Sektað vegna nautgripa
Stjórnvaldsákvarðanir Matvælastofnunar (MAST) í dýravelferðarmálum í nóvember, desember og janúar sl. sneru ekki síst að nautgripabændum.
Lagðar voru tíu þúsund króna dagsektir á nautgripabónda vegna frávika varðandi bása og hreinleika gripa. Áður en til innheimtu kom bætti bóndinn úr þannig að dagsektirnar voru felldar niður. Lagðar voru dagsektir að upphæð 7.500 kr. á dag á nautgripabónda vegna skorts á klaufhirðu. Einnig vegna ófullnægjandi brynningar og hönnunar á rými. Þá voru tíu þúsund króna dagsektir lagðar á nautgripabónda vegna ýmissa frávika, þar á meðal ófullnægjandi brynningar. Sá bóndi bætti einnig úr áður en til innheimtu kom og sektir voru því felldar niður.
Nautgripabóndi var sektaður um 288.000 kr. vegna þess að hann batt naut á bása, sem er bannað skv. reglugerð. Nautgripi má einungis binda sé þess þörf á meðan þeir eru meðhöndlaðir eða ef um er að ræða kvígur sem eiga minna en þrjá mánuði eftir í burð.
Þá voru sömuleiðis lagðar dagsektir, enn tíu þúsund krónur á dag, á nautgripabónda til að knýja hann til úrbóta á velferð dýranna. Eftir árangurslausar dagsektir til að knýja sjötta nautgripabóndann til úrbóta á velferð gripa hans var brugðið á það ráð að fjarlægja öll kvendýr og ungviði úr hjörðinni.
Fuglasláturhús var sektað um 144.500 kr. vegna brota á velferð fugla við aflífun. Ekki hafði verið brugðist rétt við óvæntu rafmagnsleysi við slátrun sem sagt var hafa leitt til ófullnægjandi umhirðu fugla á sláturlínu.
Aðrar stjórnvaldsaðgerðir MAST á tímabilinu lutu að kattahaldi.
