Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Ekki stilla á AUTO segir lögreglan.
Ekki stilla á AUTO segir lögreglan.
Fréttir 19. september 2019

Haustverkin í kringum ljósabúnað ökutækja

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson

Nú er kominn sá tími árs að þeir sem ekki eru með öll ljós í lagi skera sig úr í umferðinni. Haustlægðirnar byrjaðar að vökva malarvegi með tilheyrandi drulluaustri upp á farartæki svo að ekki sést hvort ljós séu kveikt eða ekki. Það er ágætis regla að strjúka mestu óhreinindin af afturljósunum þegar malarvegurinn er að baki svo að ljósin sjáist á malbikinu.

Í nokkur ár hef ég farið norður í land í réttir og fyrir um 10 árum fannst mér undantekning ef ég sá ljós aftan á hestakerrum og fjárvögnum, en það er greinilegt að bændur vilja hafa sín ljós í lagi og allt annað nú að sjá aftan á kerrur og vagna. Sá þetta svo greinilega komandi ofan af fjalli aftastur í röð bíla með hestakerrur. Ég stoppaði til þess eins að taka mynd aftan á hestakerrur þeirra sem á undan voru.

Hér er allt í lagi, fín ljós aftan á hestakerrum og allir til fyrirmyndar.

Bíllinn fyrir aftan er að blikka ljósunum

Ótrúlega margir bílar eru seldir nýir þannig að þegar sett er í gang og ekið af stað vantar afturljósin. Það er samt í lögum að þegar verið er í umferð þurfa öll ljós að vera kveikt.

Töluverður hluti fólks hefur ekki hugmynd um að það sé ljóslaust að aftan og telur sig vera að aka löglega. Oft kemur þá upp spurning hvort umboðið sé ekki ábyrgt, en svo er ekki, það er á ábyrgð ökumannsins að vera löglegur og muna að kveikja ljósin.

Töluvert margir ökumenn blikka ljósunum fyrir aftan bíla sem eru ljóslausir og eru þar með að reyna að vekja athygli ökumannsins á óöryggi því sem sá sem á undan fer með ljósleysi sínu. Flestir átta sig á ljósleysinu og kveikja ljósin, en aðrir verða hinir verstu og gefa fingurinn, sagði flutningabílstjóri við mig fyrir nokkru. Hann hefur lent í því að fólk bregst hið versta við blikkinu frá honum þegar hann taldi sig vera að gera góðverk með því að láta vita með blikki af ljósleysinu.

Lögreglan sendir skilaboð á Facebook

Miðað við textann í skilaboðum lögreglu í flestum umdæmum lögreglunnar á Facebook er og ætti AUTO takkinn á ljósabúnaðinum á bílum að vera bannaður á bílum. Mín túlkun á textanum er allavega sú að autotakkinn sé ólöglegur. Hér er textinn orðréttur og dæmi nú hver fyrir sig:

Ökuljós bifreiða
– EKKI stilla á „AUTO“


„Lögum samkvæmt er skylt að aka með ökuljós kveikt allan sólarhringinn, bæði framan og aftan á ökutæki. Á mörgum nýjum bifreiðum kviknar sjálfkrafa á hvítum ljósum að framan (dagljósabúnaður) sem þó eru ekki ökuljós heldur stöðuljós. Þegar þessi stöðuljós loga ein og sér er ekki tryggt að afturljós logi.

Við hvetjum ökumenn til að hafa ljósarofann alltaf á stillingu fyrir ökuljós, sjá myndina hér að neðan. Ljósin slokkna þegar kveikjuláslykill er tekinn út eða a.m.k. þegar bílstjórahurð er lokað og bifreiðin yfirgefin. Þannig er tryggt að ekki gleymist að hafa ökuljós, bæði að framan og aftan, kveikt meðan á akstri stendur. Góða ferð.“

Tími árs að ganga hringinn og skoða hvort öll ljós séu í lagi

Ótrúlega margir bílar eru í umferðinni og á þá vantar eitt eða fleiri ljós og nú er rétti tíminn (eins og hver annar) að ganga hringinn í kringum bílinn og skoða vel ljósabúnaðinn og þá stefnuljós sérstaklega. Því það er eins og að á höfuðborgarsvæðinu séu yfir helmingur allra bíla með bilaðar stefnuljósaperur eða enga stefnuljósarofa. Allavega er afar sjaldgæft að sjá bíla gefa stefnumerki á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar út í umferðina er komið er um að gera að sameinast í að blikka bílinn fyrir framan með háageislanum ef hann er ljóslaus að aftan til að láta hann vita af ljósleysinu honum til öryggis og annarra í umferðinni. Við viljum jú öll að umferðin sé örugg og réttur búnaður stuðlar að meira öryggi.

Mugga bar þremur kvígum
Fréttir 26. júlí 2024

Mugga bar þremur kvígum

Kýrin Mugga 985 frá bænum Steindyrum í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð bar þríkelfi...

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku
Fréttir 25. júlí 2024

Innleiða kolefnisgjald á landbúnað í Danmörku

Þann 24. júní náðist sögulegt samkomulag í Danmörku, á milli stjórnvalda og nokk...

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?
Fréttir 25. júlí 2024

Er endurheimt vistkerfa skilvirkari en skógrækt?

Því hefur verið varpað fram að þegar kemur að kolefnisbindingu ætti að leggja me...

Snikka til lög um flutningsjöfnuð
Fréttir 25. júlí 2024

Snikka til lög um flutningsjöfnuð

Áform eru uppi um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...