Rúmlega 70% fjósa landsins eru lausagöngufjós
Síðustu þrjá áratugi hafa verið teknar saman upplýsingar um fjósgerðir á Íslandi og þróun þeirra ásamt ýmsum öðrum gagnlegum upplýsingum og hafa verið unnar skýrslur um stöðu mála annað hvert ár allt frá árinu 2003. Nú liggur fyrir tólfta skýrslan og var hún gefin út af Bændasamtökum Íslands eins og síðustu ár.
Skýrslan tekur til árabilsins 2023-2025 og er þar margt áhugavert að finna eins og við er að búast. Þannig er t.d. enn til eitt fjós á Íslandi þar sem mjólkað er með fötukerfi svo dæmi sé tekið. Þá eru rúmlega 70% fjósa landsins svokölluð lausagöngufjós en þau eru að jafnaði mun stærri en önnur fjós og hýsa því rúmlega 85% kúnna! Kýr í þessum fjósum eru líka afurðahærri en aðrar kýr og því reiknast mjólkurframleiðsla þessara lausagöngufjósa 87% miðað við árslok 2025!
445 fjós í framleiðslu
Í skýrslunni kemur fram að í árslok 2025 voru 445 fjós í mjólkurframleiðslu á Íslandi en í árslok 2015 voru þau 618 og hefur fjósum því fækkað um 173 á þessu árabili eða um 28%. Þessi þróun er mjög áþekk þróuninni síðustu áratugi þar sem fjósum á Íslandi hefur fækkað jafnt og þétt. Síðustu tvö árin fækkaði fjósunum um þó ekki nema 21 eða um 4,5% og er þessi hlutfallsfækkun fjósa hér á landi mjög áþekk því sem þekkist víða í Evrópu. Fjósum fækkar en framleiðslan stendur í stað eða eykst vegna stækkandi fjósa sem eftir eru og afurðahærri kúa.
85,2% kúnna í lausagöngu
Það kemur vart nokkrum, sem fylgst hefur með íslenskri nautgriparækt síðustu árin, að það hafa orðið gríðarlega miklar breytingar á húsvist íslenskra mjólkurkúa á tiltölulega stuttum tíma í mjólkursögu landsins.
Þannig eru ekki nema rétt um 30 ár síðan svotil öll fjós landsins voru básafjós af einhverri gerð og kýrnar því bundnar á bása, en þetta er gjörbreytt í dag. Af þeim 445 fjósum sem voru í framleiðslu í árslok 2025 þá voru 72,4% fjósanna á Íslandi lausagöngufjós. Þetta hlutfall gefur þó ekki alveg rétta mynd af stöðu aðbúnaðar kúa á Íslandi eins og fram kom í inngangi greinarinnar því ef litið er til stærðar fjósanna, þá eru lausagöngufjósin með mun fleiri kýr að jafnaði. Í árslok 2025 voru þannig 85,2% allra kúa á landinu hýstar með þessu lagi.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig þróun fjósgerða hefur verið síðustu áratugi og eins og sjá má gengu breytingarnar nokkuð hratt fyrir sig fram undir hrun, en svo hægði verulega á þróuninni, en svo hefur þróunin haldið áfram nokkuð jafnt og þétt síðan.
Mjaltaþjónafjós algengust
Í skýrslunni er fjósgerðum skipt upp í tvo yfirflokka og samtals fimm undirflokka, þar sem yfirflokkarnir eru annars vegar básafjós og hins vegar lausagöngufjós.
Undirflokkar þessara tveggja megin fjósgerða taka svo mið af þeirri mjaltatækni sem er í notkun í fjósunum. Niðurstöðurnar má sjá í töflu 1 og á mynd 2 má sjá hlutfallslega skiptingu fjósgerða og mjaltatækni síðan 1994. Í töflunni kemur fram að frá árinu 2015 hefur básafjósum fækkað verulega eða úr 350 í 123 eða um 64,9%.
