Gervigreind flytur sögukennslu til fortíðar
Mynd / Pixabay
Líf og starf 15. október 2026

Gervigreind flytur sögukennslu til fortíðar

Höfundur: Björn Teitsson

Gervigreindin er að breyta sögukennslu í framhaldsskólum landsins. Æ fleiri þeirra hafa brugðið á það ráð að sérsníða alla námskrána í sögu, með það að markmiði að útiloka, eða takmarka, möguleika nemenda á að nota gervigreind til að leysa verkefni. Sama breyting er að verða á sagnfræðikennslu við Háskóla Íslands. Bændablaðið ræddi við kennara við tvo framhaldsskóla og prófessor í sagnfræði um málið.

Tilkoma gervigreindar hefur nú þegar haft mikil áhrif á fjölda starfsgreina um allan heim og allar líkur eru á að það breytingaskeið, sem sumir hafa kallað „fimmtu iðnbyltinguna“, sé rétt að hefjast. En þegar tækniframfarir virðast vera á geysimiklum hraða á einum stað, er mögulega fyrir bestu að þær hægi verulega á sér á öðrum stað. Það gæti hreinlega verið nauðsynlegt að taka nokkur skref til baka, til að geta betur þroskast og dafnað.

Þetta á sérstaklega við um sögukennslu í menntaskólum þjóðarinnar og meira að segja í sagnfræði við Háskóla Íslands – þar sem kennarar eru farnir að sérsníða námskrár með það að markmiði að nemendur læri sjálfir, án aðstoðar gervigreindar. Þar með mætti segja að nemendur séu að ferðast aftur til tímans þegar notast þurfti við blað og blýant til að leysa verkefni, en hvaða fag er heppilegra í tímaflakk en einmitt sagnfræðin?

Gervigreindin ekkert sérstakur nemandi í sögu

Páll Guðmundsson.

Páll Guðmundsson er sögukennari í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hann fór að taka eftir breytingum á verkefnum, eða öllu heldur hvernig nemendur skiluðu af sér verkefnum, fyrir um þremur árum en síðan þá hefur þróunin verið ör.

Sífellt fleiri nemendur virtust vera að nýta sér gervigreind til að gera ritgerðarverkefni fyrir sig, að einhverju eða jafnvel öllu leyti. Þetta skapar ákveðnar áskoranir fyrir kennara. „Í fyrsta lagi viljum við forðast það eins mikið og hægt er að þurfa að saka nemendur um óheiðarleika.En málið er að gervigreindin er ekkert sérstakur nemandi í sögu, eins og allir sögukennarar ættu að kannast við. Hún býr til ákveðnar heimildir frá rótum, t.d. með því að vísa í vísindagreinar sem eru ekki til, eða notar hugmyndir eða textabrot úr heimildum sem eru til, nema þá eru þessar hugmyndir eða textabrot ekkert í þessum bókum.

Það er afar leiðinlegt að fara yfir slík verkefni, og ekki síst tímafrekt, því við kennarar þurfum auðvitað að sannreyna að viðkomandi textabrot sé ekki til. Þannig getur það tekið mun lengri tíma að fara yfir hvert verkefni, þegar grunur er um notkun gervigreindar í ritgerðarverkefnum.“

Aftur til fortíðar

En hver er þá staðan í dag, hafið þið brugðist við þessari þróun?

„Við brugðum því á það ráð að fara aftur til fortíðar, sem er kannski viðeigandi, ég veit það ekki? Verkefnin okkar núna snúast að miklu leyti um heimildarýni, sem er eitt mikilvægasta viðfangsefni sagnfræðinnar. Þannig fá nemendur núna tímaverkefni, sem snúast um að þau fá mismunandi heimildir um sama mál, eða sama viðburð, sem þau verða síðan að túlka til að endursegja það sem gerðist.

Þetta krefst þess að við fáum ákveðið andrými til að kenna sögu á þennan hátt. Það þarf til dæmis alltaf að vera tvöfaldur tími, svo nemendur hafi bæði tíma til að leggja mat á þær heimildir sem þeir fá úthlutað og að sama skapi tíma til að koma niðurstöðunum í orð, í skiljanlegan texta. Ég kýs að líta ekkert endilega á þetta sem „gamaldags“.

Staðreyndin er sú að þetta eykur færni nemenda í að spyrja spurninga, að vera gagnrýnin á heimildir og túlkun okkar á sögunni, og þjálfar þau um leið í að leysa verkefni þar sem þeir þurfa að vera sjálfstæðir og sjálfum sér nægir.“

Þurfum að kenna krökkum að skrifa

Hallur Örn Jónsson.

Hallur Örn Jónsson kennir sögu í Verzlunarskóla Íslands og hann tekur í sama streng. Í raun hafi kennarar skólans brugðið á það ráð að sérsníða alla námskrána í sögu, með það að markmiði að útiloka, eða takmarka, möguleika nemenda á að nota gervigreind til að leysa verkefni.

