Vel sótt Landbúnaðarsýning
Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-11. október, og um 60-70 þúsund gestir mættu á sýninguna. Glaðbeittir gestir á öllum aldri nutu þess að skoða allt það sem íslenskur landbúnaður hefur fram að færa.
Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningarinnar, segir að það sem helst hafi staðið upp úr á sýningunni hafi verið fjölbreytni básanna og nefndi hann sérstaklega hversu þróaður og hátækniæddur íslenskur landbúnaður er orðinn. „Til dæmis hvernig mjaltaþjónarnir fylgjast með heilbrigði gripanna og láta bóndann jafnvel vita ef eitthvað er ekki eins og á að vera samkvæmt fyrri gögnum.“ Þá hafi líka verið eftirtektarvert hvernig íslenskir bændur leita að hagkvæmari orkulausnum í sínum landbúnaði.
Matarbásar og ungviði
Á sýningunni var hægt að gæða sér á ýmsu góðgæti úr íslenskri sveit á hinum fjölmörgu matarbásum sem var dreift um sýningarrýmið. Ólafur segir að gestir sýningarinnar hafi sýnt þeim básum sérstakan áhuga „enda framleiða íslenskir bændur hreinustu og bestu landbúnaðarafurðir sem um getur“.
Stórvirkar landbúnaðarvélar prýddu sýninguna og gestum og gangandi bauðst að skoða þær og kynna sér nýungar. Ólafur segir að ungir gestir sýningarinnar hafi sýnt vélunum sérstakan áhuga og fengið að setjast upp í gríðarstór tækin. „Þarna hefur kannski verið lagður hornsteinn að nokkrum bændum framtíðarinnar.“
Bændur sem lögðu leið sína á sýninguna voru ekki síður ánægðir. Gestir komu hvaðanæva að af landinu og hefur Ólafur eftir bónda að norðan að hann hafi hitt 40 bændur og búalið sem hann hafi ekki hitt í mörg ár. „Svona sýningar eru ekki síst mikilvægar þegar menn hittast helst á tölvuskjá.“
