Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Höfundur: Þröstur Helgason

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna. Markmið reglugerðarinnar er að setja í fyrsta sinn skýrar og samræmdar reglur um hvernig kortleggja skuli óbyggð víðerni á Íslandi.

Með skýrari skilgreiningum og sameiginlegum upplýsingagrunni verður auðveldara að meta áhrif framkvæmda á víðerni og taka ákvarðanir á traustari grunni, ekki síst þar sem áhrif á náttúru geta safnast upp með tímanum og í sumum tilvikum verið óafturkræf. Þetta kemur fram í frétt á vef stjórnarráðsins.

Hingað til hafa verið gerð ólík kort af óbyggðum víðernum eftir mismunandi aðferðum. Með reglugerðinni verður því til sameiginlegur og gagnsær rammi fyrir kortlagninguna og Náttúrufræðistofnun mun annast gerð og viðhald opinbers korts yfir óbyggð víðerni.

Kortlagningin er fyrst og fremst upplýsingagrunnur fyrir stjórnvöld. Hún felur ekki sjálfkrafa í sér bann við framkvæmdum eða takmörkun á landnotkun. Hún gefur hins vegar stjórnvöldum betri upplýsingar þegar teknar eru ákvarðanir um skipulag, landnýtingu og vernd landslags og náttúru. Reglugerðin skýrir hvernig skilgreiningu náttúruverndarlaga á óbyggðum víðernum skuli beitt við kortlagningu. Þar eru meðal annars sett viðmið um áhrif mannvirkja og annarrar landnotkunar og tekið tillit til sýnileika mannvirkja og þess hvernig landslag getur dregið úr áhrifum þeirra. Til dæmis eru áhrif vindorkuvera metin þrefalt meiri en áhrif hefðbundins mannvirkis.

Skylt efni: Viðerni | kortlagning

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f