Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Sigurður Páll Jónsson opnaði sérstök umræðu á Alþingi um tollamál og eftirlit með innflutningi á búvörum.
Sigurður Páll Jónsson opnaði sérstök umræðu á Alþingi um tollamál og eftirlit með innflutningi á búvörum.
Fréttir 6. nóvember 2020

Talað um „stórfellt tollasvindl“ í innflutningi á ostum

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis hefur verið með meint lögbrot varðandi tollmeðferð við innflutning á ostum til meðferðar. Í umræðum á Alþingi 22. október var sérstök umræða um tollamál og eftirlit með innflutningi á búvörum. Þar var fullyrt að um stórfellt tollasvindl væri að ræða virtust ræðumenn sammála um að ekki eigi að líða lögbrot af því tagi. Um leið var upplýst að meint lögbrot hafa haldið áfram jafnvel allt fram í september þrátt fyrir vitneskju tollayfirvalda.  

Ítrekað hafa komið fram ábendinga um að ekki væri allt með felldu varðandi innflutning á ostum og kjöti frá Evrópusambandinu sem flutt er inn í skjóli tollasamnings sem skrifað var undir haustið 2015. Þessi tollasamningur átti að taka gildi um áramótin 2016/2017, en tók gekk ekki gildi fyrr en 1. maí 2018. Mikið ósamræmi hefur komið fram í útflutningstölum ESB á landbúnaðarafurðum til Íslands og þess innflutnings á sömu vörum á árunum 2017, 2018 og 2019 sem innflytjendur  á Íslandi hafa væntanlega gefið upp við tollameðferð. 

Ekki bættist ástandið þegar breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 og nýjar reglugerðir á sviði innflutnings landbúnaðarafurða tóku gildi 1. janúar 2020. Kemur það berlega fram í svari tollayfirvalda við fyrirspurn Bændablaðsins um innflutning á landbúnaðarvörum. 

Þrátt fyrir vitneskju yfirvalda um meint tollasvik, virðist hafa verið haldið áfram að flytja inn venjulegan ost sem jurtaost jafnvel allt fram undir september. Nam innflutningur á tolnúmeri jurtaosts (2106.9068) t.d. 48 tonnum í júlí, 32 tonnum í ágúst, en hrapaði svo af óútskýrðum ástæðum niður í 11,5 tonn í september. 

Ábendingar í skoðun og verða kynntar innflytjendum á þessu ári reynist þær réttar!

Bændablaðið sendi Skattinum, sem nú fer með tollamál á Íslandi, fyrirspurn um þessi mál þann 26. júní 2020. Þar var spurt: 

Hefur tollstjóraembættið grun um að misferli hafi átt sér stað í einhverjum tilvikum frá ársbyrjun 2017 varðandi tollskráningu á landbúnaðarafurðum við innflutning frá löndum Evrópusambandsins. 

Hafa möguleg misferlistilvik verið rannsökuð og hver er þá niðurstaðan úr slíkum rannsóknum?

Eru einhver meint brot á innflutningsreglum varðandi landbúnaðarafurðir í rannsókn eða kæruferli og ef svo er hversu mörg?

Vonir standa til að staðan skýrist töluvert á haustmánuðum 

Svar barst frá Skattinum þann 15. júlí 2020 og er svohljóðandi:

„Embættinu hafa borist ábendingar varðandi meint undanskot aðflutningsgjalda í tengslum við innflutning landbúnaðarafurða. Ábendingarnar eru til skoðunar af sérfræðingum embættisins en fjöldi mála sem vísað verður í feril fyrir endurákvörðun aðflutningsgjalda samkvæmt tollalögum liggur ekki fyrir á þessu stigi. Vonir standa til að staðan skýrist töluvert á haustmánuðum eftir vinnu sérfræðinga. Reynast ábendingarnar réttar gætu fyrstu málin sem byggja á ábendingum verið kynntar innflytjendum á þessu ári. Við meðferð mála er nauðsynlegt að standa rétt að málsmeðferðarreglum skv. tollalögum og stjórnsýslulögum.“  

