Edda Kristín nýr blaðamaður
Edda Kristín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin blaðamaður á Bændablaðinu.
Edda Kristín er með próf í garðyrkjufræði frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum en hún er jafnframt með háskólapróf í hönnun og myndlist.
Hún hefur á undanförnum árum gegnt fjölbreyttum störfum í tengslum við garðyrkju og menningarlíf. Á undanförnum árum hefur hún starfað hjá Jurtaapótekinu að framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini. Jafnframt hefur hún haldið úti fréttabréfi um menningu og listir á landinu í samstarfi við Greip Gíslason.
Edda Kristín segir starfið sameina merkilega margt af því sem hún brennur fyrir og hún hlakki til að takast á við nýtt hlutverk sem blaðamaður í góðu teymi blaðsins. „Tilfinningin er að snertifletir landbúnaðar við lífið séu svo margir að verkefnin muni veita i n n b l á s t u r dag hvern. Hvort heldur er æðarrækt, garðyrkjan, g e i t a r æ k t eða aðrar búgreinar, lýðheilsa og lífræn ræktun eða menningarlífið þá er af nægu að taka og landbúnaðurinn á spennandi stað. Ég hlakka til að rýna í samfélagið frá þessu nýja sjónarhorni, ferðast um landið og hitta bændur og taka púlsinn á skapandi hugum um land allt sem vinna að spennandi verkefnum og auðga samfélagið.“
Bændablaðið býður Eddu Kristínu velkomna til starfa.
