Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Skordýraborgarar og smáþörungar
Fréttir 6. júlí 2020

Skordýraborgarar og smáþörungar

Höfundur: Vilmundur Hansen

Sjálfbærni er hugtak sem mikið er í umræðunni þessa dagana og er það í fullu samræmi við sjálfbærnimarkmið, eða heims­markmið, Sameinuðu þjóðanna fyrir allar þjóðir heims fyrir árið 2030.

Flestum er orðið ljóst að betur má ef duga skal þegar litið er til sjálfbærrar nýtingar auðlinda jarðar, svo tryggja megi mögu­leika framtíðarkynslóða til að eiga þess kost að nýta þessar auðlindir sér til næringar og lífs. Eitt af því sem þarf að vinna að er endurhugsun fæðukerfisins, þar sem matvælatækni og matvælavísindi eru lykill í því að finna leiðir til að nýta betur, á sjálfbæran hátt, vannýttar en ríkulegar auðlindir jarðarinnar.

Evrópuverkefni sem Matís stýrir

Um þetta snýst Evrópuverkefni sem Matís stýrir og starfar að í samstarfi við framsækin fyrirtæki, stofnanir og háskóla í Evrópu. Verkefnið miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um og jákvæðra viðhorfa til nýrra sjálfbærra fæðuleiða og það hvernig tækni og vísindi eru nauðsynlegur þáttur þar.
Verkefnið kallast Future Kitch­en og er eitt þeirra verkefna sem Matís stýrir og starfar að, sem styrkt er af EIT Food, undirstofnun Evrópu­sambandsins.

Gagn og gaman

Rakel Halldórsdóttir, sérfræðingur hjá Matís, segir að í verkefninu sé upplýsingum um fæðuleiðir, sem nýttar eru á sjálfbæran hátt, miðlað í myndbandaformi. „Þar er skemmtimennt (e. infotainment) notuð til að koma upplýsingunum til ungs fólks, helsta markhóps verkefnisins, á áhugaverðan og einnig skemmtilegan hátt, meðal annars með notkun sýndarveruleikamyndbanda.“

Rakel Halldórsdóttir, sérfræðingur hjá Matís.

„Future Kitchen“

„Á þessu ári hefur þegar verið gefið út Future Kitchen sýndarveruleikamyndband sem sýnir sjálfbæra ræktun smáþörunga í sérhönnuðu ræktunarkerfi innanhúss hjá fyrirtækinu Algaennovation á Íslandi, en fyrirtækið nýtir jarðvarma til ræktunarinnar. Annað sýndarveruleikamyndband, sem væntanlegt er fljótlega, sýnir ræktun skordýra til fæðu, en svissneska fyrirtækið Essento gerir skordýraborgara sem grillaðir eru úti við í góðra vina hópi í myndbandinu.“

Að sögn Rakelar eru bæði skordýr og smáþörungar næringar­rík fæða og ríkuleg auðlind á jörðu. „Talið er að milli 30.000 til ein milljón tegundir smáþörunga fyrirfinnist á jörðinni, en einungis innan við 10 tegundir eru nýttar til fæðu eða í fæðubótarefni í dag. Þá má geta þess að auk þess að vera næringarbomba eru smáþörungar hin raunverulega uppspretta hinna mikilvægu Omega3 fitusýra, en fiskur fær þessar nauðsynlegu fitusýrur úr smáþörungunum. Að auki er framleiðsla smáþörung­anna hjá Algaennovation kolefnis­neikvæð, í stað þess að menga losar framleiðslan súrefni út í umhverfið.“

Sýndarveruleiki

Sýndarveruleikamyndböndin má horfa á í þar til gerðum sýndar­veruleikagleraugum, en einnig á tvívíðum skjá með því að hreyfa bendilinn um skjáinn (eða hreyfa skjásíma/spjaldtölvu til og frá). Myndböndin eru aðgengileg á Youtube-síðu Matís og á FoodUnfolded.com. 

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...