Þegar sólin rís og dagurinn kviknar
– Varaformaður Skotvís opnar umræðuna um hreina fæðu
Bjarnþóra María Pálsdóttir hefur sinnt ýmsum ábyrgðarhlutverkum í lífinu, ávallt staðið keik og samkvæm sjálfri sér. Nú kynnumst við henni sem varaformanni Skotveiðifélags Íslands og ötulum talsmanni þess að landsmenn nái sér í prótein upp á gamla mátann en dufti ekki yfir sig.
Bjarnþóra, eða Þóra eins og hún er kölluð, var kjörin varaformaður Skotvís nú í byrjun árs, en hafði áður setið í stjórn, enda mikil áhugamanneskja um skotveiðar og óhrædd við að láta til sín taka varðandi hagsmunamál veiðimanna.
„Ég man eftir því þegar ég var ellefu ára, búsett á Ólafsfirði, að hafa fengið óstöðvandi áhuga á að dorga. Mamma var að verða vitlaus á aflanum og heimiliskettirnir höfðu engan áhuga, samt marhnútar og fínerí, en þarna kviknaði þessi baktería, kikkið við hvað er gaman að veiða. Ég fór samt ekkert í veiðimennskuna af viti fyrr en miklu seinna,“ segir Þóra, enda stundaði fjölskylda hennar lítið veiðar og veiðibakterían því ekki beinlínis í blóðinu.
Fyrirferðarmiklar matartilraunir fylgdu nýjum lífsstíl
„Árið 2013 ákveðum við Sigurður Jónasson, maðurinn minn, að flytja út á land, á Blönduós. Ég hafði eytt meirihluta starfsferilsins við að vinna með fólki og oft og tíðum í þungum málaflokkum því tengdu. Langaði að breyta alveg til og dreif mig í Háskólann á Hólum í ferðamálafræði.
Þóra segir nálægðina við náttúru og miklar veiðilendur fyrir norðan hafa orðið til þess að hún hafi drifið sig í að taka byssuleyfi þetta sama ár. Einnig hafi maður hennar verið mikið í veiði og lá beinast við að hún drifi sig í sportið.
„En þarna byrjuðum við að stunda þetta á fullu, við hjónin, og það er akkúrat það sem maður saknar við að vera kominn í borgina aftur – að geta ekki bara skroppið spontant á gæs eða rjúpu án nokkurrar fyrirhafnar eins og áður var. Það má taka fram að við veiddum mjög mikið og voru matartilraunir mínar nokkuð fyrirferðarmiklar á samfélagsmiðlum á þessum tíma ... Sumir urðu full svangir að fylgjast með mér í eldhúsinu, enda borðuðum við hreindýrasteikur á þriðjudögum og gæsalifrarpaté á miðvikudegi ef því var að skipta.
Þessi nýi lífsstíll varð til þess að ég fór að huga betur að mataræði og hollustu en áður. Villibráð hlýtur að vera með því hollasta sem fólk getur látið ofan í sig, enda lifa dýrin frjáls í sínu eðlilega umhverfi og lifa á næringu án afskipta eða inngripa mannskepnunnar með ódýrari hráefnisvali, sýklalyfja- notkun og fleira sem er að finna í verksmiðjuframleiddu kjöti í mismiklum mæli hér á landi og annars staðar.
Kjósum við þrjátíu innihaldsefni yfir hreint fæði?
Þóra segist annars velta fyrir sér öllum þeim meintu heilsuvörum sem er otað að landsmönnum þessa dagana. Sé farið í matvöruverslun er hin meinta heilsudeild full af dufti, fjöldaframleiddum próteinstykkjum með ótal innihaldsefnum og löngum gildistíma.
„Fólk sem vill takast á við bætta heilsu horfir til þessara vara og við sem kjósum að borða dýraafurðir og ekki hvað síst villibráð upplifum stundum fordóma fyrir okkar val á næringu. Villibráð, sem var veidd á íslenskri heiði og lifði á hreindýramosa, íslenskum berjum og grasi, hlýtur að vera hollari kostur en það sem telur mörg innihaldsefni og skammstafanir sem venjulegt fólk hefur ekki hugmynd um hvað er í raun og veru.
