Ráðleggingar frá grasalækninum
Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flensutíð haustsins má nýta margar, bæði sem fyrirbyggjandi og sem meðferð við einkennum, „þá í stærri skammti“, segir Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir í Jurtaapóteki Lyfju.
Blaðamaður heyrði í Kolbrúnu og leitaði ráða við kvefi, flensu, hálsbólgu og því sem hægt er að gera til að fyrirbyggja slík leiðindi. Kolbrún segir gott að undirbúa líkamann fyrir veturinn. „Ef við tökum til í líkamanum, þá léttum við á og opnum kerfið. Þá gerir líkaminn meira af því sem hann á að gera.“ Sjálf hefur hún þróað jurtablöndur sem henta bæði fyrir börn og fullorðna og má nota bæði sem fyrirbyggjandi og eftir að einkenna verður vart.
Styrkjandi fyrir ónæmiskerfið
Kolbrún er grasalæknir og hefur áratuga reynslu af störfum sem slíkur. Fyrir margt löngu þróaði hún jurtablöndu sem heitir Mímir og er nú staðalbúnaður á fjölmörgum heimilum í landinu. Þessi kraftmikla blanda inniheldur rót sólhattsins, piparmyntu, vallhumal, hvítlauk, engifer og cayennepipar. Kunnugleg hráefni eru hér á ferð og mörg hver til í eldhúsinu.
„Mímir er breiðvirk fyrirbyggjandi blanda sem örvar blóðflæðið, kveikir á líkamanum svo hann gerir í ríkara mæli það sem hann á að gera. Blandan er góð fyrir fólk sem fær auðveldlega flensu,“ segir Kolbrún.
Hún segir hægt að styrkja ónæmiskerfið bæði með litlum skömmtum af blöndunni en einnig sé ólífulauf gott til að fyrirbyggja kvefpestir. Það inniheldur náttúruleg andoxunarefni sem hjálpa til við að vernda frumur gegn oxunarálagi og styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
Kveðrungur er önnur blanda sem Kolbrún hefur þróað og hefur að geyma blómavötn af eucalyptus, timían, piparmyntu, ísóp og engiferrót. „Sem fyrirbyggjandi fyrir krakka er líka hægt að nota litla skammta af Kveðrung, sem má auka við ef einkenni eru til staðar.“ Blandan er vermandi og styður við vellíðan í hálsi og öndunarvegi.
Kamillan gleymist oft
Kolbrún segir frá annarri blöndu sem hún þróaði fyrir allmörgum árum og hefur reynst vel. „Við eigum blöndu sem heitir Læðingur og er góð fyrir hálsinn og lungun.“ Í henni leynast hálsurt, lakkrísrót, hvannarrót og síberíu ginseng. Kolbrún segir lakkrísrótina góða við hálsbólgu en hún sé þó ekki fyrir þá sem eru með háan blóðþrýsting.
„Kamillute gleymist líka oft en kamillan er mild en öflug jurt. Hún er bólgueyðandi og róandi og róar kerfið, svo fyrir suma virkar hún vel sem fyrirbyggjandi eða jafnvel þegar hálsbólga er komin. „Hún truflar heldur ekkert og af henni eru engar aukaverkanir.“
Fjallagrösum eru margir kunnugir og margir tína þau á sumrin en þau er einnig hægt að kaupa þurrkuð. „Það þarf að sjóða þau,“ segir Kolbrún. „Þau eru bæði örveru- og bakteríudrepandi og góð fyrir hálsinn.“
Tiltekt að vori og hausti
„Ef við tökum til í líkamanum, hvort sem er í tvo daga eða þrjár vikur fyrir haustið, þá léttum við á og opnum kerfið,“ segir Kolbrún. „Þá gerir líkaminn meira af því sem hann á að gera.“
„Á sumrin er oft ekki eins mikil regla og við borðum grillmat og annað sem við erum ekki endilega vön að borða. Þá er gott að taka nokkra daga eða tvær til þrjár vikur í smá tiltekt. Þetta er eins og að gera vorhreingerningu heima hjá sér og á haustin þarf hún að vera aðeins dýpri.“
„Ég geri þetta tvisvar á ári og ég veit að þetta er eitt af því sem heldur líkamanum mínum meira ungum. Annars væri kerfið mitt ábyggilega þreyttara eða ég væri með stoðkerfisverki. Við þurfum að hugsa um vélina okkar. Það kemur ekkert ókeypis til okkar.“
