Silfurstjarnan sýnir hvernig landeldi hefur þróast
Ein rótgrónasta fiskeldisstöð á landi er í Núpsmýri í Öxarfirði og er rekin af Samherja. Lengi vel var hún meðal stærstu landeldisstöðva heimsins, en telst lítil í samanburði við metnaðarfull verkefni sem eru í uppbyggingu.
„Formlegt heiti fiskeldisins hér er Samherji Fiskeldi í Núpsmýri, en það þekkja allir þetta sem Silfurstjörnuna,“ segir Elvar Steinn Traustason rekstrarstjóri í samtali. Uppbygging fiskeldis hófst á þessum stað árið 1988 og Samherji kom inn í reksturinn árið 2004 og er aðaleigandi fiskeldisstöðvarinnar í dag. Núna er eingöngu alinn lax í Núpsmýri, en áður var þar jafnframt ræktuð bleikja og lúða.
Á árunum 2022 og 2023 hófust hér framkvæmdir við stækkun eldisins,“ bætir Elvar við. „Fyrir breytingarnar fór framleiðslan mest upp í 1.800 tonn á ári, en eftir stækkun var eldisrýmið tvöfaldað og getum við framleitt meira en 3.000 tonn. Þetta er sérstök stöð af því að við erum með nánast allt ferlið frá hrogni að fiski á diski, en oftast eru þetta aðskildar einingar. Héðan fer frá okkur slægður fiskur með haus til viðskiptavina sem eru að stórum hluta í Evrópu og Bandaríkjunum og eins og staðan er í dag er þetta eini laxinn sem er framleiddur hjá Samherja. Fyrirtækið er hins vegar í uppbyggingu á svokölluðum eldisgarði á Reykjanesskaganum sem verður með framleiðslugetu upp á 12.000 tonn á ári í fyrsta fasa, en mun ná 36.000 tonna framleiðslugetu að loknum þriðja fasa – sem sagt allt annað skrímsli en hér.
Á síðustu árum hefur þessi bransi stækkað hratt, en það er ekki langt síðan Silfurstjarnan var ein af stærstu landeldisstöðvum með lax í heiminum, ef ekki sú stærsta. Í ár stefnir í að bæði Laxey og First Water taki fram úr okkur og svo stendur til að fyrstu seiðin fari í eldisgarða Samherja á Reykjanesi árið 2027. Ísland hentar vel fyrir laxeldi, sérstaklega á landi, en hérna er gott aðgengi að hreinum sjó og ódýr raforka. Við erum með aðgengi að alþjóðlegum flugvöllum og erum stutt frá stórum mörkuðum báðum megin við Atlantshafið. Þessar góðu aðstæður gera okkur kleift að keppa við sjókvíaeldi annars staðar í heiminum þar sem framleiðslan er ódýrari.“
Eftirspurnin vex hraðar en framleiðslan
„Landlax og sjókvíalax eru bæði gæðavara, en ég er auðvitað hlutdrægur og finnst þessi fiskur sem við framleiðum hér langbestur,“ segir Elvar. „Það er mjög gott að ala lax uppi á landi þar sem við höfum góða stjórn á aðstæðum og framleiðslan er stöðug. Við getum áætlað langt fram í tímann hvað við getum afhent sem auðveldar okkur að ná góðum samningum hjá kröfuhörðum viðskiptavinum sem vilja stöðugar afhendingar með jöfnum gæðum. Í sjókvíaeldi er þetta erfiðara þar sem það eru hápunktar og lágpunktar í framleiðslunni.
Fiskurinn sem er markaðssettur sem Landlax og sést oft í verslunum kemur héðan úr Öxarfirðinum, en við sendum hann í flökun og pökkun í matvælavinnslunni Borg í Borgarnesi. Það að selja lax á innanlandsmarkaði var hálfgert tilraunaverkefni til að byrja með, en viðtökurnar hafa farið fram úr okkar björtustu vonum.