Ábyrgðinni að hluta varpað yfir á MAST

Varðandi síðustu spurninguna er svarið nokkuð sérstak. Þar vísa tollayfirvöld ábyrgðinni á tollamálum að hluta hreinlega yfir á Matvælastofnun og bera fyrir sig breytingar á lögum um innflutning á fersku kjöti, eggjum og mjólk. Þetta er enn athyglisverðara í ljósi þess að í Bændablaðinu 8. október vísaði MAST ábyrgðinni varandi svínakjötsinnflutning yfir á eftirlitsaðila inna ESB og þeirra vottorða. Í svari tollayfirvalda segir: 

„Embættið hefur ekki til rannsóknar mál sem varða brot á innflutningsreglum landbúnaðarvara vegna fraktsendinga í atvinnuskyni. Þau mál eru almennt á forræði Matvælastofnunar. Fyrirkomulagi innflutnings á landbúnaðarvörum frá EESsvæðinu tóku töluverðum breytingum 1. janúar 2020 þegar tóku gildi breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 og nýjar reglugerðir á sviði innflutnings landbúnaðarafurða. Með breytingunni var afnumin leyfisskylda vegna innflutnings á hráum og lítt söltuðum sláturafurðum, bæði unnum og óunnum, hráum eggjum, ógerilsneyddri mjólk og mjólkurafurðum sem upprunnar eru og fluttar eru inn frá aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Breytingarnar höfðu í för með sér töluverðar breytingar á fyrirkomulagi innflutnings leyfisskyldra matvæla frá EESríkjum.“ 

BÍ og LK gerðu skriflegar athugasemdir í maí vegna ostainnflutnings

Bændasamtök Íslands (BÍ) og Landsamband kúabænda (LK) sendu Bjarna Benedikssyni fjármálaráherra tölvupóst þann 28 maí 2020 þegar rúm tvö ár voru liði af gildistíma samningsins. Erindið var innflutningur á osti í töluverðu magni sem fluttur var inn á röngu tollnúmeri og þar með tollfrjáls sem jurtaostur, en seldur á Íslandi sem venjulegur ostur. Vísað var til þessa bréf í umræðum á Alþingi, en þar kmeur m.a.fram að töluvert magn af osti hefur verið flutt inn til landsins á tollnúmeri 2106.9068 (jurtaostur) sem ber engan toll. Ef litið er til ársins 2019 þá nam innflutningurinn um 300 tonnum eða sem samsvarar 3.000.000 lítra mjólkur (um 2% heildar mjólkurframleiðslu Íslands árið 2019). Fyrstu þrjá mánuði ársins 2020 voru flutt inn 53,9 tonn undir þessu tollnúmeri. Ostur þessi er að meginstofni eða 8284% Mozzarellaostur og einungis 1112% pálmaolía og hefði því með réttu ekki átt að flokkast undir það tollnúmer.“ Með öðrum orðum, megin innihald vörunnar á að ráða  því undir hvaða tollflokk setja á vöruna, en gerði það ekki í tilvikum sem vísað var til. 

Búið til nýtt tollnúmer fyrir ólöglega ostinn

Bætt um enn betur í þessu meinta brotamáli og búin til nýr tollflokkur utan samnings þar sem svo virðist sem vísvitandi sé verið að gera brot á tollasamningi varðandi innflutning á ostum löglegt. 

Þannig birtist þann 15. maí 2020 auglýsing í Stjórnartíðindum um nýtt tollnúmer í tollskrá (2106.9060 matvæli að uppistöðu úr vörum úr nr. 0405 (innsk. smjörflokkur) og nr. 0405 (innsk. ostaflokkur) sem innihalda jurtaolíu, t.d. ostur.). Í þessu tilviki er aukaefni í vöru ráðandi fyrir tollflokkun, eðlilegt er að ráðandi innihaldsefni sé stýrandi fyrir tollflokkun. Auk þess er ekkert getið um hlutfall jurtaolíu sem varan þarf að innihalda til að flokkast undir nýtt tollnúmer sem talsmenn BÍ og LK töldu í hæsta máta óeðlilegt.

