Gestir ganga glaðir í bústörfin
Howell Living History Farm er blómlegt útisafn í New Jersey í Bandaríkjunum. Forstöðumaðurinn og bóndinn, Pete Watson, sótti Ísland heim í tilefni af ráðstefnu alþjóðlegra samtaka úti- og landbúnaðarsafna (ALFHAM), sem haldin var í Reykjavík á dögunum. Blaðamaður hitti brosmildan Pete, sem hefur verið í framlínu ALFHAM um langt árabil.
Að viðhalda þekkingu á fornum búskaparháttum og fræða um þá í lifandi söfnum er hluti af markmiðum samtakanna. „Í varðveislu gamalla búskaparhátta á útisöfnunum, liggja fræ fyrir framtíðina, þekking fyrri kynslóða sem stunduðu landbúnað í takti við náttúruna og hlúðu að eigin heilbrigði, en líka skilvirkni. Það væri galið að glata þessari þekkingu.“ Hann segir ekkert mikilvægara en gestina sem koma og upplifunina sem þeir taka með sér heim.
Að sænskri fyrirmynd
Pete Watson hefur sérhæft sig í að kenna forna búskaparhætti og á Howellbýlinu fer fram árleg keppni í að plægja með dráttarklárum. Sú fertugasta og þriðja var haldin nú í haust. Pete hefur stýrt safninu allt frá stofnun þess árið 1974, þegar fyrri eigandi gaf búskapinn og jörðina, rúma 50 hektara, sýslunni, með það að sjónarmiði að miðla fornum búskaparháttum til komandi kynslóða. Frumbyggjar Delaware (Lenape) höfðu þá stundað búskap og veiðar á landinu í 230 ár.
Safnið byggir á lifandi starfsemi sem gestir, sem flestir eru hópar skólakrakka, upplifa með því að taka þátt í búskapnum. Pete segir slík söfn vera að sænskri fyrirmynd, Skansenútisafnsins sem er í Stokkhólmi og var stofnað 1891. Hann segir fjölmörg slík söfn vera í nálægð við borgir í Bandaríkjunum og um hundrað slík vera í samtökunum. Hann segir fólk í borgunum hafa áhuga á að vita hvaðan maturinn kemur og slík starfsemi lifandi safna fari vaxandi á heimsvísu.
Um þriðjungur landsins á Howellbýlinu eru ræktuð tún og akrar og restin er beitiland og skóglendi. Pete segir stærðina hafa verið nokkuð dæmigerða fyrir bóndabæi um aldamótin 1900.
Kornrækt, kartöflur, síróp og cider
„Við bjóðum gestum að læra að plægja akrana, setja niður kartöflur, raka nýslegin tún eða safna eggjum,“ segir Pete. Nefnd um almenningsgarða sýslunnar fer með mál safnsins og tryggir rekstrargrundvöll þess, og hann segir dýrmætt að hún sjái gildið í starfseminni. Hún veiti þéttbýlu svæðinu tækifæri á nálægð við náttúru og búskap.
Pete segir að þegar hann fæddist, árið 1948, hafi landbúnaðarland á svæðinu verið um 800.000 hektarar, en séu um 280.000 hektarar í dag.
Akrarnir á Howell-útisafninu eru plægðir með dráttarklárum, maískorni, höfrum og hveiti sáð, kornið þreskt, þurrkað og malað, búfénaðurinn fóðraður, kartöflur settar niður og teknar upp, ýmiss konar grænmeti er ræktað, kýrin mjólkuð, sauðfénu smalað, hlynsírópi tappað af trjánum og cider lagaður úr eplunum.
Pete bendir á gæði Árbæjarsafnsins, sem hann heimsótti sem hluta af ráðstefnudagskránni, „þú gefur fólki tækifæri á að snerta arfleifðina, söguna og prófa að lifa hana.“
Upplifði kúadaga í æsku
Búskapurinn á Howell-útisafninu er stundaður eins og á árunum áður en traktorar komu til sögunnar. Þar má segja að sé blandað bú, „mjög ólíkur búskapur því sem er ríkjandi í Bandaríkjunum í dag“, segir Pete.
„Þegar ég var að alast upp í New Jersey var bændum að fækka. Áhugi minn kviknaði þar. Við krakkarnir borðuðum gómsætan ís beint frá mjólkurbúunum í kring,“ segir Pete, sem er alinn upp í hverfi sem var hluti mjólkurbús. Hann segir bændur hafa selt beitarlönd til að borga skatta en búfénaðurinn hélt áfram að sækja í beit í sínum heimahögum. Það hafi reglulega valdið usla þegar flokkar nautgripa flökkuðu um, og var ekki alls kostar hættulaust. „Tímarnir voru að breytast,“ segir Pete, „kýrnar og nautin vissu það ekki.“ Krökkum var þá ekki hleypt í skólann og „kúadegi“ lýst yfir.
