Stjörnuspá vikunnar
Vatnsberinn
Vatnsberinn má eiga von á svolitlu haustkvefi eða ónotum og skal hlúa að sjálfum sér eftir bestu getu. Hann ætti að nýta tímann í að gera sér grein fyrir og koma á framfæri ýmsu því sem legið hefur á honum, en má þó gæta orða sinna, sýna mildi. Annars, með æsingi getur kvefið og ónotin orðið svæsnari. Happatölur 25, 67, 8.
Fiskarnir
Fiskarnir verða, á næstu dögum, fyrir andlegri hreinsun ef svo má segja, en draumar þeirra eru eitthvað sem þarf að hafa yfirlit yfir. Reyna svo að fara eftir því sem þeir túlka eftir draumfarirnar, en eitthvað þarf að athuga fjármálin. Enda ekki vanþörf á ef vel er að gáð. Happatölur 6, 8, 43.
Hrúturinn
Hrúturinn upplifir mikinn kraft um þessar mundir, en nýverið var fullt tungl í hrútsmerkinu. Hann ætti að nýta þessa orku og rusla burt öllum samböndum sem gefa honum lítið sem ekkert en setja sjálfan sig í fyrsta sæti, jafnvel þó það valdi einhverjum usla. Happatölur 5, 15, 42.
Nautið
Nautið hefur fundið fyrir þreytu sem hefur komið á óvart, enda endalaust sprækt í lok sumars. Yfir síðustu mánuði hefur það verið duglegt að vinna úr áföllum og tilfinningum en þarf að staldra við því eitthvað er óunnið og þreytan tengd því. Nautið skal því hvílast og velta málunum fyrir sér. Happatölur 3, 18, 73.
Tvíburinn
Tvíburinn þarf að endurskoða ákveðna vinahópa eða samstarfsaðila, í raun öllum þeim sem ekki eru á sömu bylgjulengd og hann sjálfur. Þetta getur virst heldur róttækt, ekki einungis í huga tvíburans, en einnig í hans nánasta umhverfi. En þetta þarf að gera og ekki seinna en núna. Happatölur 17, 9, 33.
Krabbinn
Krabbinn finnur hvernig opinber ímynd hans þarf að fá skýrari stefnu. Hann má óhræddur taka pláss, sýna leiðtogahæfileika og jafnvel bera á borð hugmyndir sínar að breytingum – en nú er akkúrat tíminn til að gægjast út úr skelinni og bera höfuðið hátt. Happatölur 21, 4, 75.
Ljónið
Ljónið finnur fyrir sterkri þörf til að brjótast út úr hversdagsleikanum en nú er fullkominn tími til að hugsa stórt og sleppa öllum vangaveltum sem takmarka það eitthvað. Nám, ferðalög eða nýr lífsstíll, listinn er óþrjótandi – nú er tími ljónsins til farsælla breytinga. Happatölur 8, 12, 11.
Meyjan
Meyjan þarf aðeins að taka til í sjálfri sér og reyna að losa sig við óheilbrigðar venjur. Ekki síst þær sem kallast meðvirkni eða ósjálfstæði. Þetta verður tilfinningalega krefjandi tími og verður meyjan að leyfa sér að gráta við og við ef þörf er á, enda heilbrigðasta leiðin til að losa um stress. Happatölur 23, 21, 10.
Vogin
Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða samskiptahlið sína. Jafnvægi nánustu sambanda er eitthvað sem vogin þarf að láta reyna á og vera óhrædd við, en í ljós geta komið hin ýmsu leyndarmál, bæði til góðs og miður góðs. Happatölur 16, 82, 9.
Sporðdrekinn
Sporðdrekinn finnur nú hvernig lífsneistinn hefur glæðist smátt og smátt, ekki síst þegar hann sleppir því að taka lífinu of alvarlega. Hann á að skapa, leika sér og leyfa sér að vera akkúrat sá sem hann er án þess að skeyta nokkuð hvað öðrum þykir um. Bogmaðurinn ætti að skína nú eins og sólin. Happatölur 2, 34, 22.
Bogamaðurinn
Bogmaður finnur fyrir líkamlegri spennu eða stressi sem kemur ef til vill ekki á óvart ef hann lítur í eigin barm. Hann þarf því að taka sjálfan sig taki, setja daglega hreyfingu í forgang og breyta rútínunni sinni alveg. Setjast á rassinn og hanna nýtt dagsskipulag. A.m.k. ef vel á að fara, en annars verður hann alveg útkeyrður um jólin. Og það er nú ekki gaman. Happatölur 76, 8, 10.
Steingeitin
Steingeitin upplifir breytingar á samskiptum sínum við nánustu ættingja þar sem hún þarf að æfa sig í að skapa sér öruggt skjól sem byggir á hennar eigin forsendum. Steingeitin má vera glöð og kát því þó henni finnist hún vera að trana sér fram, munu aðrir taka breytingum opnum örmum. Happatölur 3, 14, 78.
