Magnús Kristjánsson er nýskipaður forstjóri Stofunnar atvinnuveganna.
Magnús Kristjánsson er nýskipaður forstjóri Stofunnar atvinnuveganna.
Mynd / Sigurjón Ragnar - Stjórnarráð Íslands
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Forstjóri er skipaður til fimm ára og mun leiða undirbúning, móta skipulag og stýra starfsemi stofnunarinnar sem mun taka til starfa 1. janúar 2027.

Í sumar var samþykkt frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um breytingar á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum. Með nýjum lögum sem taka gildi 1. janúar 2027 munu þrjár stofnannir sameinast í eina. Það eru Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sem sameinast í Stofunun atvinnuveganna. Þá flytjast verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til hinnar nýju stofunnar. 

Magnús Kristjánsson lauk B.Sc. gráðu í tölvunarfræði árið 2000 frá Háskóla Íslands og MBA prófi í viðskiptafræði árið 2009 frá sama skóla. Magnús hefur farsæla reynslu af stjórnun og stefnumótun innan opinbers rekstrarumhverfis og á samkeppnismarkaði. Hann gegndi starfi forstjóra Orkusölunnar á árunum 2008 til 2026. Áður var hann upplýsingatæknistjóri hjá Rarik á árunum 2003 til 2006. Þá starfaði Magnús hjá TM Software – Business Solution sem verkefnastjóri á árunum 1999 til 2003 og sem aðstoðarframkvæmdastjóri á árunum 2006 til 2008. Magnús hefur gegnt formennsku í stjórnum Sunnlenskrar orku og Sjávarorku, verið stjórnarmaður og varaformaður stjórnar Samorku og sat í fulltrúaráði Samtaka atvinnulífsins.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...