Öflugt samstarf við skóla
Pete segir ekkert mikilvægara en upplifun þeirra gesta sem koma hvern dag. „Allir taka eitthvað með sér heim, en við vitum ekki endilega hvað það verður.“
Pete og samstarfsfólk hans á í góðu samtali við kennara sem koma með nemendur. Í sameiningu finna þau leiðir til að tvinna heimsóknina inn í þau fög sem unnið er með í skólanum þá stundina, hvort sem það er samfélagsfræði, saga, listir eða annað. Hann segir það samtal verðmætt og tengja nærsamfélagið og safnið nánum böndum.
Hann segir böndin hafa orðið enn sterkari eftir að heimsfaraldur reið yfir. Sama hafi átt við um sambærileg söfn í Bandaríkjunum, en þau eru fjölmörg, segir Pete. „Mannsandinn finnur aðrar leiðir á krísutímum. Í stað þess að framleiða tvö til þrjú tonn af kartöflum, framleiddum við fimmtán tonn af kartöflum og grænmeti. Heimsfaraldurinn kenndi okkur að finna öruggar og skilvirkar leiðir til að bjóða fólki að taka þátt í ríkara mæli. Það var gjöfult bæði fyrir okkur og þau sjálf og þjónaði samfélaginu okkar.“
Enginn búskapur er lítill
„Það er ekkert sem heitir lítill búskapur,“ segir Pete þegar tal berst að ræktun í heimilisgörðum. „Framtakið sem það krefst að rækta og fá uppskeru er áskorun. Það er nærandi á svo margan hátt. Að borða af sinni eigin fersku uppskeru og að vera hluti af hringrásinni, það gefur eitthvað fleira en bara kaloríur.“
Pete segir innan við 1,5% Bandaríkjamanna rækta sér til matar, sú tala sé hærri á Íslandi. Hann segist finna aukinn áhuga á hvernig matvælaframleiðsla fer fram. „En það er ekki á hvers manns færi að vera bóndi.“
Uppskeran frá Howell-býlinu fer til samfélagseldhúsa svæðisins og nýtist til matargerðar fyrir þá sem á þurfa að halda. „Varan okkar er fræðsla og upplifun, hún er næringarrík á sinn hátt, en við seljum ekki afurðirnar, þær nýtast annars staðar.“
Upplifunin lítið breyst
Pete segir upplifun gesta af heimsókn á Howell-býlið ekki endilega hafa breyst í gegnum áratugina en að gestir séu nú einfaldlega fleiri ár hvert og hver kynslóð taki eitthvað með sér heim. „Ég ímynda mér að eftir 50 ár verði þetta ekki svo breytt. Fólk mun enn koma og hjálpa til við að setja niður og taka upp kartöflur, finna fyrir moldinni, skoða ormana og verða dálítið skítug og glöð.“
Hann segir frá nýlegri heimsókn gests, sem reyndist vera dýralæknir. Sá hafði komið sem gestur á Howellbýlið þegar hann var 9 ára og hitt á dýralækni með hlustunarpípu sem kenndi honum að finna og hlusta á hjartslátt hests. „Ég hafði aldrei komið nærri svo stórri skepnu á ævinni, við áttum hvorki hund né kött, þetta var svo stór upplifun,“ sagði dýralæknirinn ungi þegar Pete spurði hvort heimsóknin hefði kveikt áhuga hans á dýralækningum.
Heillaður af notkun jarðvarma
Pete segist heillaður af því hvernig jarðvarmi er notaður í ylrækt á Íslandi, hér ríki andi nýsköpunar, sem hann segir gott dæmi fyrir bændur annars staðar í heiminum um það hvernig nýta megi gæði á hverjum stað. Og ekki síður tæknina.
„Við þurfum bæði að styðja við og hugsa um nærumhverfið okkar, en líka skilja áskoranir landbúnaðarins á tímum mikilla breytinga.“ Pete segir umhverfis- og loftslagsmál vera ríkulegan hluta af fræðslustarfinu á Howell-býlinu. „Í upphafi vorum við smeyk um að verða dýragarður þar sem krakkar kæmu bara til að klappa dýrunum, en áttuðum okkur svo á að það var akkúrat tilgangurinn. Þessi fyrsta snerting hjálpar þér að byrja að skilja hringrás lífsins, hvaðan þráðurinn í peysunni þinni kemur.“
Vísir að svörum í sögunni
„Með því að varðveita og viðhalda þekkingu um forna búskaparhætti, handverk og sérkenni, getum við lagt okkar af mörkum inn í framtíðina. Það er ábyrgðarhlutverk hverrar kynslóðar að miðla til þeirrar næstu.“
„Í sögunni er grunnurinn að því sem við köllum í dag lífrænan, auðgandi og sjálfbæran landbúnað. Fólkið sem notaði þessar aðferðir, gerði það til að lifa af. Og ekki bara til að lifa af, heldur til að geta byggt upp og viðhaldið býlunum sínum.“
Pete finnur fyrir miklum áhuga ungs fólks á gömlum aðferðum til að yrkja landið og „lífrænum lífsstíl“ eins og hann orðar það. „Þau geta komið í heimsókn til okkar og upplifað hvernig forfeður þeirra, langömmur og langafar notuðu sömu aðferðir. Þau geta svo aðlagað þær að lífi sínu í nútímanum og lagt sitt af mörkum til að móta betri heim. Ég trúi því.“
