Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Sérfræðingum ber saman um að hið meinvirka afbrigði verði til við stökkbreytingu á hinu meinlausa afbrigði.
Sérfræðingum ber saman um að hið meinvirka afbrigði verði til við stökkbreytingu á hinu meinlausa afbrigði.
Mynd / Mynd / fao.org
Fréttir 3. desember 2021

Rökstuddur grunur um blóðþorra

Höfundur: Vilmundur Hansen

Veira sem getur valdið sjúkdómnum blóðþorra í laxi, Infectious salmon anaemia, hefur greinst í eldisfiski úr sjókví Laxar fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. Ef greiningin sem nú liggur fyrir reynist rétt er þetta í fyrsta sinn sem sjúkdómsvaldandi afbrigði ISA-veirunnar greinist í laxi hér á landi.

Matvælastofnun hefur í varúðarskyni sett dreifingarbann á starfsstöð fyrirtækisins við Gripaldi í Reyðarfirði sem mun gilda þar til slátrað hefur verið úr sjókvíunum og svæðið sett í hvíld.

Stökkbreytt afbrigði

Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að góðkynja afbrigði veirunnar er mun útbreiddara en áður var talið og finnst að öllum líkindum alls staðar í umhverfi laxa, bæði hjá villtum laxi og í eldisumhverfi. Lengi hefur legið fyrir og staðfest að hið góðkynja afbrigði veirunnar er til staðar hér við land og hefur eflaust fylgt laxi frá örófi alda. Þess ber einnig að geta að klínísk einkenni hafa aldrei verið staðfest í villtum laxi á heimsvísu, jafnvel þó hin meinvirka gerð veirunnar hafi verið einangruð úr slíkum fiski.

Sérfræðingum ber saman um að hið meinvirka afbrigði verði til við stökkbreytingu á hinu meinlausa afbrigði. Slíkar stökkbreytingar eru afar sjaldgæfar, en árleg áhætta á sýkingu með stökkbreyttu meinvirku afbrigði hefur verið reiknað til 0,7% fyrir dæmigert sjókvíaeldissvæði.

Tilheyrir inflúensuveirum

Á heimasíðu Mast segir að ISA-veiran tilheyri inflúensuveirum af fjölskyldunni Orthomyxoviridae og búi yfir flestum þeim eiginleikum inflúensuveira sem við þekkjum frá bæði spendýrum og fuglum og er stundum kölluð laxaflensa. Tvö afbrigði veirunnar eru þekkt. Annað er meinvirkt og veldur misalvarlegri sýkingu og afföllum en hitt er góðkynja afbrigði sem aldrei veldur sjúkdómi eða tjóni.

Vandamál hjá fjölda laxeldisþjóða

Frá því fyrsta tilfelli blóðþorra var staðfest í Noregi árið 1984 hefur veiran einnig valdið klínískum sjúkdómi hjá fjölmörgum öðrum laxeldisþjóðum. Næstu greiningar áttu sér stað í Kanada 1996, Skotlandi 1998, Færeyjum 2000, USA 2001, Síle 2001 og Írlandi 2002. Síðasta tilfelli í Færeyjum átti sér stað 2016/17 þegar klínísk sýking kom upp í stakri kví en allur annar fiskur reyndist heilbrigður og var slátrað til manneldis. Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum.

Krufning vegna óútskýrðra affalla

ISA-veiran uppgötvaðist hjá Laxar fiskeldis ehf. í Reyðarfirði við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í kví G7. Ákvörðun hefur verið tekin um að aflífa lax úr viðkomandi kví við fyrsta tækifæri og farga úrgangi með tryggum hætti. Lax sem alinn er í öðrum kvíum á eldissvæðinu virkar heilbrigður, fóðrun eðlileg og vöxtur góður. Fiskur í nágrannakvíum verður settur undir hert eftirlit og skimanir af öryggisástæðum.

Unnið að staðfestingu

Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum vinnur nú að nánari staðfestingu og skilgreiningu á arfgerð veirunnar. Í fyrstu verða greind veirusýni send til Leipzig í Þýskalandi til sérstakrar raðgreiningar, en einnig verður unnið í samvinnu við rannsóknastofu Evrópusambandsins í veirusjúkdómum lagardýra í Danmörku.

Greining veirunnar nú ítrekar mikilvægi vöktunar og smitvarna til að viðhalda góðri sjúkdómastöðu hérlendis og fyrirbyggja að sjúkdómur á borð við blóðþorra komi upp og nái fótfestu í eldi.

Skylt efni: laxeldi | Lax, blóðþorri

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...