landi á Ströndum.
„Ég hafði aldrei séð hafís áður svo þetta var lífsreynsla fyrir mig. Þegar ég vaknaði þann morgun á Dröngum, heyrði ég mömmu segja: „Jæja, nú er hann kominn, landsins forni fjandi.“ Ég vissi ekkert hvað það merkti, en ég hljóp að glugganum og þá var hafið snjakahvítt svo langt sem augað eygði. Ísinn alveg upp í fjöru og ekki hægt að sigla, en strax farið að huga að byssukosti því hættan var að hvítabirnir kæmu á land. Hundarnir voru tortryggnir, hlupu mjög órólegir niður í fjöru geltandi að ísnum. Breyting varð á hegðun allra dýranna, enda gjörbreytt heimsmynd fyrir þau, auk þess fygldu hafísnum alls konar kynjahljóð, brak, brestir og ískur. Þegar við fórum að gefa á beitarhúsin þurftum við að dröslast með haglabyssur og riffla með okkur, ef bangsi yrði á vegi okkar. Við vorum gráir fyrir járnum, enda nauðsynlegt að kunna að skjóta fyrir okkur öll sem bjuggum á Dröngum. Eitt sinn vantaði nokkrar kindur á beitarhúsið og Grímur bróðir fór að leita þeirra með hundana og riffilinn, en ég beið í jötunni í beitarhúsinu og studdi mig við stoðina með haglabyssuna. Ef bangsi kæmi átti ég að skjóta hann í dyrunum, tíu ára drengurinn, ég var auðvitað skíthræddur, ógnin var raunveruleg, en sem betur fer kom ekki ísbjörn í það skiptið. Bræður mínir urðu seinna varir við ísbirni þegar þeir fóru að gefa í beitarhúsunum í blindaþoku. Ísinn var í marga mánuði, alveg fram á sumar og það voru tófur úti á ísnum og hrafnar, en það er merki um að þá eru bjarndýr þar líka. Hvítabirnir eru yfirleitt ekki hættulegir, grænlenskir vinir mínir sögðu mér að fólk væri ekki ofarlega á matseðli hjá bangsa.“
Púkaliðið bjó til fallbyssu
Guðjón segir þá krakkana á Ströndum hafa verið nokkuð uppátektarsama.
„Við komumst í feitt þegar ég fann bók í bókasafni skólans um Krímstríðið, því þar var að finna uppskrift að svartapúðri. Hörður, frændi minn, sem var einn af krökkunum hér í Stóru-Ávík, var fæddur uppfinningamaður og afar hugmyndaríkur, svo hann skipulagði púðurgerð hið snarasta. Við byrjuðum á að kveikja eld og safna öskunni, síðan sóttum við saltpétur í mótorhús skólans en í búri skólans fundum við brennistein, þar vissum við af stórum eldspýtnabúntum. Við vorum alla nóttina að skafa brennistein af óteljandi eldspýtum og að því loknu vorum við komin með allt efni í púðrið. Við ákváðum að búa til fallbyssu, fundum svert rör og tróðum púðrinu þar inn í ásamt höglum, skrúfum og ýmsu öðru og hnoðuðum fyrir endann. Útbjuggum því næst statíf fyrir rörið og lögðum helling af grjóti þar ofan á og höfðum barð fyrir aftan, við vissum af bakslaginu sem kæmi. Við höfðum ekki áhöld til að búa til kveikjuþráð, svo við kveiktum bál undir rörinu sem við beindum út í Skarðsvík. Biðum svo spennt, allt púkaliðið, á bak við barðið og gægðumst, en Hörður bannaði alfarið að hlaupa að rörinu, hann stjórnaði þessu eins og herforingi. Loks hljóp skotið af og skrúfum og höglum rigndi yfir víkina og langt út á sjó, svakalegur hvellurinn bergmálaði um alla Trékyllisvík,“ rifjar Guðjón upp og hlær að minningunni.
Í Snata bjó eðli úlfs
Honum er líka minnisstæður hundur bernsku sinnar, sem hét Snati.
