Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Fréttir 5. mars 2026

Tillaga að fastri starfsstöð fyrir þyrlu frá Landhelgisgæslunni

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Atlantsflug hefur sent sveitarstjórnum víða um land erindi þess efnis að nú liggi fyrir Alþingi tillaga þess efnis að koma eigi fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.

Gangi málið eftir þá á að staðsetja á Akureyri stóra björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar af gerðinni Airbus Helicopters H225, sem er hönnuð fyrst og fremst fyrir leitar- og björgunarverkefni. Í kynningu á málinu frá Atlantsflugi kemur m.a. fram að staðsetningin á Akureyri hafi verulega annmarka þegar horft er til raunverulegra þarfa almennings fyrir bráðaþjónustu, bæði í dreifðum byggðum og í stærri þéttbýliskjörnum.

Þá kemur einnig fram að H225 þyrlan sé fyrst og fremst sérhæfð leitar- og björgunarþyrla en ekki hönnuð fyrir daglega bráðaþjónustu, en útkalls- og viðbragðstími slíkra véla er almennt lengri en hjá sérhæfðum sjúkraþyrlum.

Skylt efni: Akureyri | Landhelgisgæslan

3.750 holdakýr eru í landinu
Fréttir 25. febrúar 2026

3.750 holdakýr eru í landinu

Bændasamtök Íslands í samvinnu við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) stóðu f...

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta
Fréttir 23. febrúar 2026

111 bæir sérhæfa sig í eldi holdanauta

Kýr á holdanautabúum eru 3.333 og fæddust 2.466 kálfar á þessum búum á síðasta á...

Nautin uxu hraðast á Efstalandi
Fréttir 23. febrúar 2026

Nautin uxu hraðast á Efstalandi

Daglegur vöxtur ungneytanna á Efstalandi í Öxnadal var að meðaltali 714,5 grömm ...

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun
Fréttir 23. febrúar 2026

Feitur ostur getur minnkað hættu á heilabilun

Samkvæmt nýrri rannsókn við Háskólann í Lundi er hægt að tengja neyslu á feitum ...

Hestur í kvöldmatinn?
Fréttir 23. febrúar 2026

Hestur í kvöldmatinn?

Íslenskt hrossakjöt er takmarkað og verðmætt hráefni þar sem framboð er sveifluk...

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda
Fréttir 18. febrúar 2026

Áfram stutt við LED-væðingu garðyrkjubænda

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði nýverið rúmlega 118 milljónum króna í styrki ...

Reykjaböðin verða opnuð í vor
Fréttir 18. febrúar 2026

Reykjaböðin verða opnuð í vor

Nú styttist óðum í að Reykjaböðin opni, en um ræðir nýtt náttúrulón og heilsulin...

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu
Fréttir 17. febrúar 2026

Ræktun á burnirót til fæðubótarframleiðslu

Hafin er ræktun á burnirót í Hnífsdal í þeim tilgangi að framleiða fæðubótarefni...