Á undanförnum árum hefur eftirspurnin eftir laxi á heimsvísu vaxið hraðar en framleiðslan. Þökk sé mikilli uppbyggingu á sjókvíaeldi á laxi og með öflugu markaðsstarfi í Noregi er búið að gera mjög sterkan markað fyrir lax sem við njótum góðs af. Ég myndi ekki telja mikla áhættu á að eftirspurnin eftir laxi hrynji skyndilega á næstu árum. Ef þú ætlar að veðja á einhverja dýrapróteinframleiðslu fyrir næstu áratugi held ég að það sé alltaf fiskeldi. Þeir hlutir sem hafa mest áhrif á eftirspurnina er hratt stækkandi millistétt í Kína og sushi sem er tískuvara í Bandaríkjunum og Evrópu. Þegar öll verkefnin sem eru í uppbyggingu á Íslandi verða komin í fulla framleiðslu munu þau skila af sér 150 til 200 þúsund tonnum á ári. Það er bara dropi í hafið miðað við að árleg framleiðsla í heiminum öllum eru um tvær og hálf milljón tonna af laxi.“
Iðnaðurinn kallar eftir leikreglum
„Til þess að gera eitt kílógramm af laxi notum við 1,2 kíló af fóðri,“ segir Elvar. Þetta hlutfall sé afar gott sé horft til eldis á öðrum dýrategundum og geti verið enn hagstæðara sé notað sérstaklega orkuríkt fóður. „Við hjá Samherja notum fóður með háu hlutfalli af fiskimjöli sem er örlítið orkuminna en fóður með mikilli fitu úr repju og soja. Vöxturinn verður aðeins hægari en á móti teljum við að það skili sér í þéttara og betra holdi. Fóðurkostnaðurinn er á bilinu 40 til 60 prósent af rekstrarkostnaði fiskeldis, algjörlega óháð því hvort þú ert á landi eða í sjó.
Slógið og seyran er lítið nýtt í dag á meðan það er alltaf að verða ríkari krafa á landeldi að hreinsa frárennsli og safna saman úrganginum. Lög og reglur með frágang og notkun á seyru eru takmarkandi og óljósar, en ég held að allur iðnaðurinn bíði eftir því að stjórnvöld setji skýrar leikreglur. Það eru mikil næringarefni í mykjunni og það hefur gefist vel í tilraunum að dreifa henni á afmarkaða landgræðslu- og skógræktarreiti.
Þetta gengur núna með 3.000 tonna framleiðslu hérna í Öxarfirðinum, en þegar landeldið fer að nálgast 200.000 tonn á Íslandi mun ansi mikið af verðmætum næringarefnum falla til á hverju ári. Hjá iðnaðinum er mikil vinna við að finna þessu farveg, hvort sem það er í formi áburðar, gass, eða lífkola. Hversu mikið magn úrgangs verður til hérna í Silfurstjörnunni fer eftir því hversu mikið vatn við getum sigtað frá. Með nýjustu tækni standa vonir til að hægt verði að hreinsa út allt að 50 til 60 prósent af þurrefnum úr afrennslisvatninu,“ segir Elvar.
Silfurstjarnan ákveðið „icon“
Elvar hóf störf sem rekstrarstjóri fiskeldis Samherja árið 2024, en starfaði áður hjá Arctic Fish sem er með sjókvíaeldi á laxi á Vestfjörðum. Hann er menntaður líffræðingur með meistaragráðu í fiskeldi. „Þegar ég fékk tilboð um starf hérna var það afar freistandi, en þetta er sögufræg stöð og flestir sem eru viðriðnir fiskeldi á Íslandi þekkja til Silfurstjörnunnar sem hefur lengi verið ákveðið „icon“,“ segir hann.
„Þegar fólk gengur í gegnum stöðina er það í raun að sjá hvernig þróunin hefur verið í fiskeldi á landi undanfarna áratugi. Við erum enn þá að nota fyrstu körin sem standa vel fyrir sínu, en þau eru mjög einföld og fyrir utan eðlilegt viðhald hafa þau lítið verið uppfærð. Í nýjustu kerjunum þurfum við bara einn mann með fartölvu til þess að losa 250 tonn af fiski, en ef við ætlum að losa 60 tonn af fiski úr elstu kerjunum þarf fjóra til sex starfsmenn með nót og dælur. Núna geta færri hendur meðhöndlað miklu meira magn af fiski, en það krefst miklu meiri tækni- og tölvubúnaðar,“ segir Elvar.