„Hann var stórættaður hundur, undan rakkanum Carlosi sem var um borð í flugvélinni Geysi sem brotlenti á Vatnajökli. Carlos slapp úr flakinu og fór á kvennafar og kom hvolpum í tík. Úr gotinu komu þrír hvolpar, einn fór í Naustvík, einn í Árnes og einn til okkar að Dröngum, hann fékk umsvifalaust nafnið Snati. Carlos, faðir Snata, var sleðahundur, blendingur af malamút og schafer, en malamút er hálfgerður Alaskaúlfur. Í Snata bjó því eðli úlfs og hann fór alltaf út á hól og spangólaði löngu áður en pósturinn kom til okkar. Snati hafði svo kraftmikla rödd að gól hans bergmálaði í fjöllunum. Þegar Jens í Munaðarnesi, sem sá um póstburð, kom nokkrum klukkutímum síðar, þá byrjuðu samningaviðræður milli hans og Snata, enda var hann grjótharður varðhundur. Jens var í góða stund að semja við Snata áður en hann fékk að koma inn. Snati var feikna sterkur og skynsamur hundur, alveg eldklár. Eitt sinn þegar ég smábarn villtist í svarta þoku með Snata við klettana heima, þá varð ég hræddur og fór að gráta. Ég leitaði til Snata, lagði höndina yfir herðakambinn á honum og hann leiddi mig í áttina heim, hægum skrefum. Hann stjórnaði ferðinni, en þegar við heyrðum köllin í þeim sem voru að leita að mér, þá hljóp hann á undan mér til að láta fólkið vita. Þetta situr í barnsminni mínu.“
Engri torfu var kastað
Ástæða þess að Guðjón heldur heimili í tveimur landshlutum er m.a. sú að hann tekur að sér hleðsluverkefni um allt land, endurgerir m.a. gamla bæi og byggingar, enda býr hann yfir reynslu og þekkingu um forna byggingararfleifð.
„Þegar veggir eru hlaðnir eftir gamalli hleðsluaðferð þá geta þeir haldið öldum saman, ef undirstaðan fer ekki. Ég hef tekið að mér ótal verkefni víða um landið og utan landsteinanna, ég hef til dæmis starfað þó nokkuð við hleðslur á Grænlandi. Í vor kom hópur af unglingum frá Grænlandi hingað til mín í Stóru-Ávík og ég kenndi þeim grjóthleðslu, að leggja götur í grýttum urðum, skera út í við og fleira. Þau höfðu ekki búið við góðar aðstæður og mér fannst gaman að sjá þau vaxa og dafna við hleðslustörf. Að vinna verklega vinnu með náttúrulegt efni og veltast með þunga hluti, er albesta leiðin til að koma einbeitingu í fólk. Ég og þessir krakkar hlóðum upp að nýju ævafornan hruninn vegg hér í Bæjarvík, þar sem grjótið var allt fyrir hendi í fjörunni, en þetta er mörg hundruð ára gömul hleðsla sem ég sá móta fyrir,“ segir Guðjón sem býður mér að ganga með sér í Bæjarvík, sem er rétt utan við Stóru-Ávík, til að sjá afraksturinn, margra metra langan og verulega breiðan fagurlega hlaðinn vegginn.
„Þegar hörmungarnar dundu yfir á Flateyri með snjóflóðinu 1995, þá gekk sjór hér á land og braut til grunns það sem eftir var af þessum forna vegg. Hér í víkinni hefur verið nátthagi fyrir fé því hér er skjólsælt í norðaustanátt og hér eru líka tóftir gamallar réttar sem hefur verið grjóthlaðin,“ segir Guðjón sem einnig sá um að hlaða um eins kílómetra langan stíg niður að Kistuvogi í Kolgrafarvík, þar sem þrír menn voru brenndir á báli árið 1654, en þeir voru dæmdir fyrir galdra. Líkneski sem Guðjón hefur skorið og hoggið út í rekavið skreyta stíginn og gera upplifunina á göngunni sterka, lifandi og fjölbreytta.
„Við lukum því verki fyrir þremur árum, ég og aðstoðarmanneskja mín, hún Joana Wilsinska sem býr í Norðurfirði. Gunnar, sonur minn, er landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur og hann pikkaði út leiðina. Ég fór á undan með gröfu og þurfti að velja leiðina svo ekki yrði allt í svaði. Engri torfu var kastað og ekkert efni sótt að, ég notaði einvörðungu efni sem var þar fyrir, grjót og jarðveg. Á neðsta hluta stígsins gerði ég ullarstíg, því þar er mýri. Ég fór til Sigga, nágranna míns hér í LitluÁvík, og fékk ull hjá honum til að gera ullarmottu ofan á mýrina, ullin myndar þannig þykkt ullarteppi. Ég fyllti með möl yfir ullarteppið og fyrir vikið flýtur stígurinn og er aldrei blautur fyrir þá sem þar ganga. Þetta er ævaforn aðferð, til eru tvö þúsund ára gamlir slíkir flotstígar í Lake District í Bretlandi, sem gerðir voru af Rómverjum,“ segir Guðjón sem einnig hefur lappað fagurlega upp á gönguleiðina að Krossneslaug. Þegar hann var sóttur heim hafði hann nýlokið við hleðsluverkefni í Grundarfirði, þar sem hann hlóð eldstæði og svið úr sæbörðu grjóti. Guðjón er mikill hagleiksmaður, auk þess að höggva skúlptúra út í rekaviðardrumba, stóra sem smáa, þá sker hann út hnífssköft í íslenskan við, hreindýrshorn og stein. Skúlptúra hans má finna um víða veröld.