Af hverju erum við í alvörunni ekki að ræða hvað við erum að gefa litlu börnunum okkar í formi einhverja „pöffa“ og hringja sem koma úr pakka með langan lista af innihaldsefnum, viðbættum sykri og enn lengri geymslutíma? Mér finnst þetta áhugavert og í raun galið með tilliti til hollustu og mataræðis, fólkið sem lætur oft mest á sér bera á þeim vettvangi er á kafi í alls kyns duftum. Borðum frekar hreinan mat – það er eina vitið.“
Morðæði eða núvitund?
„Annars er þetta líka heilmikil núvitund, að skrönglast í svarta myrkri, stilla upp, liggja svo í skurðinum og bíða en fylgjast á sama tíma með sólinni rísa og nýjum degi að kvikna. Það eru svo margir sem missa af þessum töfrum, að fylgjast með dagrenningunni, öllum þeim litum og hljóðum sem henni fylgja. Hvernig allt vaknar til lífsins og að sama skapi þegar ljósaskiptin eiga sér stað þegar tekur að kvölda. Þetta er ekki síður það sem fær mann af stað og það sem ég er farin að hlakka til. Að verða einn með náttúrunni er ómetanleg upplifun og aðaláherslan ekkert endilega veiðarnar. Deila súkkulaðibita með músinni sem laumar sér inn í felubyrgið til þín. Ekkert sem toppar þessi lífsgæði.
Fólk sem er ekkert inn í þessu heldur oft að við sem veiðum séum oft og tíðum morðóðir vitleysingar, en það er algerlega annar vinkill til á þessu. Auðvitað er til fólk sem stendur í magnveiði og veit svo ekkert hvað það á að gera við bráðina, rífur kannski úr þeim bringuna og skilur hræið eftir.
En að veiða sér til matar og sýna náttúru og bráð virðingu, það er málið. Venjulegir veiðimenn eru þar, enda oftar en ekki mikið útivistarfólk og vant því að taka tillit til náttúrunnar. Svo má bæta við að þó kvikni á einhverjum frumkrafti hjá manni við veiðarnar, eru þær einnig nauðsynlegar til að halda stærð hjarðar í skefjum. Það gæti til dæmis allt farið úr böndunum ef hreindýr fengju að fjölga sér ótakmarkað því svæðið sem þau halda til á ber það ekki. Það eru hreint ekki allir til í að hlusta á þessa hlið en samt alveg til í að mæta á og borga stórfé fyrir að upplifa villibráðakvöld á einhverjum veitingastöðum.“
Margþátta veiðitúrar bestir
„Annars veiði ég aðallega gæs og endur, mér þykja það bestu matfuglarnir … einhverja rjúpu reyndar líka á Blönduóstímanum, enda áttum við fuglahund sem leitaði að rjúpu helst allt árið um kring,“ segir Þóra og hlær. Henni þykir rjúpa nefnilega ekkert sérstaklega bragðgóð og kýs frekar að veiða 1–2 fugla og matreiða súpu, sem rennur betur niður.
„Við hjónin fluttum svo í bæinn og það urðu hlé á veiðunum hjá mér vegna veikinda sem urðu til þess að ég hef ekki getað beitt líkamanum til skotveiða,“ segir Þóra, „ekki fyrr en nú í haust og ég er svo spennt! Þetta gefur manni svo mikið enda getur góður veiðitúr verið svo margþátta.“ Þóra kann margar sögur, enda ýmislegt sem getur komið á óvart þegar farið er í veiði.
„Ein fyndnasta ferðin okkar hjóna er líklega þegar við fórum á gæs í Fitjárdalinn fyrir norðan, vorum búin að bíða marga klukkutíma í skurðinum, skítkalt og bara engan fugl að sjá. Þannig við ákváðum að fara aðeins inn í bíl að hlýja okkur og þegar við vorum komin svona 100 metra frá, lítum við við og þá höfðu sirka 200 fuglar lent á túninu!