Á sama tíma tíma hefur lausagöngufjósum fjölgað úr 268 í 322 sem er 20,1%. Sé horft til síðustu tveggja ára þá fjölgaði mjaltaþjónafjósunum um 8,0% og voru í árslok 283 og lang stærsti flokkur fjósgerða eða 63,6%.
Fækkun varð í öðrum flokkum og gáfu lausagöngufjós með mjaltabásum hlutfallslega mest eftir enda má leiða að því líkum að mörg þeirra hafi hreinlega skipt um mjaltatækni og tekið mjaltaþjóna í notkun. Næst algengasta fjósgerðin hér á landi er svo básafjós með rörmjaltakerfi en í árslok 2025 voru 102 slík í notkun á Íslandi.
Enn er eitt fjós eftir með vélfötukerfi
Þegar fyrsta skýrslan var unnin, árið 2003, voru enn í notkun 24 fötukerfi þ.e. mjaltkerfi þar sem kýr eru mjólkaðar með vélfötum. Þessari gerð mjaltatækni hefur svo fækkað ört og nú um áramótin var einungis 1 slíkt kerfi eftir í notkun en þetta bú hefur verið það eina á landinu í nokkur ár.
Meðalnyt mjaltaþjónafjósa langhæst
Þegar skoðað er samhengi afurða, samkvæmt skýrsluhaldi RML, og fjósgerða kemur ekki á óvart að fjós með mjaltaþjónum eru langafurðahæst og er það í samræmi við uppgjör fyrri ára.
Tekið skal fram að við þessa útreikninga er alltaf notað uppgjör allra búa í árslok uppgjörsársins, óháð því hvort þau hafi skipt um mjaltatækni á árinu eða ekki. Ennfremur eru til dæmi um að einn skýrsluhaldshafi sé með tvö fjós og/eða eitt fjós með tvo skýrsluhaldshafa. Í þessum tilvikum hafa vegnar niðurstöður verið annað hvort sameinaðar eða skipt upp eftir ákveðnum reglum.
Framangreindar reikniaðferðir bera auðvitað með sér ákveðna skekkju og skal því tekið með fyrirvara, enda má t.d. ætla að meðalafurðir ættu að vera hærri á búum sem skiptu úr hefðbundinni mjaltatækni á árinu og yfir í mjaltaþjónatækni vegna tíðari mjalta.
Þrátt fyrir þessa annmarka er, eins og áður segir, heildarmeðaltal mjaltaþjónabúa landsins hæst en vegið meðaltal þeirra var 6.832 kg mjólkur að jafnaði á hverja árskú á nýliðnu ári. Næstafurðahæstu búin voru svo básafjós með mjaltabásum með 6.316 kg. Þá voru meðalafurðir kúa í lausagöngufjósum án mjaltaþjóna með 5.992 kg og lægstar meðalafurðir eru að jafnaði í básafjósum með rörmjaltakerfum eða 5.654 kg. Hver meðalkýr er því að skila af sér 1.178 kg meira af mjólk ef hún er í mjaltaþjónafjósi, miðað við að vera í básafjósi með rörmjaltakerfi. Þessi mikli munur getur skýrst af mörgum þáttum og sýna fyrri athuganir hér á landi að t.d. tíðari mjaltir mjaltaþjóna skýra í kringum helminginn af meðal afurðaaukningunni einni og sér. Hinn hlutann má skrifa á betri aðbúnað og hreyfingu, nákvæmari kjarnfóðrun og almennt Framangreindar reikniaðferðir bera auðvitað með sér ákveðna skekkju og skal því tekið með fyrirvara, enda má t.d. ætla að meðalafurðir ættu að vera hærri á búum sem skiptu úr hefðbundinni mjaltatækni á árinu og yfir í mjaltaþjónatækni vegna tíðari mjalta. Þrátt fyrir þessa annmarka er, eins og áður segir, heildarmeðaltal mjaltaþjónabúa landsins hæst en vegið