Hestamynd og hellabíó
Reykjavík International Film Festival (RIFF) hefst 24. september og stendur yfir til 4. október.
Margir viðburðir eru á dagskrá, þar á meðal heimsfrumsýning á heimildar- myndinni Ævintýri á hestbaki og bíósýning í hraunhelli.
Ævintýri á hestbaki er ný heimildarmynd eftir Árna Gunnarsson sem segir frá Þórgunni Þórarinsdóttur, ungri hestakonu á Norðurlandi sem hefur helgað líf sitt íslenska hestinum. Heimildarmyndin fylgir Þórgunni frá því að hún var fimmtán ára óþekktur knapi í Skagafirði og þar til hún keppir fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss árið 2025. Myndin er sýnd í flokknum Ísland í sjónarrönd en sá flokkur hefur verið hluti af hátíðinni nánast frá upphafi. Myndirnar í þeim flokki bera eitthvað séríslenskt og áhugavert og hafa með einum eða öðrum hætti ramma taug í þjóðarsálina.
Sýningar eru flestar í hefðbundnum kvikmyndahúsum en náttúran er einnig notuð sem bíósalur. Laugardaginn 26. september verður kvikmynd Steven Spielberg, Raiders of the Lost Ark, með hinum ástsæla Indiana Jones, sýnd í Raufarhólshelli, einum lengsta hraunhelli Íslands.