„Já, það eru hreinar línur, við höfum þurft að endurmeta allar okkar kennsluaðferðir og það má kalla það beint viðbragð við þróun gervigreindar. En ég vil þó segja að þessar breytingar eru ekki endilega stórvægilegar. Við leggjum til dæmis enn mikla áherslu á að kenna krökkum að skrifa. Á þriðja ári erum við með heimildaritgerð sem er beint svar við kalli háskólastigsins, en þar hefur borið á því að háskólakennarar telja að nemendur séu ekki jafn vel skrifandi og þeir voru.

En það sem við gerum þá er að við fylgjumst miklu betur með öllu ferlinu hjá nemendum. Þau skrifa þannig í opið google-skjal, þar sem við getum fylgst með framvindunni í réttri tímaröð. Við getum í raun ekki lengur beðið nemendur um að koma með fullunna afurð eftir einhvern ákveðinn tíma, án þess að vera undir nokkru eftirliti.

En þetta þarf ekki að vera neikvætt. Þetta þýðir einfaldlega að við vinnum meira og betur með nemendum í gegnum allt ferlið, hvernig er best að koma frá sér texta með hliðsjón af þeim heimildum sem liggja til grundvallar hverju sinni.“

Má nota við textayfirferð

Rósa Magnúsdóttir.

Sagnfræðikennsla í Háskóla Íslands hefur líka tekið breytingum í kjölfar gervigreindarbyltingarinnar, segir Rósa Magnúsdóttir, prófessor á Hugvísindasviði.

„Við höfum séð alls konar viðbrögð við þessari þróun og kannski misjafnt hversu íhaldssamt viðbragðið er eða á að vera. Við lítum samt þannig á að það er enn skylda okkar að skila nemendum út í samfélagið með ákveðna getu og þekkingu á að skrifa texta og vinna með heimildir.

Okkar viðbragð hefur meðal annars falist í svokallaðri gagnsæisyfirlýsingu, sem nemendur skrifa undir. Í henni felst að nemendur geri þá grein fyrir þeim tilfellum, þegar þeir nota gervigreind. Því það eru ólík stig á notkun gervigreindar sem þarf að taka til greina. Við getum til dæmis ekki sætt okkur við að nemendur noti hana til að skrifa texta fyrir sig, en við getum leyft nemendum að nota gervigreind við textayfirferð. Það er löng hefð fyrir því að nemendur hafi nýtt sér aðstoð í textayfirferð, sem má alls ekki vanmeta, en áður fyrr voru það kannski foreldrar eða fjölskylduvinir sem unnu á sviði fræða- og eða ritstarfa, eða bara hvers kyns villupúkaforrit sem margir notast enn við.

En við byrjuðum að taka eftir þessu fyrir tveimur til þremur árum að þróunin varð sú að textar fóru að verða betri að meðaltali þegar kom að styttri skilaverkefnum.“

Þarf að horfa á gervigreindartexta með gagnrýnum augum

Þannig að Háskóli Íslands er ekki að taka gervigreindina alveg út úr myndinni?

„Ég get aðeins tjáð mig um hvernig við erum að gera þetta í sagnfræðinni og þetta eru tólin sem við erum að vinna með eins og er. Við erum enn að kenna nemendum að koma frá sér góðum texta en við áttum okkur líka á aðstæðum eins og þær eru. Einnig höfum við reynt að nýta fælingarmáttinn og sýnum nemendum til dæmis þekkt dæmi um þegar fræða- og vísindafólk, jafnvel nafntogað fólk sem er frægt innan sinna fræðaheima, hefur gerst sekt um að nota gervigreind og hversu neyðarleg örlög það eru fyrir viðkomandi aðila.

En svo er einnig mikilvægt að við hugsum gagnrýnið um þá texta sem vitvélarnar skapa, alveg eins og við horfum gagnrýnið á ritaðar heimildir úr sögunni. Við setjum nemendum okkar fyrir texta frá 1890 og bara því hann er frumheimild er ekki endilega víst að þar sé allt satt og rétt.

Það þarf að spyrja spurninga, hver skrifaði textann, hvers vegna, hafði viðkomandi hagsmuni af því að skrifa hann? Við þurfum alltaf að vera vakandi fyrir mismunandi aðstæðum og hver uppsprettan er.

Nákvæmlega svona þarf líka að skoða gervigreindartexta, það þarf að rýna hann. Því eftir því sem þú þekkir fagið þitt betur, þeim mun fleiri glufur finnurðu í slíkum texta. Það að halda að gervigreind sé alvitur er mjög varasöm hugsunarvilla.“

Gervigreind flytur sögukennslu til fortíðar
Líf og starf 15. október 2026

Gervigreind flytur sögukennslu til fortíðar

Gervigreindin er að breyta sögukennslu í framhaldsskólum landsins. Æ fleiri þeir...

Lausn á myndagátu í 18. tölublaði
Líf og starf 12. október 2026

Lausn á myndagátu í 18. tölublaði

Í loftmyndagetrauninni í 18. tölublaði voru lesendur beðnir um að bera kennsl á ...

Lausn á vísnagátunni úr 18. tölublaði
Líf og starf 12. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 18. tölublaði

Hér birtist lausnarorðið við vísnagátunni úr 18. tölublaði Bændablaðsins. Gátan ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.