Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Einar Oddsson, sölustjóri véladeildar Þórs, og Njáll Haukur Sigurðsson, sölumaður landbúnaðarvéla á Akureyri.
Einar Oddsson, sölustjóri véladeildar Þórs, og Njáll Haukur Sigurðsson, sölumaður landbúnaðarvéla á Akureyri.
Mynd / HKr.
Fréttir 16. janúar 2019

Metsala á snjóblásurum í haust og greinilega búist við hörðum vetri

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Þór hf. hefur flutt inn land­búnaðartæki um áratuga skeið. Það eru þó ekki bara dráttarvélar og heyvinnutæki og annað sem því tilheyrir, heldur líka ýmsar gerðir af snjóblásurum til að takast á við íslenskan vetur. 
 
Sumir bændur hafa komið sér upp mjög öflugum dráttarvélum í því augnamiði að sinna verktöku við heyvinnu og önnur verk fyrir kollega sína. Vélarnar nýtast líka til ýmissa annarra nota eins og í vegagerð og snjómokstur. Þar koma menn ekki að tómum kofunum hjá Þór. 
 
Nýr snjóblásari frá Dalen 
 
Á landbúnaðarsýningunni sem haldin var í Laugardalshöll í október síðastliðnum sýndi Þór ýmsan tækjabúnað á stóru útisvæði. Þar á meðal vakti athygli blaðamanns öflugur norskur snjóblásari sem hægt er að tengja framan á dráttarvél.
 
„Við erum að sýna hér Deutz Fahr og Kubota dráttarvélar og einnig kynna heyvinnuvélar sem við verðum með á boðstólum á næsta ári.  Þá erum við að frumsýna þennan nýja snjóblásara frá Dalen sem og Schulte blásara sem við höfum selt mikið af,“ sagði Einar Oddsson, sölustjóri véladeildar Þórs. 
 
Eins og menn búist við snjóþungum vetri
 
„Það er athyglisvert hvað menn virðast búast við snjóþungum vetri. Ég hef aldrei selt jafn marga snjóblásara í september og október og núna. Ég veit ekki hvort menn eru svona vissir um að það muni snjóa mikið, eða hvort menn eru bara búnir að læra það af reynslunni að það er ekki alltaf hægt að ganga að snjóblásurum vísum á lager þegar allt er komið á kaf,“ sagði Einar.
 
Hönnun Dalen snjó­blásarans er þannig að hann nagar sig inn í snjóstálið með tenntum snigli og ræður því við harðari snjó en snjóblásarar sem menn þekkja með tveim spöðum. Vegna þeirra annmarka sem spaðablásarar hafa þó þeir geti verið mjög afkastamiklir, þá er orðið algengara að hönnuðir nýti snigla þar sem aðstæður eru mjög erfiðar. Í afar breytilegu veðurfari eins og algengt er á Íslandi henta sniglablásararnir því mjög vel. 
 
Gríðarlega öflugur
 
Einar segir að við aðstæður eins og á höfuðborgarsvæðinu, þar sem saltpækill gerir snjó fljótt að hörðum klaka, þá geti Dalen snigilblásari dugað vel til að brjóta niður harðan snjó. 
 
Snjóblásarinn sem Þórsmenn kynntu á sýningunni heitir Dalen 2118 og er gríðarlega öflugur og hægt er að nota hann við allt að 350 hestafla dráttarvélar.  Hann er 1.830 kg að þyngd og með 270–280 sentímetra vinnslubreidd. Þá er tennti brotsnigillinn 95 cm að þvermáli og útblástursopið er 90 cm. Gírkassinn vinnur á allt að 1.000 snúningum á mínútu sem gefur blásaranum mikla kastlengd samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Dalen í Noregi. 
 
Fleiri gerðir
 
Schulte snjóblásararnir eru líka afar vel þekkir hér á landi og fást í mörgum útfærslum og stærðum. Þór hefur selt slíka blásara um áratuga skeið og segir Oddur Einarsson framkvæmdastjóri að það megi eiginlega segja að Schulte blásarar séu orðnir hluti af hefðbundnum húsbúnaði í sveitum á Íslandi. Slíkir blásarar eru áfram á boðstólum hjá Þór þó Dalen, sem hefur reyndar líka verið hér á markaði í nokkur ár sé kominn með þennan öfluga nýja snjóblásara fram á sjónarsviðið.  

5 myndir:

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...