Nær helmingur bænda verður fyrir eitrunum
Um helmingur bænda heimsins verður árlega fyrir eitrunaráhrifum af völdum skordýra- og illgresiseyða. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem birt var í vísindatímaritinu Frontiers in Public Health í upphafi mánaðar.
Hæsta hlutfall tilvika eitrunar er í Burkina Faso þar sem eitrunaráhrif eru skráð meðal 84% bænda og verkafólks í landbúnaði. Áætlað er að á heimsvísu megi árlega rekja um 11.000 dauðsföll til eitrunaráhrifa, flest á Indlandi. Mesti áætlaði fjöldi tilvika um eitrunaráhrif var í Suður- og Suðaustur-Asíu og AusturAfríku. Samkvæmt The Guardian er þetta áreiðanlegasta rannsóknin sem gerð hefur verið á þessu sviði.
Bráð eitrun meðal 46% bænda
Áætlað er að um 11.000 dauðsföll bænda og þeirra sem starfa í land- búnaði megi árlega rekja til eitrunar frá ákveðnum plöntuvarnarefnum. Þar af eru um 60% tilvika á Indlandi.
Í rannsókninni er áætlað að árlega komi upp 402-433 milljónir tilvika bráðrar eitrunar af þessum plöntuvarnarefnum. Ekki er um ásetning að ræða. Talið er að bændur heims telji um 934 milljónir. Tilvikum eitrunar verður því árlega vart hjá 46% bænda miðað við niðurstöðuna. Ekki var horft til áhrifa eitrunar á áætlaðar 84 milljónir barna sem vinna í landbúnaði.
Eitrunin er af völdum svokallaðra HHP efna (Highly hazardous pesticides), sem eru ýmis plöntuvarnarefni sem teljast mjög hættuleg. Könnun Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), frá árinu 2021, leiddi í ljós að 6-10% af skráðum tegundum skordýraeiturs í löndum Afríku, Karíbahafsins og Kyrrahafsins, eru umrædd HHP efni.
Rannsóknin var unnin að beiðni Pesticide Action Network og byggir á opinberum gögnum frá árunum 20062023.
Möguleg tengsl við Parkinson
Parkinson-sjúkdómurinn verður æ algengari á heimsvísu. Frakkland, Þýskaland og Ítalía hafa viðurkennt sjúkdóminn sem atvinnusjúkdóm hjá bændum. Hélène Nicora, fram- kvæmdastjóri Parkinson’s Europe, segir „yfirgnæfandi vísbendingar“ benda til þess að Parkinson eigi rætur að rekja til umhverfisþátta, en vaxandi gögn tengja útsetningu fyrir plöntuvarnarefnum við þróun sjúkdómsins.
Hættuástand afhjúpað
Í umfjöllun The Guardian um málið segir framkvæmdastjóri Pesticide Action Network á Indlandi, Jayakumar Chelaton, rannsóknina draga fram í dagsljósið „hættuástand sem ekki er lengur hægt að horfa fram hjá“.
Höfundar skýrslunnar kalla eftir tafarlausum aðgerðum og beina sjónum sínum að tilmælum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út um að fasa út notkun mjög hættulegra plöntuvarnarefna til að vernda heilsu og umhverfi. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin hefur gert slíkt hið sama.
Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir tilraunir um allan heim til að sýna fram á hættuna af notkun slíkra efna, hafi hún aukist jafnt og þétt, og tvöfaldast frá árinu 1990 til 2023. Heildarnotkun árið 2023 hafi verið 3,8 milljónir tonna.
Dr. Sheila Willis, alþjóðafulltrúi Pesticide Action Network á Bretlandi, segir um niðurstöðurnar: „Nú þegar umfang þjáningarinnar hefur verið afhjúpað, þarf að styðja við bændur til að fá aðgang að öruggari valkostum til að vernda heilsu sína og fjölskyldu sinnar.“
