Bændablaðið kennsluefni
Í 10. bekk Húnaskóla er Bændablaðið notað sem kennsluefni í íslensku. Nemendur lesa blaðið sem hluta af verkefni í tengslum við gagnvirkan lestur þar sem þau skiptast á að lesa greinar úr blaðinu og ræða svo innihaldið sín á milli.





















