Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október síðastliðinn.
Gátan hljómaði svo:
Haldari sem hylur brjóst
hávaxinn þéttur gróður.
Hápunkturinn leynt og ljóst
lykilhólkur góður.
Lausnin er eitt nafnorð með fjórar mismunandi merkingar.
Að þessu sinni er lausnin: Toppur
Umsjón: Guðbjörn Sigurmundsson
Gudbjorn.Sigurmundsson[hjá]mk.is
