Brugga mjöð á Hellu
Á Hellu starfar Öldur brugghús sem er eini framleiðandi mjaðar á Íslandi. Eigendur þess eru úr Reykjavík en ákváðu árið 2025 að flytja með fjölskylduna og starfsemina út á land þegar þau fundu hentugt húsnæði við bakka Rangár sem áður hýsti blómabúð.
Fyrir brugghúsinu fara hjónin Helgi Þórir Sveinsson og Dagný Valgeirsdóttir, en hann segir þau hafa áform um að byggja upp veitingaþjónustu og bar í sama húsnæði og þau brugga mjöð og bjór. „Svo fylgir þessu ágæt lóð sem okkur langar til að setja undir gróðurhús til þess að rækta eitthvað skemmtilegt til að nota í bruggið og reyna að setja á fót býflugnarækt,“ segir Helgi í samtali.
„Ég átti að verða hagfræðingur, er menntaður á því sviði og var byrjaður að vinna í þeim geira,“ bætir Helgi við. „Ég var kominn með mitt fyrsta starf í fjármálageiranum meðfram námi, en á sama tíma bauð félagi minn úr hagfræðinni mér að vera með þegar hann var að brugga bjór. Þá var hann nýbúinn að læra þetta og ég hafði ekki hugmynd um að maður gæti gert bjór sjálfur. Hann kenndi mér tökin og upp frá því gat ég ekki hugsað um neitt annað en að brugga bjór,“ segir Helgi. Þessi sami félagi hafi kennt Helga að brugga mjöð og fékk hann jafnframt mikinn áhuga á þeim drykk, sem er gerður úr hunangi.
„Þegar ég útskrifaðist úr hagfræðinni var ég efins um hvort ég vildi halda áfram að vinna á skrifstofu þar sem maður átti helst að vera í jakkafötum. Ég ákvað því að prufa að sækja um sumarvinnu í brugghúsi árið 2014 og sendi tölvupóst á öll brugghúsin sem voru starfandi. Ölvisholt réði mig sem starfsmann á plani til þess að létta undir með bruggara sem var nýr í faginu. Það var mjög gott, því að við lærðum þetta mikið saman,“ segir Helgi.
Margir rugla miði saman við bjór
Helgi segir að á næstu árum hafi hann komið víða við í faginu og öðlast víðtæka reynslu í framleiðslu áfengra drykkja. Hann var mjög áfram um að koma á fót eigin atvinnurekstri með eiginkonunni til þess að þau gætu verið sínir eigin herrar og því lá beinast við að stofna brugghús. „Árið 2018 stofnaði ég mjaðargerðina Öldur með félögum mínum á meðan ég var starfsmaður hjá Foss Distillery. Yfirmenn mínir leyfðu mér að nota þeirra aðstöðu til þess að brugga minn eigin mjöð á kvöldin og um helgar með því skilyrði að ég útvegaði mér mitt eigið starfsleyfi,“ segir Helgi.
„Þegar við byrjuðum að framleiða árið 2018 og selja flöskur í ÁTVR árið 2019 héldum við að við myndum verða heimsfrægir fyrir að vera fyrstir að gera mjöð á Íslandi,“ bætir Helgi við. „Það reyndist hins vegar vera erfitt að sannfæra Íslendinga til að gefa þessu séns, sem ég held að sé að hluta til út af algengum misskilningi að mjöður sé það sama og bjór. Túristarnir vita hins vegar hvað þetta er og gera beinlínis ráð fyrir að mjöður sé auðfáanlegur á Íslandi, sérstaklega Bandaríkjamenn.“
Svipað og menn drukku á víkingaöld
Eins og áður segir er hunang eitt helsta innihaldsefnið í miði og var þetta algengur drykkur í norðanverðri Evrópu á miðöldum. Íslendingar þekkja þó fáir mjöð, nema í gegnum Íslendingasögur og Snorra Eddu. „Einn af drykkjunum sem við búum til heitir Ingólfur sem er gamaldags mjöður. Hann er eflaust ekki ólíkur því sem þú fengir ef þú færir með tímavél aftur á víkingaöld. Þetta er hunangsvín með fjórtán prósent vínanda og bragðbætt með hvönn og blóðbergi,“ segir Helgi.
Undir merkjum Öldurs framleiða Helgi og Dagný nokkrar tegundir af miði sem er ýmist álíka sterkur og bjór eða af svipuðum styrk og léttvín. Sterkari mjöðurinn er líkur því sem bruggað var á öldum áður, á meðan sá léttari var þróaður í seinni tíð. Þá brugga þau jafnframt nokkrar tegundir af bjór sem heitir Hella.
Hunang beint frá býflugnabændum
Í fjölmiðlum hefur verið bent á að matvælasvindl sé algengt þegar kemur að hunangi og erfitt sé fyrir neytendur að vita hvort þeir séu sannarlega að kaupa hunang. „Mér hefur hins vegar tekist að komast í bein tengsl við býflugnabændur erlendis,“ segir Helgi. „Víða er fólk sem hefur atvinnu af því að halda býflugur og ferðast á milli bænda til þess að frjóvga ræktarlönd þeirra. Það gefur þeim færi á að fá uppskeru af hunangi meira en fimm sinnum yfir árið.
Allt hunang er búið til af býflugum sem þær gera úr blómasafa. Þær vinna safann þannig að vatnið gufar upp og eftir verður þykkt hunang. Býflugnabændur búa um flugurnar í sérstökum kössum þar sem þær geta safnað hunanginu. Ég er aðallega að vinna með þýskum býflugnabónda og í gegnum hann get ég fengið hunang frá öðrum bændum sem hann þekkir.
Þú getur rétt ímyndað þér hversu mikil fjölbreytni getur verið í hunangi, en bragðið stjórnast af svo mörgu, eins og veðurfari á hverjum tíma og plöntuflórunni sem flugurnar komast í. Eins getur verið kynslóðarmunur milli býflugna af sömu tegund. Hunangið verður því aldrei alveg eins og er ég alltaf að vinna með eitthvað nýtt þegar ég opna föturnar.
Ég nota því oft milt hunang í grunninn, sérstaklega í miði sem er með ber eða krydd sem tekur yfir bragðið. Þá þjónar hunangið því hlutverki að koma með sykurinn sem verður að áfenginu. Það er aðeins meiri áskorun að velja hunangið sem er bætt við eftir á til að fá sætuna, en það gerjast ekki. Þá þarftu virkilega að vanda valið og finna eitthvað sem passar í það sem þú ert að reyna að ná fram,“ segir Helgi.
