First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

Höfundur: Þröstur Helgason

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmdir sem munu tvöfalda framleiðslugetu landeldisfyrirtækisins úr 5.000 tonnum í 10.000 tonn af slægðum laxi á ári. Framkvæmdirnar marka lok fyrsta uppbyggingaráfanga fyrirtækisins og á þeim að ljúka á fyrstu mánuðum ársins 2028.

Samkvæmt tilkynningu frá First Water felur verkefnið í sér byggingu nýs ker- og stjórnhúss þar sem verða átta fiskeldisker, hvert um sig með um 5.500 rúmmetra rými, auk tilheyrandi tæknibúnaðar.

Stór og mikilvægur áfangi í þróuninni

Ístak mun annast steypuvinnu, uppsetningu burðarstáls og klæðningu mannvirkjanna að utan. Framkvæmdir hefjast á næstunni og er gert ráð fyrir að þær taki 16 til 18 mánuði.

„Samningurinn við Ístak er stór og mikilvægur áfangi í þróun First Water. Með þessu verkefni lýkur fyrsta uppbyggingarstigi okkar og núverandi framleiðslugeta tvöfaldast. Við erum afar ánægð með að eiga samstarf við öflugt íslenskt byggingarfyrirtæki með mikla reynslu af flóknum framkvæmdum,“ er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra First Water.

Fyrsti af sex áföngum

Þetta er fyrsti af sex fyrirhuguðum uppbyggingaráföngum í þróun landeldisstöðvar First Water í Þorlákshöfn. Langtímamarkmið fyrirtækisins er að framleiða allt að 60 þúsund tonn af slægðum laxi á ári þegar uppbyggingunni verður að fullu lokið.

First Water lauk á síðasta ári byggingu átta yfirbyggðra landeldiskera sem eru 25 metrar í þvermál. Fyrirtækið slátraði í fyrsta sinn fimm kílóa úrvalslaxi í september 2025 og regluleg slátrun hófst í janúar 2026. Samkvæmt fyrirtækinu hafa 95 prósent framleiðslunnar farið í hæsta gæðaflokk.

Afurðir First Water eru seldar til viðskiptavina í Evrópu og Bandaríkjunum.

Skylt efni: laxeldi | Þorlákshöfn

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...