Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð dýra í Samráðsgátt stjórnvalda.

Hrönn Ólína Jörundsdóttir.

Áætlað er að leggja frumvarpið fram í nóvember. Í áformaskjali kemur fram að tilefnið sé meðal annars niðurstöður skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2023, sem gefin var út í kjölfar stjórnsýsluúttektar stofnunarinnar á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Úttektin var unnin að frumkvæði Ríkisendurskoðunar og helstu niðurstöður voru þær að Matvælastofnun stæði frammi fyrir margvíslegum áskorunum þar sem ekki hefði tekist að byggja upp nægilegt traust sem nauðsynlegt sé hverri eftirlitsstofnun. Þannig þyrfti stofnunin að huga betur að innri og ytri upplýsingagjöf, virkja betur samstarfsráð sitt og bæta samskipti og samstarf við hagaðila. Þá var gagnrýnt að stofnunin hefði sýnt mikið langlundargeð í sumum málum og í öðrum hafi aðgerðir stofnunarinnar ekki verið nægilega markvissar og eftirfylgni ábótavant. Ríkisendurskoðun taldi að nálgun stofnunarinnar í dýravelferðarmálum hefði í einhverjum tilvikum verið svo varfærin að hún gengi í raun gegn markmiðum laga um velferð dýra. Fram kom að vönduð málsmeðferð væri mikilvæg en hafa verði markmið laga um velferð dýra í huga þannig að mál dragist ekki úr hófi.

Tilgangur úttektarinnar var einmitt að kanna hvort eftirlitið væri skilvirkt og árangursríkt og hvort það væri í samræmi við lög og reglugerðir um velferð dýra.

Dýravelferð mikið til umræðu

Í áformaskjalinu í Samráðsgáttinni segir að í skýrslunni hafi komið fram ábendingar ríkisendurskoðanda í 13 liðum sem snúi annars vegar að Matvælastofnun og hins vegar matvælaráðuneytinu (nú atvinnuvegaráðuneytinu). Þá hafi dýravelferð mikið verið til umræðu undanfarin misseri og ljóst sé að þörf sé á endurskoðun ýmissa ákvæða laga um velferð dýra.

Þar segir enn fremur að við setningu gildandi laga árið 2013 hafi verið stigið stórt skref í átt að úrbótum í málaflokknum. Lögin séu nú komin til ára sinna og því nauðsynlegt að fara í heildarendurskoðun á þeim.

Varðandi útfærslu á lagasetningunni segir að tilteknum ákvæðum laganna er snúa að eftirliti með velferð dýra verði breytt í ljósi ábendinga sem fram koma í úttekt Ríkisendurskoðunar en þær ábendingar snúi meðal annars að atriðum sem ekki er hægt að breyta nema með lagasetningu

Unnið að endurbótum undanfarin ár

Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, fagnar því að málið sé nú sett á dagskrá og að umræða um meðvitund um dýravelferð sé alltaf að aukast, dýrunum í hag. „Eins og segir í greinargerðinni þá hefur margt breyst á þessum tíma og tími til kominn að fara yfir hvernig hefur gengið með beitingu laganna og hvar mætti betur fara. Þessi vinna er að hefjast og leidd af ráðuneytinu en við hjá Matvælastofnun komum inn, ráðuneytinu til stuðnings, með sérfræðiþekkingu og reynslu af beitingu laganna. Það er mikilvægt að svona endurskoðun sé gerð reglulega þannig að regluverkið fylgi takti samfélagsins og takist á við þær áskoranir sem við rekumst á í dag,“ segir hún.

Um þær aðgerðir sem Matvælastofnun hafi ráðist í á undanförnum árum, sem viðbragð við úttektinni, segir Hrönn að endurskoðun á þeirra innviðum, uppbyggingu og framkvæmd eftirlits hafi í raun verið byrjuð áður en Ríkisendurskoðun fór í sína úttekt. „Sömuleiðis héldum við áfram að vinna með athugasemdir sem komu fram í úttektinni.

Markmið okkar er að vera með hnitmiðað, málefnalegt og skilvirkt eftirlit byggt á gögnum, áhættumati og frammistöðu eftirlitsþega. Við erum á síðustu árum einmitt búin að vera að straumlínulaga okkar ferli til þess að ná þessu fram án þess að við séum að ógna öryggi okkar skjólstæðinga sem eru neytendur og dýr.“

Endurskoðað ákvörðunarferli stjórnsýsluaðgerða

„Við höfum endurhannað og skrifað nýjan eftirlitsgagnagrunn og kerfi sem við notum til að halda utan um eftirlitsþega, framkvæma eftirlit, fylgja eftir tímasettum úrbótum og draga út tölfræði. Eldra kerfi var komið til ára sinna og markmið með nýju kerfi var meðal annars að stytta tíma eftirlitsfulltrúa bæði til að undirbúa eftirlitsheimsókn og klára skýrslu í lok eftirlits. Þetta hefur skilað umtalsverðri hagræðingu í tíma,“ heldur Hrönn áfram.

„Önnur mikilvæg breyting var að við endurskoðuðum ákvarðanaferli í stjórnsýsluaðgerðum. Það er þegar teknar eru stjórnsýsluákvarðanir gagnvart eftirlitsþegum sem bregðast ekki við þegar við setjum frávik. Dæmi um þetta eru til dæmis ef við framkvæmum verk á kostnað eiganda, leggjum á dagsektir eða förum í vörslusviptingu. Nýtt ferli er mun skilvirkara sem gerir okkur betur í stakk búin til að bregðast hratt við svo mál dragist ekki á langinn. Um slík mál sjá þriggja manna teymi. Þau samanstanda af lögfræðingi málaflokks, væntanlega dýravelferðar í málum tengdum bændum, héraðsdýralækni og sérgreinadýralækni eða sérfræðingi málaflokks. Aðrir aðilar eru svo kallaðir til eftir eðli máls og stærð. Þessi breyting hefur reynst mjög vel og við sjáum að við erum að ljúka málum mun hraðar en áður og ná að beita okkur betur á landsvísu.“

Þá segir Hrönn að einnig hafi verið unnið að bættri ímynd stofnunarinnar og að betri samskiptum við hagaðila.

Skylt efni: dýravelferð

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð...

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis
Fréttir 17. september 2026

NABU Climate Fund styrkir endurheimt votlendis

Landbúnaðarháskóli Íslands (LBhÍ) og NABU Climate Fund hafa undirritað samstarfs...

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð
Fréttir 17. september 2026

Tvær 100 ára konur í Fjarðabyggð

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar heimsótti nýlega tvær konur í ...

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi
Fréttir 17. september 2026

Tré ársins tileinkað Haraldi V. Noregskonungi

Skógræktarfélag Íslands útnefnir tré ársins 2026 við formlega og hátíðlega athöf...

Fjögur sunnudagsskákmót
23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Græðgin er óseðjandi púki
23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

Hátíðin Hamraborg Festival
22. september 2026

Hátíðin Hamraborg Festival