Hafmeyjan og sólskríkjan
Laugardaginn 29. mars 1947 hófst gos í Heklu eftir rétt rúmlega aldarlangt eldsumbrotahlé. Firnin öll komu upp af vikri og ösku í blábyrjun sem fékk jarðvísindamenn til að velta vöngum yfir hvort öskumagnið í Heklu aukist eftir því sem lengra líður milli gosa. Kunnar eru myndir af þessum fyrstu gosstundum. Þær sýna voldugan öskumökk teygja sig til himins. Lengi voru í notkun frímerki, gefin út í nóvember árið 1948, sem sýna fjallið og mökkinn. Heita má að hvert mannsbarn á Íslandi um 1950 hafi vitað upp á hár hvernig Heklugosið leit út á fyrstu dögum þess því brúnu 50 aura Heklufrímerkin voru á flestum umslögum þessara ára.
Askan dreifðist til suðurs og austurs en ójafnt þó. Samkvæmt gosdagbók Jóhanns G. Guðnasonar, bónda í Vatnahjáleigu í Austur-Landeyjum, var öskufall þar niður frá lítið þótt vel sæist að öðru leyti til eldsins. Jóhann segir að í Landeyjum hafi aðeins lítilræði fallið af vikri en eitthvað af ösku og hafi öskulagið verið rétt um einn og hálfur millimetri. Drunurnar hafi hins vegar stundum verið svo miklar að rúður hafi titrað. Aska steig svo áfram úr gígunum næstu vikur. Segist Jóhann að á stundum hafi hann ekki séð til fjallsins fyrir gosmekkinum sem og mistri frá Fljótshlíðarheiðum, ösku sem vindar feyktu til. Því var nefnilega þannig farið að í innanverðri Fljótshlíð lagðist yfir þykkt vikur- og öskulag þegar gosið hófst. Sjónarvottar lýsa því að vart hafi sést þar í ljósan díl og margir örvæntu um hvort nokkuð myndi spretta þá um vorið eða hvort búsmali kæmist á beit. En fólk tók til hendinni, ræktaði upp öskuborin tún og rakaði hroðanum saman og á endanum hrökk það til að hægt var að láta út kýr og heyja.
Nokkrir lögðu þó árar í bát. Á Nikulásarhúsum í Fljótshlíð fannst þeim Auðuni Pálssyni og Soffíu Gísladóttir útlitið dimmt og fluttust burt úr sveitinni og að Bakka í Ölfusi. Með þeim fóru líka foreldrar Auðuns, Páll Auðunsson og Sigríður Guðmundsdóttir, sem búið höfðu á Nikulásarhúsum frá því á fyrsta áratug tuttugustu aldar. Bæði höfðu þau Páll og Sigríður alið allan sinn aldur í Fljótshlíð og munu hafa saknað heimahaganna mjög þegar þau voru komin vestur. Sigríður var dóttir Guðmundar Guðmundssonar frá Nikulásarhúsum en hann lést þegar hún var rétt eins árs svo hún var tekin í fóstur og ólst upp á næsta bæ austan við Nikulásarhús, Hlíðarendakoti. Þegar fjölskyldan hraktist undan vikrinum sumarið 1947 lauk búskap á Nikulásarhúsum og jörðin fór í eyði. Sést nú ekki annað en þústir til bæjarhúsanna sem stóðu í brekkunni óskammt austan við Hlíðarendakirkju. Þaðan er gríðarfagurt útsýni í allar áttir, austur til Eyjafjallajökuls og inn í Þórsmörk sem og suður yfir Landeyjar og út til Vestmannaeyja. Frá fáum bæjum á Íslandi hefur verið jafn tignarlegt að horfa af hlaði.
Fögur æska
Síðla ágúst árið 1892 fæddist að Nikulásarhúsum Jónína Sæmundsdóttir, sem síðar tók sér listamannsheitið Nína Sæmundsson. Hún lærði höggmyndalist í Kaupmannahöfn, bjó um tíma í París en vann lengst að list sinni í Bandaríkjunum. Nína kom svo til Íslands aftur eftir seinna stríð, settist að í Reykjavík og lést þar árið 1965. Nýverið hefur frægð hennar risið að nýju. Verk hennar eru um þessar mundir sýnd á Listasafni Reykjanesbæjar, afsteypa af einu hennar helsta verki var fyrir skömmu sett upp á Hvolsvelli og nýlega var útvarpað þáttaröð um örlög Hafmeyjunnar, styttu Nínu sem sett var upp í Tjörninni í Reykjavík og síðan var sprengd í loft upp á nýársnótt árið 1960. Þegar komið er fram á tuttugustu og fyrstu öld virðist líf og starf þessarar listakonu okkur miklu nákomnara en margs þess íslenska myndlistarfólks sem mest var látið með á sinni tíð.
Nína var yngsta barn þeirra Þórunnar Gunnlaugsdóttur frá Lambalæk í Fljótshlíð og Sæmundar Guðmundssonar frá Nikulásarhúsum, bróður Guðmundar Guðmundssonar fyrrnefnds. Þau hjón höfðu búið á Nikulásarhúsum frá árinu 1883 og höfðu eignast fimmtán börn en tíu náðu fullorðinsárum. Þegar þau hættu búskap haustið 1907 og fluttu til Reykjavíkur varð úr að bróðurdóttirin, Sigríður, og Páll, eiginmaður hennar, tóku við jörðinni og þannig var hún áfram í ábúð þessa fólks.