Bæði tollstjóri og stjórnarsvið framkvæmdastjórnar ESB fyrir skattamál og tollabandalag í Brussel staðfestu að þessi vara sem með auglýsingu í Stjórnartíðindum átti að færa undir tollflokk 2106, ætti skilyrðislaust að falla undir tollflokk yfir osta númer 0406. Tók ESB reyndar sérstaklega fram að varan ætti ekki að falla undir tollflokk 2106.  

„Stórfellt tollasvindl“

Þann 22. október var sérstök umræða um tollamál og eftirlit með innflutningi á búvörum á Alþingi en málshefjandi var Sigurður Páll Jónsson (Miðflokki) og til andsvara verður Bjarni Benediktsson (Sjálfstæðisflokki), fjármála og efnahagsráðherra. Sagði Sigurður að í ljós hafi komið og í mörgum tilfellum stórfelldur munur á því sem virðist vera flutt inn í landið borið saman við útflutning að utan af sömu vörum, einkum frá löndum ESB. 

„Misræmið felst í því að meira magn vara virðist fara út úr Evrópusambandinu á útflutningsskýrslum frá tollayfirvöldum þar, heldur en tollafgreitt er hingað inn í landið í tollflokkum sem bera tolla. Á hinn bóginn virðast streyma inn vörur á tollskrárnúmerum sem eru tollalaus og engin leið að vita hvorki hvaðan þær koma eða hvaða vörur er um að ræða. Það má velta því fyrir sér hver tilgangurinn er með slíkum vinnubrögðum. Það er allt sem bendir til þess frá allt benda til þessa að hér væri ekki um neitt annað að ræða en stórfellt tollasvindl. Tollasvindl eru lögbrot en ekki misræmi í framkvæmd samninga eins og gjörningurinn hefur jafnvel verið nefndur hér í ræðupúlti Alþingis. 

Héraðssaksóknari hefur að minnsta kosti einu sinni á þessu ári kært fyrir brot af þessu tagi. Því miður virðist hinsvegar svo að brot sem þessi kunni að hafa staðið yfir árum saman í einhverjum tilvikum.“

Sagði Sigurður einnig að Íslenska ríkið þurfi að taka það alvarlega að fylgja alþjóðlegri samræmdri tollaskrá. Þar séu skýrar réttarheimildir og Ísland sé skuldbundið til að fylgja slíkri tollaskrá. Misræmi í tollaframkvæmd hér á landi miðað við tollaframkvæmd ESB skekki opinberar inn og útflutningstölur sem geri alla hagsýslugerð ónákvæma. Rangar eða ónákvæmar tölur hafi líka áhrif á samningsgerð við önnur ríki, enda séu traustar hagskýrslur grundvallaforsenda fyrri gerð viðskiptasamninga.

„Fjölmargir aðilar hafa orðið fyrir tjóni vegna athafnaleysis stjórnvalda í þessu máli. Það er í fyrsta lagi ríkið sem er að verða fyrir mögulegum tekjum af tollum af vörum sem fluttar eru til landsins og hefðu verið fluttar inn á tollum að öllu eðlilegu. Í öðru lagi hafa bændur orðið af markaði sem hleypur á milljónum lítra mjólkur og hundruðum, eða þúsundum tonna af kjöti. Hafi slíkt verið ætlun stjórnvalda hefði verið nær að segja slíkt berum orðum, en halda ekki uppi samtímis fagurgala um mikilvægi landbúnaðar því tekjutap bænda er tilsvarandi. Allir aðrir aðilar á markaði sem hafa fylgt settum leikreglum réttarríkisins,  hafa sömu leiðis setið við skertan hlut vegna þess ólögmæta mismunar sem felst í því að innheimta ekki lögboðna tolla af innfluttum vörum. 

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði að starfshópur myndi halda áfram skoðun á meintu misferli á tollum. 