meðaltal þeirra var 6.832 kg mjólkur að jafnaði á hverja árskú á nýliðnu ári. Næstafurðahæstu búin voru svo básafjós með mjaltabásum með 6.316 kg. Þá voru meðalafurðir kúa í lausagöngufjósum án mjaltaþjóna með 5.992 kg og lægstar meðalafurðir eru að jafnaði í básafjósum með rörmjaltakerfum eða 5.654 kg. Hver meðalkýr er því að skila af sér 1.178 kg meira af mjólk ef hún er í mjaltaþjónafjósi, miðað við að vera í básafjósi með rörmjaltakerfi. Þessi mikli munur getur skýrst af mörgum þáttum og sýna fyrri athuganir hér á landi að t.d. tíðari mjaltir mjaltaþjóna skýra í kringum helminginn af meðal afurðaaukningunni einni og sér. Hinn hlutann má skrifa á betri aðbúnað og hreyfingu, nákvæmari kjarnfóðrun og almennt
Mjaltaþjónafjós einnig stærst
Ekki þarf að koma á óvart að lausagöngufjós með mjaltaþjónum eru stærst að meðaltali en árskúafjöldi þeirra í árslok 2025 var 69,4 kýr en þessi bú eru að jafnaði með 1,27 mjaltaþjóna.
Þrátt fyrir að þessi bú beri af í fjölda kúa, þá er bústærðin enn vafalítið nokkuð undir þeim mögulega árskúafjölda sem þessi fjós geta borið mjaltatæknilega séð. Næststærsta fjósgerðin er svo lausagöngufjós án mjaltaþjóns og þar á eftir koma básafjós með mjaltabásum.
Hin hefðbundnu básafjós með rörmjaltakerfum eru vel innan við helmingi minni en mjaltaþjónafjósin eins og sjá má á töflu 2.
Út frá framangreindum upp- lýsingum má áætla framleiðslugetu hverrar fjósgerðar, sem hlutfall af heild. Árið 2009 var fyrsta árið sem mjólk frá kúm í lausagöngu náði yfir 50% af heildinni en nú reiknast þetta hlutfall að vera 87,0%.
Rúmlega fjórðungur kúnna í fjósum með >81 kýr
Í skýrslunni kemur fram að flest fjós landsins eru í dag með 41-60 árskýr eða 141 talsins en fjós með færri en 20 árskýr voru ekki nema 26 í árslok 2025 og voru þau þá með 416 árskýr samtals. Það eru færri kýr en eru samtals í tveimur stærstu fjósum landsins.
Meðalbústærð fjósanna í uppgjörinu var 56,7 árskýr en fjórum árum fyrr var meðalbústærðin 49,9 árskýr svo búin eru að stækka nokkuð ört nú um stundir. Alls voru 134 kúabú með 40 árskýr eða færri í þessu uppgjöri eða 30,1% fjósa landsins, en í þessum fjósum voru þó ekki nema 14,8% af árskúm landsins. Bú á bilinu 41-80 árskýr voru alls 253 talsins eða 56,9% og í þessum fjósum voru 59,9% af árskúm landsins í árslok 2025.
Fjós með fleiri en 81 árskýr voru alls 58 eða 13,0% af heildarfjölda fjósa lansins og hefur þetta hlutfall hægt og rólega verið að skríða upp á við á undanförnum árum. Þannig voru t.d. ekki nema 3,8% fjósa landsins með fleiri en 81 árskú árið 2013 svo dæmi sé tekið. Í þessum 56 fjósum voru hinsvegar rúmlega fjórðungur árskúa landsins eða 26,2% í árslok 2025. Þetta hlutfall var rétt undir 20% í árslok 2021 sem sýnir vel að þróunin í átt að stærri einingum heldur jafnt og þétt áfram.
Í skýrslunni eru ýmsar frekari fróðlegar upplýsingar en hægt er að lesa hina ítarlegu skýrslu í heild sinni á vef Bændasamtaka Íslands.
