Sauðfé ræður tónleikahaldi
Vikar Mar er sauðfjárbóndi og myndlistarmaður á Hjalteyri í Eyjafirði. Nýlega hóf hann einnig rekstur á staðnum Leyni, sem er bar, tónleikastaður og sýningarrými í miðbæ Akureyrar.
Leyni er staðsettur við þann hluta Hafnarstrætis sem er að jafnaði kallaður göngugatan á Akureyri. Í rýminu var starfrækt apótek í rúm 50 ár sem var lokað sumarið 2025 og tók Vikar við keflinu þegar hann opnaði Leyni í desember sama ár.
Ekki bara bar
Vikar segist hafa komið víða við í veitingaheiminum meðfram búskap og myndlist áður en hann ákvað að opna staðinn. „Ég hafði verið að vinna bæði í fiskvinnslum og sláturhúsum. Ég tók þátt í að opna veitingastaðinn Eyri á Hjalteyri á sínum tíma og var lengi rekstrarstjóri á Götubarnum sem er hérna hinum megin við götuna. Þegar ég hætti þar ætlaði ég að láta gott heita í þessum veitingaheimi en svo losnaði húsnæðið sem apótekið hafði verið í og þá fékk ég þessa hugmynd.
Ég var spenntur fyrir því, ef ég væri að fara aftur út í eitthvað svona, að tvinna menningar- tengda starfsemi inn í það. Ég var búinn að gæla við að opna venue [viðburðastað], mér fannst skortur á slíkum stað á Akureyri, bæði tónleikastöðum og sýningar- rýmum,“ segir Vikar.
Hann segist hafa ákveðið að vera með rekstur sem væri óháður viðburðum til að þurfa ekki að reiða sig á styrki líkt og grasrótarrými þurfa gjarnan að gera.
„Ég ákvað að láta reyna á barreksturinn til að geta verið með svona fjölhæft rými á besta stað í bænum. Áherslan var alltaf á að þetta yrði stærra batterí.“
Skólabræður úr Þelamerkurskóla
Leyni er rúmgóður staður. Salur er inn af barnum þar sem hægt er að halda tónleika. „Apótekið var ekki í svona stóru rými,“ útskýrir Vikar, „en það var hér rosalegt bakrými sem ég sá tækifæri í. Við vorum í framkvæmdum í þrjá mánuði, það var slatti af niðurrifi fyrst og svo uppbygging aftur. Við unnum þetta að mestu leyti sjálfir, nokkrir skólabræður úr Þelamerkurskóla; Helgi Pétur Davíðsson frá Kjarna, Elvar Ingvarsson og Óskar Þór Jónsson.“ Þelamerkurskóli er grunnskóli í Hörgárdal og þangað koma nemendur úr allri Hörgársveit en Vikar bætir við að heiman úr sveit séu þeir þrír í fullri vinnu á Leyni.
Næturvinnan passar vel við búskapinn
Átta ár eru síðan Vikar hóf búskap á Ytri-Bakka. „Amma og afi höfðu verið með sauðfé en enginn tók við af þeim svo búskapur lagðist af um tíma. Þegar ég tek þessa ákvörðun að mig langi að verða bóndi þarf að byrja upp á nýtt á mörgu. Þá þurfti ég að girða upp á nýtt og kaupa vélar og fé.“ Vikar er sem stendur með 170 rollur og eingöngu sauðfé. „Ég var brattur á þessum tíma, ég hafði mikla trú á að þetta myndi allt bjargast og ég gæti bara verið í búskapnum, en svo hefur maður verið mjög duglegur að vinna meðfram því, sem útskýrir kannski stöðu mála.“
Vikar segir að að mörgu leyti passi næturvinnan betur við búskapinn en önnur vinna sem hann hefur stundað. „Ég hef nánast allan daginn heima á bæ og er á veturna ekki að lenda í því að það sé ekki búið að moka þjóðveginn á milli eins og var gjarnan þegar maður var að byrja að vinna klukkan átta. Mér finnst þetta vinna furðuvel saman.“
Myndlistin fléttast inn í allt hitt
Vikar er með vinnustofu í gömlu verksmiðjunni á Hjalteyri. Þar vinnur hann að listinni en stutt er að fara þangað frá Ytri-Bakka. Hann segir myndlistina fléttast inn í hin störfin. „Bæði í fjárhúsunum og á barnum get ég verið að hugsa um myndlistina og fæ alls konar hugmyndir, hún er alltaf á bak við eyrað. Það er erfiðara að sjá um barinn í fjárhúsunum og kindurnar á barnum,“ segir Vikar.
Vikar segir það skemmtilegt að hafa virkt sýningarrými á barnum en hann býður myndlistarfólki að setja upp sýningar á staðnum sem standa í tvær vikur í senn. „Sýningarrýmið er ekki hefðbundið, hér er í raun léleg lýsing, dökkur veggur og fólk sem situr við eða fyrir verkunum. En það er gaman að sjá verk í öðru ljósi og hér er markhópur að sjá verkin sem myndu sennilega ekki rata inn á söfnin,“ segir Vikar.
Sjálfur er hann að vinna að verkum sem eru einnig sýnd utan hefðbundinna sýningarrýma. Vikar var að klára verk sem unnin eru fyrir verslanir 66° Norður á Laugavegi og á Regent Street í London í tilefni af 100 ára afmæli fatamerkisins.
Sýningarnar rúlla á um það bil tveggja vikna fresti á Leyni og er stefnan því að halda 25 sýningar á árinu. Hann segir andrúmsloftið annað en á hefðbundnum opnunum. „Maður gefur sér allt öðruvísi tíma á opnunum á bar en í hefðbundnum galleríum því að maður sest niður, fær sér drykk, dettur í spjall og svo berst hugurinn jafnvel aftur að verkunum seinna um kvöldið.“
Sauðfé og skemmtidagskrá
Virk viðburða- og tónlistardagskrá hefur verið á Leyni á árinu. „Við erum að sinna jaðarsenunni hvað mest en viðburðirnir eru fjölbreyttir, við höfum verið með harmonikkufélagið og dauðarokk og allt þar á milli,“ segir Vikar, en áhersla hefur verið á að halda viðburði sem ekki fá vettvang annars staðar í bland við reynslumeiri atriði.
„Við höfum verið með eitthvað í gangi flestar helgar en förum svo í pásur í viðburðahaldinu þegar það eru til dæmis göngur og réttir og svo þegar það er sauðburður á vorin. Þá minnkar skemmtanahaldið til muna. Ég veit ekki hvort Akureyringurinn taki eftir þessu en eins og núna í september vorum við ekki með neina tónleika á meðan við vorum í göngum.“
Hann segir það geti komið sér vel að vera bóndi og bareigandi. „Ég heft oft talað um að eftir miðnætti um helgar þá sé skemmtanalífið orðinn ákveðinn dýragarður. Þá getur maður jafnvel sagt að fé hegði sér betur en fólk.“