Nína fór með foreldrum sínum suður en saknaði Fljótshlíðarinnar sárt og undi sér aldrei í Reykjavík. Það gerðu foreldrar hennar ekki heldur. Þau fluttu aftur austur í Fljótshlíð strax árið eftir að þau komu til Reykjavíkur og voru næstu árin í vinnumennsku á ýmsum bæjum.
Í viðtali sem Matthías Þórðarson þjóðminjavörður tók við Nínu árið 1918 segir hún frá æsku sinni á Nikulásarhúsum og hve landið og ljósið hafi mótað sig. Tímunum saman hafi hún setið á steini og horft á skýin og „dreymt vakandi drauma“. Hún hafi setið yfir ám og smalað eins og önnur sveitabörn á þeirri tíð og ferðir hennar upp í heiðina hafi kennt henni að „elska fjöllin og allt sem þau geymdu í skauti sínu“. Fljótshlíðarinnar minnist hún sem töfralands. Þar hafi ímyndunaraflið skapað heila veröld með henni hið innra og sem hún síðan þráði að sjá birtast sér og öðrum. Hún komst til Kaupmannahafnar og bjó þar hjá frænku sinni, Helgu Guðmundsdóttir, sem rak þvottahús. Helga kostaði Nínu til náms, fyrst í praktískum fræðum svo sem kaupmennsku og tannsmíði uns Nína fann köllun sína í höggmyndalistinni.
Fyrr var kátt í koti
Næsti bær innan við Nikulásarhús er Hlíðarendakot. Þar ólst upp, sem flestum er kunnugt, eitt höfuðskálda Íslendinga í kringum aldamótin 1900, Þorsteinn Erlingsson, og um þann bæ orti hann eitt sitt kunnasta kvæði sem lýsir sólríkri bernsku þar sem „oft var hlegið hátt“ og „hent að mörgu gaman“ á glaðværu og fjölmennu heimili. Þorsteinn fæddist upphaflega í miðbænum á StóruMörk undir Eyjafjöllum, sem eru þar handan Markarfljóts, en var settur til fósturs hjá ömmu sinni og afa í Hlíðarendakoti og var í sérstöku afhaldi hjá þeim.
Þorsteinn var líkt og Nína mótaður af því umhverfi sem hann ólst upp við á æskuárum og tengdist æskuslóðum sínum nánum böndum. Þá, sem muna bláu Skólaljóðin, rámar kannski í kvæði Þorsteins um fossaniðinn í innanverðri Fljótshlíð og er þar engu logið að kliðurinn í þeim mörgu bunandi lækjum og ám er sem hljómfögur sinfónía, enda yrkir skáldið um söknuð sinn eftir þeim og ber saman við danskan hljóðheim og segir „Sjáland sælla“ ef það hefði slíkt fyrir eyrum.
Líkt og Nína dvaldi Þorsteinn árum saman í Kaupmannahöfn, fyrst við nám en síðan vinnu og giftist raunar danskri konu, en kom að endingu heim til Íslands og sá fyrir sér með blaðamennsku austanlands- og vestan uns hann settist að í Reykjavík, giftist innlendri stúlku sem hann elskaði heitt og reisti sér og fjölskyldu sinni hús syðst í Þingholtsstræti.
Þorsteinn var ástsælt skáld um sína daga, tilfinningaríkur maður sem lagðist á árar við eflingu dýraverndar og tók til varna fyrir þá sem minna máttu sín og var í ofanálag einn helsti trúleysingi hérlendis um sína daga. Hann var ötull við að styðja við ýmsa í sínu skapandi starfi og nægir að nefna skáldkonurnar Ólöfu frá Hlöðum og Huldu.
Sú var tíðin að fólk kunni hendingar úr helstu kvæðum hans svo sem Arfinum þar sem þau fleygu orð standa að vínið verði bjartara við glasaglaum ef einhver grætur þar hjá hryggðartárum og enn heyrist fólk segja „ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, þá ertu á framtíðarvegi“. Því Þorsteinn var maðurinn sem fann rétta tóninn fyrir aldamótakynslóðina, laus við ofurmennisbelging og heimshryggð nýrómantísku skáldanna, en kunni að spila á pípur vorsins og vonarinnar. Þess vegna gat hann ort kvæði eins og Hreiðrið, ákall um að vera ekki að atast í fuglunum, og Sólskríkjuna sem er fagnaðaróður um söng okkar minnstu bræðra og systra og hve gleðin er mikil að heyra hann óma. Þar er íslenska vonin um eilíft vor öll samankomin í fáum línum þegar sólskríkjan biður sumarið um að líða aldrei undir lok og að næturnar megi „dreymandi bíða“ til eilífðar.
Á aldarafmæli Þorsteins 27. september 1958 var afhjúpaður minnisvarði um skáldið rétt vestan við Hlíðarendakot í svokölluðum Þorsteinslundi, brjóstmynd sem sveitungi Þorsteins, Nína Sæmundsson, gerði. Uppi á brekkunni, skammt austan við Hlíðarendakirkju, er svo önnur höggmynd eftir Nínu, verkið Ung móðir. Það var sett niður á bæjarstæði Nikulásarhúsa á afmælisdegi Nínu, 26. ágúst aldamótaárið 2000 og um leið markaður Nínulundur til minningar um hana og æsku hennar. Þaðan „gnæfir sú hin mikla mynd“ sem Jónas Hallgrímsson orti um í Gunnarshólma: Eyjafjallajökull, Þórsmörkin, Markarfljótsaurar og víðlendi Landeyjanna. Æskuútsýni Nínu.
