Áskorun um að framfylgja reglum
Eurogroup for Animals ásamt Dýraverndarsambandi Íslands og fleiri dýraverndarsamtökum í Evrópu sendu í morgun opið bréf til Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Þóru J. Jónasdóttur, yfirdýralæknis Matvælastofnunar, þar sem skorað er á þær að framfylgja reglum varðandi blóðmerahald á Íslandi.
Í bréfinu eru stjórnvöld hvött til að fylgja reglugerð sem kveður á um að blóðtaka úr fylfullum hryssum falli undir rannsókn á dýrum í vísindaskyni en sé ekki skilgreind sem hefðbundinn landbúnaður líkt og fyrirtækið Ísteka fer fram á.
Hormónið sem fyrirtækið Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna á Íslandi er aðallega notað sem frjósemislyf fyrir svín í verksmiðjubúum hér á landi og í Evrópu.
Í fréttatilkynningu frá sendendum bréfsins segir að rannsóknir á dýrum í vísindaskyni lúti mun strangari reglum en hefðbundinn landbúnaður og því sé afar mikilvægt fyrir velferð hestanna að farið sé eftir núgildandi reglugerðum.
Fyrirtækið Ísteka stendur nú í málaferlum við íslenska ríkið og beðið er eftir niðurstöðu EFTA dómstólsins um hvort starfsemin falli undir notkun dýra í vísindaskyni eða landbúnaðarstarfsemi.
