Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Sindri Sigurgeirsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson handsala samstarfsyfirlýsinguna á Hvanneyri í dag.
Sindri Sigurgeirsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson handsala samstarfsyfirlýsinguna á Hvanneyri í dag.
Mynd / smh
Fréttir 6. desember 2018

Stjórnvöld og bændur í samstarf um náttúruvernd

Höfundur: smh

Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, skrifuðu í dag undir yfirlýsingu um vilja til samstarfs í að vinna að málefnum landbúnaðar og náttúruverndar.

Í samstarfsyfirlýsingunni kemur fram að hún eigi rætur í átaki í náttúruvernd sem byggi á sáttmála ríkisstjórnarinnar.

Í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu segir að samstarfinu sé ætlað að ná til verkefna í náttúruvernd á jörðum bænda. Byrjað verður á greiningarvinnu og mögulegar aðgerðir skilgreindar að svo búnu.

„Þar verður meðal annars hugað að aðgerðum á svæðum og gagnvart tegundum sem þarf að vernda ásamt endurheimt og uppbyggingu vistkerfa.

Bændasamtökin og ráðuneytið hafa áður átt í samstarfi um loftslagsmál og landbúnað með góðum árangri. Í yfirlýsingunni kemur fram að mikil tækifæri eru fólgin í góðu samstarfi bænda og stjórnvalda á sviði náttúruverndar. Bent er á að bændur á Íslandi eru vörslumenn lands og stór hluti þess í þeirra umsjón. Bændur geta sinnt þessu vörsluhlutverki með sjálfbærri nýtingu lands svo þeir geti skilað því í jafngóðu eða betra ástandi en þeir tóku við því. Dæmi um þetta eru samstarfsverkefni bænda og stjórnvalda við uppgræðslu lands og ræktun skóga,“

Fagnar samstarfi við bændur

„Ég fagna auknu samstarfi við bændur en með þessari yfirlýsingu förum við saman í nýsköpun í náttúruvernd,“ segir Guðmundur Ingi um samstarfsyfirlýsinguna. „Samstarfið mun leiða af sér tillögur um hvernig bændur geti tekið meiri þátt í náttúruverndarstarfi. Það má sjá fyrir sér að það gæti tekið til verndaraðgerða vegna ákveðinna tegunda, endurheimt vistkerfa, t.d. votlendis og umsjón með landi sem þarfnast verndar. Að undirrita samstarfsyfirlýsinguna á Hvanneyri var síðan sérstakt ánægjuefni enda er til fyrirmyndar hvernig þar og á nærliggjandi jörðum hefur tekist að samþætta blómlegan landbúnað við mikilvægar aðgerðir til verndar náttúrunni.“

Bændur eru vörslumenn lands

„Við bændur erum ánægðir með samstarfsyfirlýsinguna og hún lofar góðu. Bændur eru vörslumenn lands og vita að þeir hafa skyldum að gegna í náttúruvernd. Nýtingin þarf að vera sjálfbær og ekki ganga á rétt komandi kynslóða til að nýta og njóta þess. Það hafa bændur gert meðal annars með skynsamlegri landnýtingu, skógrækt og uppgræðslu þar sem þörf er á. Með samstarfsyfirlýsingunni stefnum við að því að auka enn frekar samstarf með stjórnvöldum á sviði umhverfismála og það er gleðiefni,“ segir Sindri Sigurgeirsson í tilefni undirritunarinnar.

Skrifað var undir húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Bændasamtökin munu nú í framhaldinu vinna sameiginlega að því að móta næstu skref um samstarfið og þau verkefni sem undir það munu falla.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...