Starfshópur greindi misræmið og athugun verður haldið áfram

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði að viðbrögð yfirvalda við fregnum um misræmi í útflutningstölum frá ESB og innflutningstölum á sömu vörum til Íslands hafi verið að koma á fót starfshópi til að greina þetta misræmi. Niðurstöður þess starfshóps hafi verið birtar að morgni 22. október, sama daga og umræðan fór fram á þinginu. 

„Þar er m.a. bent á að það þurfi að auka nákvæmni í skjölun og eftirfylgni við tollafgreiðslu. Það er misræmi og það gengur í báðar áttir. Stundum eru tölurnar hærri hér á landi en útflutningstölur frá Evrópusambandinu, en stundum eru þær lægri. Við viljum fara nánar ofan í þetta og ég hef þess vegna ákveðið að þessari vinnu skuli haldið áfram.“

Þá sagði Bjarni að hart hafi verið tekið á tilteknu máli á misræmi í tollskráningu á ostum sem kalla mætti pizzaosta og hafi verið skráðir í ranga tollflokka. Var hann þar að vísa til þess máls sem BÍ og KLK sendu honum erindi útaf. 

Bjarni sagðist taka undir það að það gæti skekkt samkeppnisstöðu að vara kæmi hér inn í röngum tollflokki. Þá sé réttilega bent á að ríkið verði af tekjum.

„Þegar er verið að ákveða tollflokkinn sem vara á heima í, þá látum við þá niðurstöðu ekki ráðast af því hver tollurinn kynni að verða, heldur viljum við bara fá faglega rétta niðurstöðu á grundvelli þeirra alþjóðlegu viðmiða sem við höfum skuldbundið okkur til að fylgja. Í þessu tiltekna dæmi þá var uppi viss vafi, en það þurfti nánari skoðun til þess að komast að réttri niðurstöðu. Í því samhengi þá er erfitt að halda því fram að menn hafi verið að misnota kerfið þegar tollurinn hafði skoðun á því að varan ætti heima þar sem að hún var flokkuð. Við endurskoðun og eftir að nú auglýsing var gefin út ættu ný viðhorf að hafa tekið við.“

Bjarni sagðist líka taka undir það að samkeppnisstaðan skaðaðist ef innlendir framleiðendur sem treysta á verndina sem felst í tollum nytu ekki þeirrar verndar. Sagðist Bjarni jafnframt vilja koma því til leiðar að fullur vilji væri til að taka fast á þessu máli. Hann sagðist líka vilja taka það fram að auðvitað væri verið að innheimta tolla í samræmi við reglur, en það kynni að vera að innflytjendur gefi upp röng tollanúmer sem leiði til rangrar tollunar. Þar hafi tollayfirvöld hinsvegar ríkar heimildir til að fara langt aftur í tímann og beita álagi þegar það eigi við.  

Úr tollalögum

Innflytjandi, sem sendir [tollyfirvöldum] 1) aðflutningsskýrslu um vöru með rammaskeyti um gagnaflutningsnet vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu, ber ábyrgð á því að upplýsingar, sem þar eru veittar, séu réttar. Enn fremur ber hann ábyrgð á að fram komi allar þær upplýsingar sem eiga að koma fram vegna tollafgreiðslunnar og að þær séu byggðar á viðeigandi fylgiskjölum sem eiga að liggja til grundvallar aðflutningsskýrslu. 

Sá sem undirritar og lætur [tollyfirvöldum] 1) í té skriflega aðflutningsskýrslu ásamt fylgiskjölum ber ábyrgð á því að þær upplýsingar sem þar koma fram séu réttar. Enn fremur ber hann ábyrgð á að fram komi allar þær upplýsingar sem eiga að koma fram vegna tollafgreiðslunnar.

112 gr. Endurákvörðun aðflutningsgjalda eftir skriflega tollafgreiðslu

Tollyfirvöldum er heimilt að endurákvarða innflytjanda aðflutningsgjöld á grundvelli 1. mgr. vegna sendinga sem innflytjandi hefur fengið tollafgreiddar á síðustu sex árum talið frá þeim degi þegar honum berst tilkynning skv. 1. mgr. 114. gr. um fyrirhugaðan úrskurð um endurákvörðun.

Skylt efni: tollamál

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...