45–50 þúsund gestir fræddust um og smökkuðu skreið og harðfisk.
45–50 þúsund gestir fræddust um og smökkuðu skreið og harðfisk.
Mynd / Tor Mikelssen
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ segir Þórhildur María Jónsdóttir hjá Slow Food-samtökunum um vel heppnaða sýningu á Ítalíu.

Þátttakendur frá 125 löndum tóku þátt í Terra Madre, alþjóðlegri matvæla- og menningarhátíð. Gestir sem heimsóttu íslenska svæðið fræddust um þá menningu og matarhefð sem tengist harðfiski og skreið, þessari mikilvægu útflutningsafurð norðurslóðanna.

Tugþúsundir forvitinna gesta

Skreiðarhjallur var settur upp á hátíðinni, sem haldin var í lok september. Hjallurinn laðaði að sér heila 45–50 þúsund gesti. Verkefnið ber heitið Stockfish Journey og er hluti undirbúnings umsóknar til UNESCO um að hefðir, þekking og menningararfur tengd skreið og harðfiski verði tilnefnd sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns. Verkefnið er samstarf Slow Food-hreyfinga Íslands, Noregs og Svíþjóðar ásamt samstarfsaðilum á Ítalíu og í Nígeríu.

„Nígerískir kokkar elduðu skreiðina upp á sinn máta, Ítalirnir buðu upp á smakk af sínum sérréttum úr skreið, Norðmennirnir framreiddu hann á lefsum með grænertumauki og brunost,“ segir Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food á Íslandi. Ógrynni af harðfiski og smjöri runnu ljúflega ofan í gesti, en sumum kom spánskt fyrir sjónir að borða hann ómatreiddan.

Ferðalag skreiðarinnar

„Það kom mér á óvart hvað skreið á djúpar rætur í matarhefð á Ítalíu,“ segir Dóra. Hún segir fjölda bræðralaga vera um skreið á Ítalíu. „Nú er hætt að verka þessa svokölluðu Ítalíuskreið á Íslandi, fyrir um 15 árum. Lofoten í Noregi sinnir nú alfarið alþjóðamarkaðinum,“ segir Dóra. Hún bendir á að nú séu aðeins tveir aðilar eftir á Íslandi sem hafa söluleyfi á hjallaþurrkuðum harðfiski, Harðfiskverkun Finnboga á Ísafirði og Svalvogar harðfiskur á Þingeyri.

„Stockfish Journey er gríðarlega stórt verkefni fyrir lítil samtök þar sem allt er unnið í hugsjónavinnu. Við brennum fyrir að varðveita menningararfinn okkar,“ segir Dóra.

Sýningin verður sett upp víðar á Ítalíu og Norðurlöndunum og tengd menningu, matargerð og hefðum hvers áfangastaðar.

Stafræna ruslið

Dagskrá Terra Madre, sem haldin er annaðhvert ár, er fjölbreytt. Þórhildur segir heilt tjald hafa verið tileinkað því að tala um „ruslið okkar á netinu, stafrænu sóunina og hvaða áhrif hún hefur. Allir ólesnu póstarnir og ruslið sem liggur í skýjum. Þetta er allt vistað í orkufrekum gagnaverum, sem taka til dæmis vatn frá matvælaframleiðslu. Mér fannst þetta góður nýr vinkill.“

Hrísgrjónabóndi heimsóttur

Fyrir hátíðina bauð Slow Food á Íslandi upp á tveggja daga ferð þar sem bændur og framleiðendur í Piedmont-héraði voru heimsóttir. „Við heimsóttum hrísgrjónaræktanda sem leggur mikið upp úr líffræðilegum fjölbreytileika, skiptiræktun og endurheimt votlendis. Þótt við séum ekki að rækta hrísgrjón á Íslandi er gott að heimsækja aðra til að fá víðari sýn.“ Athygli vakti að hluti af rekstri býlisins er fræðsla til gesta.

Truffluframleiðandi var einnig heimsóttur í ferðinni, vín- og grænmetisframleiðandi og hinn óhagnaðardrifni University of Gastronomic Science, sem rekinn er samkvæmt hugmyndafræði Slow Food. „Við sjáum fyrir okkur að bjóða upp á fleiri svona ferðir fyrir áhugafólk og fagmenn,“ segir Þórhildur, en ferðin var sú fyrsta út fyrir landsteinana.

Slow Food Ísland stendur fjórða sinni fyrir Bragðagarði 9. október í Grasagarðinum. Verkefnið er samstarf við Hótel- og veitingaskólann í MK, Grasagarðinn og Reykjavíkurborg.

Skreiðarhjallur í Torino
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

Koma öðrum flokki ekki í verð
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...

Djúp lægð nálgast landið
Fréttir 12. október 2026

Djúp lægð nálgast landið

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgas...

Ráðleggingar frá grasalækninum
Fréttir 12. október 2026

Ráðleggingar frá grasalækninum

Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flen...

Vel sótt Landbúnaðarsýning
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

Íslensk klassík með amerískan hatt
Fréttir 12. október 2026

Íslensk klassík með amerískan hatt

Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Fréttir 12. október 2026

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...