Greinilega voru gæsirnar að bíða eftir að við færum til að leika á okkur, helvískar. Þetta var svakalegur fjöldi,“ segir Þóra og hlær. Við hugsuðum bara … eruð þið að grínast!? Reyndum auðvitað að skríða í áttina til hópsins, en áttum ekki séns, þær sáu okkur og létu sig hverfa. En magnið var ótrúlegt! Við vorum orðlaus. Skemmtilegustu veiðiminningarnar snúast nefnilega sjaldnast um hve marga fugla maður veiddi.
Svo verð ég nú að láta fylgja hérna með,“ heldur Þóra áfram, „þegar ég var í löggunni á Hólmavík og við Siggi þá búsett á Borgarnesi. Ég var á vakt og Siggi hugsar sér gott til glóðarinnar, að mæta á svæðið og ná sér í rjúpu enda mikil rjúpnaveiði þarna í kring. Hann kom með hundinn með sér og þá hundabúrið, vel útbúinn maðurinn … Var svo akkúrat að gera sig kláran í veiði þegar ég fékk útkall vegna hafarnar sem hafði lent í vandræðum rétt utan við Hólmavík. Þegar búið var að handsama fuglsgreyið voru góð ráð dýr. Hann þarfnaðist frekari aðhlynningar og ekki gat ég ekið honum til borgarinnar verandi eina löggan á vaktinni.
Siggi var ræstur í verkefnið og úr varð að örninn fór í hundabúrið og Krapi minn settur á gólfið við framsætið og Siggi ók sem leið lá suður með gripinn. Það eru ekki allir sem lenda í því að drösla haferni með sér í skottinu,“ segir Þóra glottandi, „rjúpnaveiðin er ekki alltaf gefin skulum við segja.“
Vaxandi hlutur kvenna í skotveiði af hinu góða
En að lokum aftur að heilnæmu mataræði og mikilvægi þess að viðhalda þessari góðu hefð sem veiði er.
Þóra segist nýverið hafa verið erlendis, á fundi FACE, Evrópusambands skotveiðifólks, þar sem m.a. var rætt um að tengja börn við náttúruna í gegnum mat og náttúru. Einnig, til að koma inn hollari valkosti á matarborð fjölskyldunnar, var talið vænlegt til árangurs að virkja konuna – en konur eru enn þá í miklum minnihluta þeirra sem öðlast skotvopnaleyfi og halda til veiða þó þeim fari fjölgandi bæði hérlendis sem erlendis.
„Mjög svo áhugaverð verkefni eru t.d. í Danmörku og nokkrum Austur-Evrópulöndum sem snúa að því að kynna börn fyrir þessum mikilvæga heimi sem nútímamaðurinn er sífellt að fjarlægjast meira og meira. Að veiða sér til matar í óspilltri náttúru er þekking sem verður að færa til kynslóðanna sem á eftir okkur koma.
Í Bandaríkjunum eru svo haldin sérstök námskeið fyrir konur til að kenna þeim allt sem máli skiptir við veiðar, allt frá réttum klæðnaði, umhirðu og notkun skotvopna, að lesa í náttúruna, fella dýr, gera að því og að lokum elda matinn. Enda er villibráð hollasti matur sem hægt er að komast í og gott að borða það sem maður hefur sjálfur veitt.
Þetta helst í hendur við að rækta grænmetið sitt í garðinum, fara í berjamó, gera hlutina frá grunni. Einfaldlega allt önnur gæði,“ lýkur Þóra máli sínu og mega margir taka undir þau sannindi.
Gaman er að segja frá því að ákveðin tímamót urðu árið 2019 hjá Skotveiðifélagi Íslands þegar í fyrsta sinn sátu tvær konur í stjórn félagsins, Þóra auk Þóreyju Ingu Helgadóttur. Það þótti ánægjulegt tákn um vaxandi hlut kvenna í skotveiði á Íslandi. Í dag eru tvær konur í stjórn félagsins og má vonast til að með tímanum verði hlutfall þeirra enn stærra.
